Færsluflokkur: Evrópumál
Laugardagur, 19. janúar 2013
Þráinn Bertelsson - ESB Trjóuhesti Samfylkingarinnar smyglað inn í innstu raðir VG !
![]() |
Betra að slíta stjórnarsamstarfinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. janúar 2013
Sendiherra Samfylkingarinnar og ESB - Ekki lengur sendiherra þjóðarinnar !
![]() |
Dauði viðræðnanna stórlega ýktur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 16. janúar 2013
Litla Samfylkingin og BF - Haltur leiðir staurblindan og vilja báðir inn í ESB !
![]() |
Er þetta flókið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 9. janúar 2013
ESB umsóknin; - Einhver ákvörðun um frestun "varð ofan á" og var tekin einhvern tímann, af einhverjum, sem ekki er vitað hverjir voru !
Allt leikur þetta á lyginni. Þetta ferli hefur allt saman verið unnið í pukri og leynd og hulið í þoku og leyndarhjúp ólýðræðislegra vinnubragða og allt á forræði og undir stjórn ESB, alveg frá upphafi.
Nú er samt allt í einu að koma í ljós að svo virðist sem;
einhver ákvörðun hafi verið tekin, einhverntímann, af einhverjum sem ekki er vitað hverjir voru, en þar "varð ofan á" - eins og talsmaður ESB orðar það afhverju erfiðustu og þýðingarmestu kaflarnir um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál hafa ekki enn verið opnaðir og yrðu ekki ræddir fyrr en lang síðastir, eða eftir dúk og disk þegar ESB hentaði það.
Samt hefur það legið ljóst fyrir frá upphafi að annar stjórnarflokkurinn krafðist þess að kaflarnir um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál yrðu strax teknir fyrir og utanríkisráðherra hefur líka marg lýst vilja sínum til þess sama alveg frá upphafi.
Eða var það kannski bara til heimabrúks til að slá enn frekara ryki í augu þjóðarinnar og samstarfsflokksins, sem hann hefur reyndar blekkt alveg frá upphafi !
![]() |
Þetta er fullkomlega óásættanlegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 2. janúar 2013
VG stefnir í sögulegt afhroð - Flokknum fórnað fyrir blindflugið til Brussel !
Ef þetta verða úrslit kosninganna stefnir í algert afhroð og hrun á fylgi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í næstu kosningum.
Í síðustu kosningum hlaut VG 22,7% greiddra atkvæða eða alls um 40.600 atkvæði. Samkvæmt þessum tölum fengju þeir nú aðeins 9,1% og hafa því tapað meira en 23.000 atkvæðum eða nálægt 60% af fylginu er farið.
Reyndar sýnir þessi könnum líka gríðarlegt fylgistap Samfylkingarinnar.
Samfylkingin var með 29,9% greiddra atkvæða í s.l. kosningum eða 55.700 atkvæði.
Samkvæmt þessum tölum fengi Samfylkingin aðeins 19,1% atkvæða og hafa því tapað yfir 20.000 atkvæðum eða u.þ.b. 35% fylgisins er farið.
VG gæti hreinlega átt á hættu að detta út af þingi. Það er greinilegt að ESB herleiðing forystu VG er stærsti örlagavaldur þessa flokks !
![]() |
Björt framtíð eykur fylgi sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 31. desember 2012
Enn einn þingmaður VG flæmdur á brott af flokksforystu á villigötum !
![]() |
Guðfríður Lilja hættir um áramótin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 6. desember 2012
EKKI MEIR, EKKI MEIR, Árni Þór ! - Þú hefur algerlega brugðist - Undirferli, leynd, pukur og svikin loforð í ESB málinu varða vegin þinn !
Hver á eiginlega að trúa þessum manni?
Árni Þór hefur verið lúmskur en þægur skósveinn SJS og Flokksráðs VG í ESB málinu og þannig verið helsti "Kvislingur" flokksins í þeim svikum og undirferli.
Önnur eins "gunga og drusla" hefur ekki sést á Alþingi íslendinga hvorki fyrr né síðar.
Svo notuð séu fræg svigurmæli þíns eigins flokks- formanns.
Þú hefur svo sannarlega unnið fyrir því að kjósendur refsi þér og flengi þig ærlega í næstu kosningum !
![]() |
Ferlið jafnvel lagt til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 7.12.2012 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. nóvember 2012
Persson segir langmikilvægast sé að þjóðin nái samstöðu, þannig náist mestur árangur við kreppuna. Kratarnir hér, hafa með ESB umsókninni alið á ófriði og sundrungu þjóðarinnar.
![]() |
Samstaðan mikilvægust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 25. nóvember 2012
VG - Hörmuleg kosningaþátttaka í forvali - Deyjandi flokkur sem mun bíða afhroð í næstu kosningum !
Það má efast um það hvort VG nái yfirleitt inn einum einasta manni á þing í Reykjavík í næstu kosningum.
Kosningaþátttakan er fyrir neðan allar hellur og sýnir glöggt hvað þessi sjálfhverfa flokkselíta er algerlega úti á túni og einangruð í eigin flokki.
Þrír fjórðu hlutar skráðra félagsmanna í VG sjá ekki ástæðu til þess að mæta á kjörstað. Frambjóðendur flokksins, sem flestir eru reyndar annaðhvort hluti af flokkselítunni eða þægir þrælar hennar virðast líka meira og minna vera veruleikafirrtir og blindaðir af Stalínisku flokksræði flokksforystunar.
Þess vegna hefur þeim tekist með hroka sínum og yfirlæti að flæma burt helming af stuðningfólki sínu frá síðustu kosningum og fylgishrunið er ekki búið það mun halda áfram alveg fram að kosningum.
Helstu ástæður þess að fylgið hefur hrunið af VG og hversu hörmuleg staða flokksins er orðin eru þær að flokksforystan hefur ekki hlustað á kjósendur sína og staðið fyrir stórfelldum kosningasvikum með því að brjóta gegn stefnu flokkisns með því að standa fyrir ESB herleiðangrinum til Brussel.
Í sameiginlegum kynningarbæklingi allra frambjóðenda flokksins í Reykjavík þar sem frambjóðendum hverjum fyrir sig var gefin kostur á að kynna sig og helstu stefnumál sín og hvernig þau hyggðust koma þeim fram. En í þessum kynningarbæklingi var vandlega passað upp á það að enginn þeirra minntist einu orði á afstöðu sína til ESB eða aðildar umsóknarinnar. Þetta þótti mörgum ansi klént, eins og þetta væru saman tekin ráð að undirlagi Flokksfoustunnar.
Þess vegna var það ekkert skrítið að á bloggsíðunni "Vinstri Vaktin gegn ESB" var leitað eftir ákveðnum svörum frá öllum frambjóðendum VG í Reykjavík í þessu forvali um afstöðu þeirra til ESB aðildar og umsóknarinnar. Skemst er frá því að segja að mjög illa gekk að fá svör frambjóðenda við þessum sjálfssögðu og lýðræðislegu spurningum. Svör eða einhver viðbrögð bárust vægast sagt seint og illa. Á endanum tókst að fá einhver svör eða yfirlýsingar frá aðeins um þriðjungi þessa fólks.
Hin sýndu þann fádæma hroka að hundsa algerlega spurningarnar.
Þau fáu sem að þó svöruðu, með örfáum undantekningum þó, svöruðu þau flest andstætt við stefnu flokksins með ESB daðri, reyndar með mjög loðnum hætti, eða að svörin voru full af skætingi út í fyrirspyrjandann.
Sum þessara sem teljast þó hafa "svarað" þver neituðu reyndar að svara spurningunum beint, heldur sendu þess í stað á síðustu stundu frá sér yfirlætislegar en loðmollulegar yfirlýsingar.
Þetta fólk mun því ekki ná neinu til baka af því gríðarlega fylgi sem þegar hefur ákveðið að yfirgefa flokkinn.
Þau eru ekki einu sinni í neinum tengslum við þá sárafáu sem þó enn teljast til stuðningsmanna flokksins. Því að þrátt fyrir allt þá er það þó þannig að mikill meirihluti þessa hóps sem eftir situr, er andsnúinn ESB aðild og meirihluti þeirra vill líka afturkalla ESB umsóknina.
Þess vegna mun fylgishrun VG halda áfram alveg fram að kosningum.
![]() |
Ég er ekki ómissandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 19. nóvember 2012
Nærtækara væri fyrir Árna Þór að leyfa þjóðinni að fá að kjósa um ESB hörmungina þegar í stað og fella þetta RUGL !
![]() |
Vill lækka kosningaaldur í 16 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 65841
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar