ESB fylgið við aðild Íslands eykst stöðugt, meðal silkihúfanna í Brussel. En heima fyrir er ESB trúboðið einangrað og fylgislaust og á harða flótta !

Leyfum Össuri að halda það að svona yfirlýsingar hafi eitthvert gildi.

Hann rembist enn eins og rjúpan við staurinn að halda þessari ESB umsókn til streitu gegn vilja mikils meirihluta þjóðarinnar.

Hann sér ekki, eða vill ekki sjá risavaxin vandamálin á ESB/EVRU svæðinu.

Nú ætlar Ráðsstjórnin í Brussel að pína fátækt og smátt aðildarríki eins og Möltu sem sjálft á í miklum efnahagsþrengingum til þess að greiða milljarða Evra inní þessa vonlausu björgunarpakkahít.


mbl.is Lýsti stuðningi um umsókn Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI ! Það á bara áfram að keyra á umsókn og aðlögun að ESB- Ríkjabandlaginu sem að er samt bæði fjárhagslega og hugmyndalega gjaldþrota ! ESB steinbarn Samfylkingarinnar er andvana fætt !

Þessi ESB umsókn ! Úff ! 

Þetta er svona álíka vitleysa og hafa sótt um aðild að Sovétríkjunum, USSR svona ca 1989 eða svo.

Rétt áður enn allt úrsérgengna og gjaldþrota Sovét-komma- systemið hrundi til grunna !

Grunnhyggni þessarar elliæru Jóhönnu og hennar sértrársöfnuðar virðast alls enginn takmörk sett !

Ennþá skal freklega unnið á móti meirihluta þjóðarinnar og alið enn frekar á ESB- sundurlyndisfjandanum ! 


mbl.is Fylgst með kreppu í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fánýti og getuleysi ESB apparatsins, ásamt vonleysi Evrunnar koma alltaf betur og betur í ljós !

Það er alveg sama hvað þeir stofna stóra björgunarsjóði og halda marga neyarfundi og hvaða heitstrengingar þeir gefa þá sér markaðurinn alltaf í gegnum "showið" vonleysið og getuleysi þessa hyskis.

Evran er einfaldlega með innbyggðan smíða- og erfðagalla og verður ekki viðbjargandi.

Ofvaxið ESB apparatið er vaxið þegnunum yfir höfuð og þrátt fyrir allar reglurnar og 100.000 blaðsíður af tilskipunum þá er það engu að síður svo að þetta system allt saman er orðið að einu stóru ráðleysis skrímsli, sem engar alvöru ákvarðanir getur tekið nema þá ef þær loksins koma, þá koma þær alltaf of seint.  

Svo tala þessir Samfylkingarmenn hér á Íslandi enn blautir á bak við eyrun að við séum á hraðleið inní þetta ólýðræislega skrifræisbákn og það helst til að taka upp Evru. 

Þessir menn eru ekki með réttu ráði og vilja ekkert sjá eða vita um það sem öll heimsbyggðin stendur á öndinni yfir.

Það á að hætta þessum viðræðum og þessu heimskulega aðlögunarfelri við þetta hörmulega ráðleysis apparat, þegar í stað.  

Skrifum undir á "skynsemi.is" 


mbl.is Fundurinn ekki skilað öðru en „heitu lofti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USSR, eins og ESB stjórn- sýsluapparatið, það hafnaði líka alltaf allri gagnrýni, sérstaklega ef hún kom frá USA!

Sjá þennan afgamla ESB- Elítu-fausk, Jean Claude Tricket.

Þessi afdankaði bankastjóri ECB bankans, banka ESB valdaelítunnar, lítur út eins og einn af Commiserum Sovétstjórnarinnar og alveg eins og þeir þá afneitar hann með öllu óskeikulleika og fullkomnun systemsins sem hann er hluti af.

Eini munurinn er að á bak við þennan fausk er honum hér stillt upp framan við hégómlegt, gulllitað tákn-merki ESB Valdaelítunnar, en Sovétt Elítucommísarnum hefði verið stillt upp framan við gullitað tákn Sovétt-Elítunnar, þ.e. hamars og sigðar !

Eftirmæli þessa Seðlabankastjóra ECB verða ekki merkileg því að hann er á góðri leið með að koma þessum risabanka í stærsta alheims- gjaldþrot mannkynssögunnar með þeim gerræðislegu fjárglæfrum að hafa keypt ónýta pappíra í trilljóna vís. Án nokkurra haldbærra veða og þar á ofan líka án tilskilinna lýðræðislegra heimilda. 

Ólýðræðislegt og svifaseint ESB- Stjórnsýsluapparatið er versta ógnin við einstaklingsfrelsið og frjálst og opið lýðræði og eðlilega efnahags- og atvinnuuppbyggingu, síðan Sovétríkin sálugu hrundu til grunna.

Sagan mun sýna að bæði þessi ómanneskjulegu og ólýðræðislegu kerfi munu enda saman á ruslahaugum mannkynssögunnar ! 


mbl.is Evrópa hafnar gagnrýni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásmundur Einar Daðason, ungur en flottur þingmaður sem talar máli þjóðarinnar hvar sem hann skipar sér í sveit.

Ásmundur Einar Daðason, hinn ungi bóndi og þingmaður úr Dölunum er vaxandi í störfum sínum.
Greinargóður og ábyggilegur maður sem talar alþýðumál sem fólk skilur.
 
Það verður athyglisvert að fylgjast með störfum þessa unga og öfluga þingmanns.
 
Sem jafnframt er formaður fjöldahreyfingarinnar Heimssýnar sem er þverpólitískur félagsskapur sjálfsstæðissinna, sem hafna með öllu ESB helsi fyrir þjóðina !

mbl.is Þvert á strauma í þjóðfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar þakkar Kínverjum fyrir öflugan stuðninginn - Að sjálfssögðu !

Ólafur Ragnar veit að mikilvægur stuðningur Kínverja í upphafi kreppunnar skipti okkar smáu og þá hjálparþurfi þjóð verulegu máli.

Kínverski Seðlabankinn bauð þá fram gjaldeyrisskiptasamning við Seðlabanka Íslands fyrir verulegum fjárhæðum fyrri part ársins 2009 sem er einskonar loforð um yfirdrátt ef á þarf að halda, þetta skipti okkur þá mjög miklu máli.

Því að þá hafði lánveitingum AGS og Norðurlandana og nokkurra annarra Evrópuríkja þráfaldlega verið frestað eða skotið á frest.

Þetta hafði gerst vegna þess að Stjórn AGS var misnotuð af fulltrúm Breta og Hollendinga í stjórn sjóðsins ásamt með með fulltingi annarra fulltrúa ESB, til þess að fresta endalaust fyrirtökum um lánveitingar, fyrr en Íslensk stjórnvöld hefðu fallist á allar kröfur Breta og Hollendinga um fullar endurgreiðslur ICESAVE innistæðnanna, auk vaxta. Þetta kom oft fram, þó svo að sjóðurinn sjálfur ætti mjög erfitt með að viðurkenna þetta opinberlega.

Það var svo ekki fyrr en stórveldi eins og Kína og Indland sem sáu hvernig lítilli þjóð var haldið í gíslingu að þessi stóru og öflugu ríki tóku okkar málsstað og þegar öflugur stuðningur þeirra innan sjóðsins var fenginn fyrir því að hætta þessum ólögmætu þvingunaraðgerðum gegn þessari litlu þjóð, að stíflan brast og Stjórn sjóðsins gat ekki haldist uppi að beita þessum ólöglegu fantabrögðum.  

Fyrir þetta ber að sjálfssögðu líka að þakka.

Tekið skal fram að Færeyingar og Pólverjar höfðu boðið fram lánveitingar strax í upphafi og þau voru höfðingleg og algerlega án þessara eða annarra íþyngjandi eða ósanngjrnra skuldbindinga, það ber að þakka líka alveg sérstaklega. 

Ég veit að Ólafur Ragnar hefur líka marg oft rætt stöðu mannréttindamála við Kínverska ráðamenn og vonandi áorkað einhverju í þeim efnum 

 


mbl.is Efli samvinnu Íslands og Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB sinnar verða nú að fara að taka hendurnar frá augum og eyrum. ESB herinn er á leiðinni !

Þessi frétt sannar rækilega að þeir í ESB trúboðinu á Íslandi afneituðu þessu a.m.k. 10 sinnum.
 
Í þeim ofsa þeirra réðust þeir skipulega og heiftarlega að Samtökum ungra Íslenskra bænda fyrir að vekja athygli á því að innan ESB apparatsins væri á döfinni að stofna sérstakar miðstýrðar, vopnaðar og óvígar ESB- hersveitir.
 
Nú liggur það fyrir að allt sem íslenskir ESB- aftaníossar hafa sagt um þetta ESB- her mál er enn og aftur ein lygin enn !
 
Þeir eru enn og aftur og ítrekað berir af blekkingum og lygi á lygi ofan !
 
Svo sem alls ekki fyrsta lygin sem afhjúpuð er um hörmulegan málatilbúnað Íslenska ESB trúboðsins á Íslandi !
 
Hvað skálkaskjól munu þeir ESB- aftaníossarnir nú hrekjast í með sinn ótrúverðuga blekkingar leik og vesæla ESB málsstað !
 
Þegar einar lygar þeirra hafa verið hraktar þá hafa þeir venjulega umsvifalaust hrakist í annað skálkaskjól og fundið sér upp aðrar blekkingar og lygar um dýrðir, listisemdir og óskeikulleika ESB- pappírs- Keisaraveldisins, sem er að hruni komið.
 
Allur almenningur ESB ríkjanna og líka hér á Íslandi, sér í gegnum þetta og ber lítið eða ekkert traust til þessa vonlausa valdaapparats.
 
Allir sem vilja sjá eða heyra, vita og sjá að ESB- keisarinn þeirra guðdómlegi reikar nú blindur og heyrnarlaus um sviðið og er þar að auki algerlega klæðalaus !
 
Er hægt að leggjast öllu lægra !
 
Hvenær skyldi þessi sérkennilegi ESB lyga-sértrúarsöfnuður sem sagt hefur sig til sveita í Brussel, endanlega leggja upp laupana.  

mbl.is Vilja evrópska herstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ECB - Seðlabanki ESB stefnir sjálfum sér í opinn dauðann !

Bankastjóri ECB bankans, Seðlabanka Evrópusambandsins, Jean Claude Trichet virðist vera orðinn elliær eins og á grönum má sjá.

Hann stefnir nú ákveðið og örugglega að því að koma bankanum í greiðsluþrot á nokkrum árum, með ófyrirsjáanlegum og skelfilegum afleiðingum fyrir hluthafa hans sem eru ESB/EVRU ríkin og nú ósjálfráða skattgreiðendur þeirra.

Að kaupa villt og trillt skuldabréf gjaldþrota ríkja sem enginn vill kaupa, eins og Grikklands, Írlands, Portúgals og Spánar og Ítalíu er hreint brjálæði.

Að bæta síðan við allt drullumallið með því að ætla nánast ótakmarkað að kaupa skuldabréf gjaldþrota braskbanka á ESB/EVRU svæðinu, er enn ein klikkunin í viðbót.

Vonandi ber Ísland gæfu til þess að verði ekki komið þarna inn í þetta rugl, þegar ECB/ESB leirstíflan brestur og allt heila skítaklabbið hrinur yfir Jean Claude Tricket og bankastjórn ESB bankans.  

Með skelfilegum afleiðingum.

Reyndar minnst fyrir þá sjálfa því að þeir hafa tryggt sér gríðar háa starfslokasamninga og ríkulegan lífeyri á gullfæti til æviloka hvernig sem fer.  

Verst verður þetta fyrir fólkið sem býr við þetta hand ónýta stjórnsýsluapparat og það að þurfa að lúta þessum Elítu völdu rugludöllum, án þess að hafa nokkuð um það að segja yfir höfuð !

Sýnum vilja okkar í verki og skrifum undir á www.skynsemi.is og leggjum umsóknina að ESB stjórnsýsluapparatinu til hliðar, alla vegana um sinn.  

ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB !


mbl.is Tryggir bönkum greiðslugetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina sem var rangt, var það að það skyldu ekki fleiri hafa verið dregnir fyrir Dóminn !

Það er jú að vísu svolítið sárt að sjá Geir Haarde einan þarna.
 
Því að það var ekki pólitík að koma honum fyrir dóminn.
 
Það lyktaði hinnsvegar illa af flokkspólitík þegar komið var í veg fyrir að þau hin þ.e. Ingibjörg Sólrún, Björgvin G. Sigurðsson og Árni Matthiesen skyldu ekki líka dreginn fyrir dóminn ásamt Geir og alla vegana látin svara til saka fyrir sinnuleysi sitt og vanrækslu.
 
Það hefði alla vegana getað skýrt stöðuna betur hvort sem að sakir þeirra væru taldar það miklar að þau skyldu sæta refsingu eða verða sýknuð.
Það er svo annað mál.
 
Mér finnst ekki réttlátt hjá stuðningsmönnum Geirs að reyna að gera hann að einhverjum pólitískum píslarvætti vegna þessa hörmulega Hrun-máls, sem varð jú á vaktinni hans. 
 
Vonandi fær Geir sanngjörn og heiðarleg réttarhöld. 

mbl.is Alþingi tók ekki viturlega ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nigel Farage - Hlustið vandlega, sérstaklega íslenskir ESB aftaníossar !

http://www.youtube.com/watch?v=2YcgACl1Sr8&feature=player_embedded

Þetta er skyldu áhorf fyrir alla sem hugsa um ESB !

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband