Færsluflokkur: Evrópumál
Laugardagur, 27. apríl 2013
"Rótarmein" íslenskra stjórnmála = Samfylkingin - Afhroð Samfylkingarinnar = Stórsigur þjóðarinnar !
![]() |
Skynjar sveiflu til Samfylkingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 9. apríl 2013
Regnboginn kemur á óvart - Afl gegn ESB herleiðingu !
Regnboginn eru sjálf sprottin grasrótarsamtök sem að bjóða fram sjálfsstæða framboðs lista í öllum kjördæmum landsins.
Regnboginn berst gegn flokksræði og fyrir sjálfsstæði Íslands og sjálfbærri þróun.
Regnboginn er örugglega eina framboðið sem fólk getur 100% treyst að berjist heils hugar og af alefli gegn ESB aðild þjóðarinnar og sé heldur ekkert að fela það og bjóði engan afslátt af því með því að bjóða það til sölu fyrir eitthvað annað.
Það má segja að framboðið sé kannski svolítið seint fram komið en engu að síður er það búið að eiga sér langan aðdraganda og nú er ljóst að þetta er að springa út hjá þeim með gríðarlega glæsilegum og öflugum framboðslistum í öllum kjördæmum.
Það er orðin dúndur stemming í kringum kjördæma framboð Regnbogans og það er greinilega frjór og góður jarðvegur til að kjördamaframboð Regnbogans sópi til sín fylgi á lokasprettinum.
Ýmsir segja að nú sé komið nóg af þessum litlu framboðum þetta sé allt saman eins og þau muni lítil sem enginn áhrif hafa.
Regnboginn hefur mikla sérstöðu og er í raun allt öðru vísi framboð en mörg hver hinna framboðanna.
Framboð Lýðræðisvaktarinnar, BF og að ýmsu leyti Dögunar líka snúast að meiru og minna leyti um að viðhalda ESB draumnum í hinum ýmsu felulitum.
Þetta var gert vegna þess að raunveruleg eftirspurn eftir blautum ESB draumum Samfylkingarinnar reyndist svo átakanlega lítið að með þessum lymskulega hætti að setja fleiri framboð á fót í felulitum átti að reyna að fallera fólk og fjölga samtals í þessum fámenna hópi.
Það er sem betur fer meira og minna að mistakast.
Hinns vegar tókst þessu liði og þessari ESB sinnuðu fjölmiðlamaskínu saman að stilla kosningabaráttunni þannig upp að þeir flokkar sem nýlega höfðu skerpt mjög á andstöðu sinni við ESB aðildina, eru nú út og suður og á harða flótta undan sinni eigin andstöðu stefnu í ESB málinu !
ESB andstaða Framsóknar og Sjálfsstæðisflokks er nú líka orðin í felulitunum.
Þegar fólk áttar sig á þessu þá mun þetta enn frekar auka sóknarfæri Regnbogans.
![]() |
Konur leiða Regnbogann í Kraganum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 8. apríl 2013
Einræði við að koma Evrunni á - Gerræði til að halda henni áfram !
Það sýnir sig alltaf betur og betur á hvurslags ólýðræðislegum og veikum grunni gjaldmiðlinum evru var komið á og sama má reyndar segja um allar aðrar misgerðir þessa miðstýrða ofríkis bandalags ESB.
Það er hlálegt að nú þegar að evrusvæðið engist sundur og saman af efnahagslegum og pólitískum tilvistarvanda sem leikur heilu þjóðirnar og samfélögin mjög grátt, þá skuli svona elliær fyrrverandi ráðamaður eins og Helmut Kohl fyrrverandi kannslari Þýskalands stíga fram og segja frá því að hann hafi á sínum tíma blekkt þjóð sína vísvitandi og beitt hana gerræði til þess að fá yfir sig þennan evru gjaldmiðil þvert gegn vilja þýsku þjóðarinnar.
Í þokkabót hælir hann sér svo af því að hafa með pólitískum einræðis brögðum farið gegn meirihluta vilja þjóðar sinnar og komið í veg fyrir að þjóðin sjálf gæti fengið að ráða þessum málum sínum með lýðræðislegum hætti.
Kannast einhver við svika brögðin hjá Össuri og félögum við að véla þjóð sína undir Brussel valdið !
![]() |
Keyrði evruna í gegn eins og einræðisherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 23. mars 2013
Undansláttur frá skýrri ESB andstöðu Landsfundar !
Alveg er makalaust hvernig forysta Sjálfsstæðisflokksins með formann og varaformann í broddi fylkingar lætur hrekja sig stöðugt af leið og gengur nú gróflega á bak skýrum samþykktum Landsfundar Sjálfsstæðisflokkins um andstöðu við ESB og að slíta beri aðildarviðræðunum og áróðursmála skrifstofu ESB beri að pakka saman.
Ekki ætti að hefja aðildarviðræður aftur nema þá því aðeins að fyrir lagi að meirihluti þjóðarinnar hefði samþykkt það í þjóðararatkvæðagreiðslu. Punktur.
Landsfundur Sjálfsstæðisflokksins er æðsta lýðræðislega stofnun flokksins og samþykktir hans í megin málum ættu auðvitað að vera leiðarljós forystunnar.
Lítilþægir forystumennirnir láta lítinn en háværan minnihluta hrekja sig af leið skýrrar stefnu í þessum málum.
Þessi háværi minnihluti nýtur að vísu gríðarlegs stuðnings helstu fjölmiðla landsins, þar á meðal allra fréttamiðla RÚV og einnig hóskóla- og sérfræðingaelítunnar og fleiri aðila.
En þessir aðilar hafa farið þvílíkum hamförum gegn þessari grundvallar stefnu flokksins sem samþykkt var með yfirgnæfandi meirhluta af fulltrúum Landsfundarins.
Nú er ekkert talað um að slíta eig aðildrviðræðunum, heldur aðeins óljóst talað um að hafa einhvers konar þjóðaratkvæðagreiðslu einhvern tíman á næsta kjörtímabili. Ekkert er talað um að láta loka þessari áróðursmálabúllu Evrópusovétsambandsins sem hér spúir áróðri og fjármunum yfir samfélagið ESB til dýrðar.
Það sýnir sig enn og aftur að stjórnmálelíta allra flokka og allra landa er sérlega svög og veik fyrir öllum svona ráðstjórnar kerfislausnum eins og ESB elítan boðar. Fjölmiðlafólk allra landa er líka mjög illa haldið af þessari veiki.
Við sannir andstæðingar ESB aðildar viljum stöðva þessar umboðslausu ESB aðildarviðræður nú þegar.
Við þurfum að þétta raðirnar þvert á alla stjórnmálaflokka.
![]() |
Enginn skattlagt sig úr kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 16. mars 2013
Svikaslóð VG í ESB málinu - Fylgið færist til Regnbogans !
Vinstri hreyfingin grænt framboð vann glæsilegan kosningasigur árið 2009 þegar flokkurinn fékk 14 þingmenn kjörna. Síðan þá hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina og má nú segja að flokkurin sé rjúkandi rústir.
Upphaf þessarar ógæfu má rekja til ríkisstjórnarsamstarfsins við Samfylkinguna þegar flokksforystan sveik gróflega kosningaloforð sín með því að sækja um ESB aðild þvert á yfirlýsta stefnu sína og marg gefin kosningaloforð.
Þetta hefur kostað flokkinn marga mjög góða þingmenn sem hafa einn af öðrum hrakist frá borði auk fjölda góðra trúnaðarmanna og síðast en ekki síst hefur þetta kostað það að fylgið hefur hrunið af flokknum, enda trúverðugleiki flokksins farin veg allrar veraldar, eða öllu heldur flutt lögheimili sitt til Brussel.
Margir héldu að mögulega yrði hægt að snúa þessu við með Landsfundi flokksins nú í febrúar og nýjum formanni og nýrri flokksforystu gæfist tækifæri til þess að leiðrétta mistökin í ESB málinu og rétta kúrsinn af og þar með reyna að stöðva fylgishrunið og þessa hörmulegu óheilla þróun flokksins.
Vissulega var kjörin ný forysta á Landsfundinum, en vonirnar um að nýja forystan sæi nú lokisns ljósið og mistökin í ESB málinu og myndi því reyna að bæta fyrir fyrri mistökin, sem reynst hafði flokknum svona dýrkeypt urðu því miður fljótt að engu.
Nei, nei, nei, svo fór nú aldeilis ekki. Nýja flokksforystan var ekki hótinu skárri í afneitun sinni og villu síns vegar en sú gamla og lét líka eins og ekkert væri að, ekkert hefði gerst og ekkert þyrfti að laga eitt né neitt í ESB stefnu flokksins.
Þau hilltu gamla formanninn og bættu um betur með því að fá með miklum naumindum samþykkta tillögu sem staðfesti áframhald ESB svikaslóðarinnar, eftir kosningar ætti að halda ESB aðlögunar svika ferlinu eins og ekkert hefði gerst og enginn væri morgundagurinn.
Til að kóróna endemis vitleysuna var svo bætt við með kæruleysislegri og meiningarlausri áherslu sem ekkert hald var í þ.e. að þessu hörmungar ESB ferli sem hefur gersamlega eyðilagt flokkinn þeirra ætti síðan að halda áfram á fullu eftir kosningar í ja eitthvað svona kannski "til dæmis eitt ár"
Það er því alls enginn furða að fylgið við VG aukist ekkert eftir þennan dæmalausa, endemis Landsfund þeirra og enn haldi niðurbrotið og sjálfseyðing þessa flokks áfram.
Þorsteinn Bergsson er þekktur og vandaður hugsjónamaður, bóndi og varaþingmaður VG í Norð Austur kjördæmi reyndi á Landsfundinum og lengi vel að lagfæra stefnu flokksins í ESB málinu en var að lokum af þunnskipuðum Landsfundi ofurliði borin og fékk því sjálfur upp í kok og stendur nú upp um síðir og segir hingað og ekki lengra.
Þorsteinn Bergsson gengur nú hnarreistur og keikur til liðs við grasrótar framboðið og kosningabandalagið Regnbogann sem að bjóða mun fram í öllum kjördæmum með vaska sveit hugsjóna fólks og sannra ESB andstæðinga.
![]() |
Þorsteinn sagði sig úr VG |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 17.3.2013 kl. 10:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 16. febrúar 2013
Skipta nú um kall í VG-brúnni. Svikaslóðin verður samt ekki falin og heldur ekki fyrirgefin!
Þó svo að SJS stjórnmála kallinn sem sveik kjósendur sína meira og verr en nokkur dæmi eru um í seinni tíma stjórnmálasögu landsins, víki nú nauðbeygður úr brúnni þá verður arfleyfð og svikastefna hans í ESB málinu samt örugglega enn við líði og enn sú sama, enginn raunveruleg breyting þar á - þó svo kannski nýr afvegaleiddur leiðtogi taki þar við keflinu.
Sú foss blæðandi svikaslóð ein og sér, nægir til þess að fylgishrunið kemur ekki til baka. ESB svikasporin hræða og flokksræðis skútan er því enn í miklum hafvillum og svo gott sem strönduð fyrir glópsku og hroka þessa vonum seinna falleraða svika-formanns.
Steingrímur innleiddi þessi ESB svik með ótrúlega lymskulegum hætti og lengi vel tókst honum að blekkja, svíkja og þvæla helftinni af þingflokknum til þessarar óheilinda og svíkja þar með flesta stuðningsmenn flokksins með því að þóknast og þjónkast Samfylkingunni í einu og öllu og standa blygðunarlaust fyrir ESB helförinni til Brussel !
En vegna þessa er flokkurinn nú mölbrotinn og varanlega illa laskaður.
Þess vegna er líka stór hluti þingmanna og annarra trúnaðarmanna flokksins farin fyrir borð og meira en 2/3 hlutar fylgisins einnig.
Þó svo að þjóðinni væri sjálfssagt mjög hollt af því að eiga heiðarlegan og vinstri sinnaðaðan stjórnmálaflokk, en þó lítið eitt þjóðlegan og íhaldssaman, rétt eins og VG sannarlega var, þá er það góða vörumerki nú mjög varanlega ónýtt, skemmt og farið - Þökk sé SJS.
![]() |
Hvergi nærri hættur í pólitík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 17.2.2013 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 10. febrúar 2013
Matvælaeftirlit ESB hneggjar á neytendur - Hið "fullkomna" eftirlits og regluverk brást gersamlega !
Nú hefur komið í ljós að hrossakjötssvindlið sem nú hneggjar á neytnedur og skekur mörg ríki Evrópusambandsins er mjög víðtækt og hefur staðið yfir lengi með góðri hjálp fjórfrelsisins svokallaða með gríðarlega flóknum afleiðuviðskiptum með kjöt og kjötafurðir milli margra landa og fjölda stórfyrirtækja.
Skipulegt flækjustig þessara afleiðuviðskipta með þessar kjötafurðir hefur greinilega verið skipulagt þannig að það nýtti sér öll ákvæði fjórfrelsisins, sem jafnframt gerði viðskiptin svo ógegnsæ og flókin að það slapp auðveldlega fram hjá öllu matvælaeftirliti og þaðan hneggjandi ofan í kok neytenda.
Það er ekki langt síðan að það uppgötvaðist hérlendis að um tíma hafði salt sem merkt var sem "iðnaðarsalt" verið í einhverjum mæli notað sem salt í sumar matvæla afurðir sem framleiddar voru hér á landi. Saltið var reyndar talið haf verið alveg skaðlaust en það hafði ekki vottun um að vera leyfilegt til matvælavinnslu.
Þessu hafði nú verið hætt fyrir nokkru síðan að kröfu matvælaeftirlitsins, en engu að síður var þetta að sjálfssögðu talið vont mál fyrir neytendur, framleiðendur og hið íslenska matvælaeftirlit.
Margir hneyksluðust heil ósköp yfir þessu og töldu að þetta hefði aldrei getað gerst hefðum við verið í ESB og undir hinu samevrópsk miðstýrða eftirliti og regluverki þess.
Ég held að fólk sjái að hvorki þetta miðstýrða regluverk né nein önnur geta komið með öllu í veg fyrir skipulagt og vel undirbúið svindl af þessu eða mannleg mistök af einhverju tagi.
Málið er ekki að auka sífellt eftirlitið, eða gera það miðstýrðara.
Málið er að einfalda regluverkið og færa það sem næst þeim stöðum þar sem, vörunnar er neytt hverju sinni.
![]() |
Hneyksli vekur ekki upp hrossahlátur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 9. febrúar 2013
ESB andstaða Framsóknar - Eykur enn frekar á vinsældir þeirra og sóknarfæri.
Því ber svo sannarlega að fagna að Framsóknarflokkurinn hafi nú tekið af öll tvímæli um það að flokkurinn er heill og sannur á móti ESB aðild og telur hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið utan Evrópusambandsins.
Ályktun um þetta var samþykkt samhljóða og mótatkvæða laust á fjölmennum Landsfundi flokksins í dag.
Flokkurinn leggur áherslu á framfarasókn og bjartsýni og trú þeirra á okkur sjálf - Land okkar og þjóð.
Með nýrri og kraftmikilli forystu hefur flokkurinn hreinsað til og kveðið niður fortíðarstimpilinn og ESB draugar fortíðar eru því vonandi að fullu og öllu kveðnir niður.
Frosti Sigurjónsson oddviti Framsóknar í Reykjavík Norður verður glæsilegur fulltrúi þjóðarinnar á alþingi íslendinga.
Framsókn getur nú aftur orðið framsækið, frjálslynt og þjóðlegt afl sem fólk getur treyst að sæki fram og vinni landi okkar og þjóð gagn.
Vonandi getur þjóðin og kjósendur flokksins treyst því að flokkurinn mun standa við stefnu sína og ekki svíkja í ESB málinu. Svik og afhroð og örlög VG ættu svo sannarlega að verða þeim víti til varnaðar.
Margt af fyrrverandi stuðningsfólki VG hefur nú sagt skilið við þann flokk og munstarð sig við hinn bjartsýna, framsækna og fullveldissinnaða Framsóknarflokk.
Eftir situr svikaliðið í VG, rúið öllu trausti, mest vegna hrikalegra og langvarandi svika þeirra í ESB málinu.
![]() |
Íslandi best borgið utan ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 2. febrúar 2013
Lýðskrumarinn og tækifærissinninn Árni Páll Árnason nýr Ayatolla Samfylkingarinnar. Hann er sjálft "Rótarmein" íslenskra stjórnmála !
Þó að pólitíkusinn Árni Páll Árnason sé fljúgandi mælskur og að mörgu leyti frambærilegur maður, þá skín svo sterkt í gegn hjá honum hrokinn og tækifærismennskan í bland við glamrandi lýðskrumið.
Í Kastljós þætti á RÚV um daginn, fékk allan þann tíma sem hann vildi til þess að glamra alla sína innihaldslausu frasa og pólitískan rétttrúnað Samfylkingarinnar.
Hann var eins óg heittrúaður sértrúar klerkur í viðtlai við sjónvarpsstöð safnaðrins þegar hann útlistaði fjálglega allar hinar óendanlegu listisemdir ESB og yfirburði evrunnar.
Gjaldmiðill þjóðarinnar og allir innviðir íslensks samfélags væru meira og minna ónýtir.
Hann gaf algert frat í alla þá sem að ekki væru honum sjálfum sammála í þessum efnum og í upphöfnum hroka sínum kallaði hann alla þá sem "skyni skroppið" fólk.
Sjálfsstæði og fullveldi þjóðarinnar væri sjálft "rótarmeinið" sem hann vildi skera burt, með tafarlausri ESB aðild og upptöku evru.
Hann slær nú um sig og þykist nú allt í einu ekki vera hluti af fjórflokknum. Samfylkingin sem bráðum er búinn að vera samtals og samfleytt 6 ár í Ríkisstjórn sé ekki hluti af valdapólitík samtímans.
Hann hælist um og telur sig hafa verið einn aðal bjargvætt þjóðarinnar í ICESAVE málinu. Þegar að öll þjóðin veit að Samfylkingin og hann sjálfur voru harðastir allra í því að semja og gefa allt eftir í ICESAVE málinu eingöngu til þess að þóknast ESB valdinu.
Það var ekki fyrr en forsetinn og þjóðin sjálf í tvígang forðuðu þjóðinni frá þessum ósköpum að ÁPÁ og Samfylkingin lutu loks í gras.
Allt er þetta því innihaldslaust glamur og enginn vafi er á að valdapólitíkusinn og bragðarefurinn Árni Páll mun beita öllum brögðum til þess að halda völdum eftir kosningar.
Hann mun líka beita sér af alefli gegn lýðræðinu og gegn því að þjóðin fái þá beint og milliliðalaust að segja álit sitt á ESB aðildarviðræðunum, af eða á.
Fólk mun sjá í gegnum tækifærissinnann og lýðskrumarann Árna Pál Árnason og meirihluti þjóðarinnar sem er "skyni skroppinn" mun verða enn stærri.
Rótarmeinið er hann sjálfur og það mun verða pólitískri framtíð hans að fjörtjóni !
![]() |
Fólk var tilbúið í ný vinnubrögð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 25. janúar 2013
Sýndarmennska og moðsuða - Enn einn aumur biðleikur VG forustunnar í ESB málum !
Það er alveg með ólíkindum hvernig þessi auma flokksforysta VG kemst endalaust upp með það að leika hverjum þykistu biðleiknum á fætur öðrum í ESB málinu. Að því er virðist til þess eins að geta lafað þetta áfram í stjórnarsamstarfinu og þurfa ekki að standa í lappirnar né standa við fyrri samþykktir sínar gegn ESB.
Hér er bara enn eitt dæmið um enn eina sýndarmennskuna og moðsuðuna sem borin er á borð fyrir fólk í ESB málinu, til þess eins að réttlæta það hvernig forystan hefur svikið feitt í ESB málinu.
Forystunni væri nær að biðja stuðningsfólk sitt afsökunar á því hvernig þau hafi breytt rangt og svikið stefnu flokkisns, með svona klækjum og lygum nú árum saman.
En það verður aldrei því að flokksráðs valdaklíkan sem eftir situr mun aldrei sýna þá auðmýkt að gera eitthvað slíkt því að hún forherðist bara og stefnir nú á fullri ferð fram af björgunum með formanninn fremstan með ESB fánann í fanginu !
Það er enginn furða að 2/3 hlutar af fylgi VG skuli vera gufað upp og hundruðir trúnaðarmanna og þingmanna flokksins flæmdir á brott !
A M E N
![]() |
Aukaályktun VG um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar