Fimmtudagur, 20. október 2011
Barasso og framkvæmdastjórn ESB vilja nú láta banna sannleikann þegar hann passar ekki inní glansmyndina !
Alveg er þetta í anda Ráðstjórnarinnar í Brusssel.
Enda Barrosso sjálfur gamall kommúnisti, meira að segja sanntrúaður Maóisti.
Ef sannleikurinn er þeim ekki að skapi þá á bara að gefa út eina allsherjar tilskipun sem bannar óþægilegan sannleikann.
Setja svo upp heila Stofnun, "European Securities and Markets Athorit" til þess að fylgja því eftir að sannleikurinn fái nú hvergi að leka út.
Svona einskonar fjármála öryggislögreglu Elítunnar sjáfrar til þess að reyna að blekkja og ljúga og passa uppá glansmyndina af hinum óskeikulu og ósnertanlegu leiðtogum Ráðstjórnarinnar.
Kostnaðurinn við þessa Stofnun skiptir þessa háu herra engu máli það verður bara áfram seilst dýpra ofan í vasa almennings og skattgreiðenda í ESB.
Um að gera að blekkja og fela sannleikann um eðli ESB og EVRUNNAR sem lengst !
Hvað verður næst, mun þessi nýja Öryggisstofnun þeirra fá valdsheimildir til að beita ritskoðun á fjölmiðla og tímarit sem leyfa sér að gagnrýna þessa gerspilltu Ráðstjórnar Elítu eða ónýtu myntina sem þeir hafa troðið uppá þegnanna.
Þeir munu þá líklega láta loka mörgum blaðaútgáfum og taka úr umferð ýmsa blaðmenn sem skrifa um fjármál og peningamál, einna fyrst munu þeir væntanlega láta loka fyrir útgáfu hinns virrta þýska tímarits Der Spiegel, sem sagði í frægri grein í síðustu viku að;
"Evran væri hættulegasta mynt veraldar"
Þetta skaðræðis Ráðstjórnarbandalag minnir alltaf meir og meir á hina handónýtu stjórnsýslu Sovétríkjanna sálugu.
![]() |
Vilja banna birtingu lánshæfiseinkunna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 19. október 2011
Stefán Fule: Núverandi Yfircommízar ESB Ráðstjórnarinnar í BRUSSEL - Fyrrverandi Commízar í hinum alræmda Kommúnistaflokki Tékkóslóvakíu heimsækir nú Ísland !
Stefán Fulle yfircommísar stækkunar- og áróðursmála ESB Ráðstjórnarelítunnar í Brussel er kominn til Íslands til að útbreiða fagnaðarerindið og leggja línurnar um hvernig vélað skuli með þjóðarsálina í áróðursherferðinni sem Bandalagið er nú að undirbúa hér á landi.
Hann hefur nú þegar lofað verulegu fjármagni í opnun upplýsingaskrifstofu og til útgáfu- og áróðursmála.
Stefán Fulle þekkir vel til hvernig best er að heilaþvo fólk undir eina miðstýrða ráðstjórn, því að sjálfur gekk hann í hinn alræmda og illræmda Kommúnistaflokk Tékkóslóvakíu árið 1982 og var þar orðinn háttsettur í Ráðstjórninni og sat þar allt þar til flokknum og hans hyski var komið frá völdum í flauelisbyltingunni svokölluðu árið 1989.
Kommúnistaflokkur Tékkóslóvakíu þótti einna íhaldssamastur og Sovét hollastur af Kommúnistaflokkum Austan-tjalds landanna og jafnframt einn sá spilltasti og illræmdasti frá vorinu í Prag og innrás Sovétmanna þar árið 1968.
Tékknesku Kommarnir voru samt flestir fljótir að umbreytast og aðlagast nýjum siðum bæði í pólitík og viðskiptum og því komst hann nánast strax aftur til pólitískra metorða en nú í Tékknesku Samfylkingunni og gengdi þar veigamiklum ráðherraembættum á tíunda áratug síðustu aldar.
Síðar tókst honum í gegnum flokkspólitíska endurvinnslu klíkustjórnmála án þess að vera nokkurn tíman kosinn til þess að koma sér þægilega fyrir sem einn af helstu Commiserum hinnar miðstýrðu ESB Valdaelítu í Brussel.
Dyggilega og einarðlega studdur af gömlum skoðanabróður sínum harðlínukommúnistanum og Maóistanum Mr. Barosso sem nú er Æðsti yfir Commísar sjálfrar frakvæmdastjórnar ESB Valda-Elítunnar.
Er nema furða að gamlir gatslitnir uppjafa Kommar eins og Össur Skarp. og Árni Páll skuli tilbiðja og dýrka þetta miðstýrða og upphafna valdaapparat ESB, þar sem völdin eru færð þeim á silfurfati, en eru ekki samfélagsleg þjónusta við fólkið í landinu heldur aðeins yfirþjóðlegir valdahagsmunir og græðgislegir eiginhagsmunir og makgráðug forréttindi sjálfrar valdaklíkunnar.
Auk grunnþekkingar er helsta heimild Wikipedia
![]() |
Lýsa ánægju með viðræðuferlið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 19. október 2011
"EVRUSVÆÐIÐ á barmi hengiflugs" - Segir Delors fyrrverandi forseti framkvæmdastjórnar ESB !
![]() |
Hægt verði að yfirgefa evruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 18. október 2011
Atvinnuleysisstyrkir greinilega misnotaðir, samkvæmt þessu. Eitthvað mikið er að !
Hvað er eiginlega að þegar næstum fimmta hvert fyrirtæki sárvantar ófaglært fólk í vinnu og það vandamál er eitt þeirra stendur vexti þeirra og viðgangi fyrir þrifum.
Það eru 11.900 manns atvinnulausir samkvæmt síðustu tölum og yfir helmingur þeirra er ófaglært verkafólk og yfir 2000 þeirra eru útlendingar sem hafa ílengst hér síðan í góðærinu.
Hér er eitthvað mjög alvarlegt þjóðfélagslegt mein á ferðinni sem þarf að rannsaka og lagfæra.
Eru lægstu laun svona lág að atvinnulausum er enginn akkur í því að finna sér vinnu og eru komnir eru uppá lagið með að nýta sér þessa neyðarhjálp þjóðfélagsins.
Þetta er ekki eðlilegt. En samt jákvætt og gott að fyrirtækin eru nú að taka við sér og leyta að fólki í atvinnustarfssemi sína, það eru augljós batamerki.
Reyndar er atvinnuleysi á Íslandi með því lægsta sem gerist í Evrópu og það þriðja lægsta í heiminum innan OECD.
En samt finnst okkur íslendingum 6,5% atvinnuleysi mikið á landsvísu, af því að við erum svo góðu vanir. Innan Evru svæðisins er maðaltalsatvinnuleysi rétt yfir 10% og sumsstaðar eins og á Spáni vel yfir 20%
![]() |
Vantar fólk í vinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 13. október 2011
"ÞETTA sem hefði aldrei getað gerst, hefðum við verið í ESB og með EVRU" Er nú orðinn martröð ESB/EVRU svæðisins og ógnar nú efnahag alls heimsins !
![]() |
Enginn lánveitandi til þrautavara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 12. október 2011
ICESAVE málið enn "óleyst" segja samningamenn ESB ! En það átti að vera alveg óskylt málefni.
Það mál átti einmitt enginn áhrif að hafa á aðildarumsóknina margsögðu ESB sinnar hérlendis.
En nú heyrist þetta beint frá ESB Elítunni sjálfri og reyndar ekki í fyrsta skipti.
Íslenska þjóðin er tvívegis búinn að hafna því að bera nokkra ábyrgð á ICESAVE málinu, umfram tryggingarsjóðinn og ber það heldur ekki samkvæmt samningum og sjálfu regluverkinu.
Þeir ætla seint að skilja það.
En í raun ætti nú að kjósa um það nú þegar að hætta þessum samninga- og aðlögunarviðræðum við þetta handónýta og vonlausa Stjórnsýsluapparat ESB sem komið er að fótum fram.
Íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð og hún myndi nú þegar í slíkum kosningum hafna ESB helsinu rétt eins og við tvívegis höfnuðum ICESAVE klafanum réttilega og það með miklum mun.
![]() |
Erfiðar viðræður framundan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 5. október 2011
Landsvirkjun tekur hagstæð erlend lán til uppbyggingarverkefna í orkumálum. ICESAVE hvað ?
Þegar ICESAVE ruglið reið hér yfir og hagfræðiprófessorar og stjórnmálamenn kepptust við að ljúga því að þjóðinni að ef við ekki samþykktum ICESAV 1 og svo ICESAVE 2 og loks ICESAVE 3 þá yrði Ísland Norður Kórea Asíu algerlega forsmáð og einangrað land sem hvergi fengi lán og yrði einangruð til eilífðar.
Yrði útilokuð frá nær öllum viðskiptum og skuldatryggingarálagið færi tafarlaust í ruslflokk og svo framvegis og svo framvegis.
Heimsendaspárnar voru svo hryllilegar og ótrúlegar.
En almenningur hafnaði þessu og hafnaði ICESAVE ruglinu í tvígang, sem betur fer.
Ekkert af því sem ICESAVE aftaníossarnir sögðu stóðst.
Þvert á móti þá snarlækkaði skuldatrryggingarálag þjóðarinnar og helstu fyrirtækja.
Síðan hafa bæði Ríkið og mörg helstu fyrirtæki þjóðarinnar fengið nokkuð hagfelld lán á alþjóða markaði miðað við hinar erfiðu aðstæður.
Óska Landsvirkjun innilega til hamingju með að hafa landað þessum hagstæða erlenda lánasamningi !
![]() |
Landsvirkjun tekur lán vegna Búðarhálsvirkjunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 30. september 2011
GYLFA - GINNING ! EVRU-KLETTURINN hans Gylfa er víðsjárverður strandstaður efnahagskerfa !
Gylfi Arnbjörnsson þessi umboðslausa silkihúfa og yfirjólasveinn hjá ASÍ, Elítunni á Íslandi, sér nú sýnir og talar nú af miklu dálæti um hinn mikilfenglega EVRU KLETT í hafinu.
Gylfi hefur lengi verið blindaður ESB trúboði og sér því ekki að þessi EVRU-klettur hans er hið versta skaðræðis manndrápssker og er nú ein helsta orsök efnahgs- og skulda- og kreppuvanda hinns vestræna heims.
Á þessum fræga Evru kletti, Gylfa standa nú mörg strönduð og illa leikinn skipsflökin, þar lieggja nú þegar flökin af efnahag Grikklands, Portúgals og Írlands.
Í soginu og brimskaflinum sem ríður sífellt yfir klettinn eru enn fleiri og mun stærri skip á leiðinni stjórnlaust eða stjórnlítið að steita á þessu sama manndrápsskeri EVRUNNAR.
Ginningar Gylfa miða allar að því að Íslensku þjóðarskútunni verði brotlent á þessua EVRU skeri.
Það er hin viðsjárverða Gylfa - ginning svo ekki sé meira sagt !
![]() |
Kostir og gallar ESB-aðildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 26. september 2011
EINRÆÐI ! - Tveir valdasjúkir "Rússakeisarar" Pútín og Medvedev, skipta og deila með sér völdum áratugum saman !
Þetta er með eindæmum og á ekkert skylt við opið og frjálst lýðræði.
Þarna grasserar þvílík pólitísk spilling og óþveri í skjóli þess að þessir kumpánar hafa deilt og drottnað og helstu vinir þeirra og "sponserar" eru milljarðamæringarnir olíugarkarnir, sem fengu olíuauðlyndirnar og önnur helstu verðmæti landsins nánast gefins á silfurfati.
Annar þeirra Pútín sjálfur sem var forseti í 8 ár en hefur nú verið forsætisráðherra í 4 ár en verður brátt enn og aftur forseti aftur næstu 8 árin og handbendi hans verður nú aftur forsætisráðherra.
Pútín sjálfur var á Kommúnistatímanum forstjóri KGB hinnar illræmdu leyni- og öryggislögreglu gömlu Sovétt Kommaklíkunnar.
Hann kann því öll trikkin og valda- og lymskubrögðin.
Hinn þ.e. Medvedev er eins og hundur hans, handbendi hans eins og allir helstu fjölmiðlarnir og helstu ráðamenn landsins líka !
Rússnenskt gerfilýðræði er sorglegt og hreinn skrípaleikur og ekki samboðinn þessari miklhæfu þjóð !
![]() |
Kúdrín segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. september 2011
Þennan afdankaða ESB-Elítu fausk á að setja bak við lás og slá sem allra fyrst.
Það þarf enginn að vera hissa á því að farið sé í mál við stjórnendur ECB bankans, sem er Seðlabanki ESB Valda-elítunnar.
Sjá þennan afdankaða ESB- Elítu fausk, Jean-Claude Trichet.
Eftirmæli hans verða ekki merkileg og réttast væri að dæma hann fyrir fjárglæfra og fyrir að misfara stórlega með fjármuni skattgreiðenda EVRU landana, eins og þýski viðskiptalögfræðingurinn Markus C. Kerber hefur nú þegar gert.
ECB bankinn undir stjórn Jean-Claude Trichet er nú á góðri leið með að koma bankanum í stærsta gjaldþrot mannkynssögunnar.
Með því gerræði að hafa staðið fyrir því að kaupa handónýta og verðlausa pappíra í trilljóna vís og það án nokkurra haldbærra veða og þar á ofan líka án umboðs og án allra tilskilinna lýðræðislegra heimilda.
![]() |
Seðlabankastjóri ESB kærður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 65841
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar