Þjóðaratkvæðagreiðsla ! Það þolir BRUSSEL valdið illa - Markaðir falla. EVRU krísan stigmagnast !

Nú falla hlutabréfavístölur um alla Evrópu 3ja daginn í röð og sérstaklega varð gríðarleg lækkun í gær og stefnir í það sama í dag.  

Nú er öll hækkunin sem varð um skamma hríð í síðustu viku farinn út í veður og vind og gott betur, eftir að "Merkozy" samkomulagið og sá stjörnum prýddi björgunarsjóður nr. 3 var kynntur til sögunnar með lúðrablæstri, eftir miklar og erfiðar fæðingarhríðir.

Markaðir sáu fljótlega að þessi hækkun á björgunarsjóðnum voru sjónhverfingar og stóðust ekki.

Reynd voru gömlu bankatrixinn að gíra upp fjármagnið með sýndarveruleika, eins konar sápukúluhagfræði sem svo var kynnt undir með auglýsingamennsku og blekkingum.

Síðan var einn æðsti  Commisar EVRU lands sendur út í heim með betlistaf og betlibauk til að betla raunverulegt fjármagn af Rússum, Norðmönnum og Kínverjum. Honum hefur orðið lítið sem ekkert ágengt, enda varla að það hringli einu sinni í tómum bauknum hjá honum.

Ráðamenn ESB/EVRU lands hafa gert sig að atlægi út um allan heim og þeir hafa misst allan trúverðugleika bæði heima fyrir sem og annars staðar, fyrir vesældóm sinn, ráðaleysi sitt og síendurtekna sýndarmennsku.

Þeir hafa algerlega sýnt umheiminum það að þetta stjórnsýsuapparat ESB/EVRU er handónýtt og virkar ekki og er með öllu ófært um að taka af viti á efnahags- og gjaldmiðilsvandamálum sínum.

Nú bætist enn við ótta ESB Commísarana í Brussel að aumingja karlinn hann  Papandreo forsætisráðherra Grikklands datt skyndilega og fyrirvaralaust það snjallræði í hug í raunum sínum að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um alla þessa björgunarpakka sem neyddir hafa verið uppá þjóð hans af ESB og AGS, með ströngum skilyrðum um launalækkanir, gríðarlegar skattahækkanir og sölu allra ríkiseigna þ.e. einskonar brunaútsölu á þjóðareignum Grikklands.

Papandreo hugsar sjálfssagt sem svo að þar sem Ríkissttjórn hans ræður hvort eð er engu um framvindu og framtíð sinnar eign þjóðar, þá sé þetta djarfur leikur í stöðunni til að þjóðin endurheimti virðingu sína og völd.

Það er nefnilega svo komið að öll þeirra ráð eru nú komin í hendur Commisara ráðana í Brussel, með hjálp AGS og auk þess koma engir þessir björgunarpakkar Grísku þjóðinni eða Grískum almenningi að gagni.

Þess í stað rennur allt þetta fjármagn til þess að greiða helsta Stórcapítali Evrópu, helst upp í topp allar þær skuldir sem þeir í græðgi sinni lánuðu Grískum, braskbönkum og fyrirtækjum þeirra.  

Síðan verður Grískur almenningur, næstu kynslóðir látnar bera byrðarnar af þessari vitleysu sem þeir áttu engan þátt í.

Þessar svokölluðu "björgunaraðgerðir" sem ESB Elítan vill neyða aðildarþjóðir sínar til að fara í vegna efnahags- og bankavandans, kalla ég ekkert annað en óhroða, svona álíka eins og að reyna að lækna geðveilur nýkapítalismans og græðgisvæðingarinnar með Sósíalisma Andskotans ! Algert siðleysi og aðför að almenningi.

Það sem ráðmenn í Brussel óttast mest af öllu eru "þjóðaratkvæðagreiðslur", því þær kalla þeir "And-Evrópskar" og þær geta ógnað alræði Commísara ráðana þeirra og því reyna þeir yfirleitt með öllum ráðum að sneiða hjá þeim.

Ef það hinns vegar tekst ekki og þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram og niðurstöður hennar eru ESB- Elítunni ekki þóknanlegar að þá bregst það ekki að þá koma þeir því þannig fyrir að það verður kosið aftur og aftur alveg þar til þóknanleg niðurstaða fæst. 

Við skulum vona að ESB apparatinu takist ekki að stöðva þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eða að hræða Grískan almenning með auglýsinga- og hræðsluáróðri til þess að kjósa gegn þjóðarhagsmunum sínum.  

Þessi merka þjóð Grikkir sem eitt sinn var vagga siðmenningarinnar á betra skilið en láta ESB Elítuna og EVRÓPSKA siðblinda og spillta tæknikrata kjöldraga sig. 

 

 

 

 

 


mbl.is Mikil lækkun í morgunsárið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trilljóna EVRU Björgunarsjóðurinn sem öllu átti að bjarga. Allt mun því miður fara á sama veg fljótlega.

Ég hélt reyndar eftir allar þessar erfiðu fæðingarhríðir að þessi svokallaði björgunarpakki ESB/EVRU svæðisins myndi duga aðeins lengur.

Spáði því í gær hérna á blogginu að þetta myndi duga í svona kannski 2 til 4 vikur, þá yrði allt komið á heljarþröm aftur. En það var greinilega mjög svo ofmetið, þetta er strax farið að skjálfa. Markaðurinn sér í gegn um þetta og er ekki að kaupa þetta.

Þannig er þessi svokallaði "björgunarpakki" þegar betur er að gáð lítið meira en stærri og flóknari umbúðir og svona einskonar sjónhverfingar þar sem reynt er að blása sápukúluhagkerfið upp með alþekktum og banvænum bankatrixum.  

Því virðist þetta því miður ætla að verða enn ein mislukkaða tilraun þessa vonlausa valda apparats til þess að koma einhverjum böndum á skuldafarganið og bankavitleysuna.

Að ætla að lækna græðgisvæðinguna og fárveikan alheims kapítalisman, með þessum aðferðum sem ég kalla "Sósíalisma andskotans" mun aldrei ganga upp !


mbl.is Viðsnúningur á mörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geðveilur Kapítalismans, læknaðar með Sósíalisma andskotans - Björgunarsjóðurinn orðin 1,3 billjón EVRUR ! !

Þessi endaleysa gengur aldrei upp þetta eru u.þ.b. 350.000 Evrur eða um 56 milljónir íslenskra króna á hvert mannsbarn innan EVRU svæðisins.

Þetta eru ca 20 ára meðalævitekjur hvers einasta vinnandi manns á öllu Evru svæðinu. Ef tekið er tillit til þeirra sem eru atvinnulausir, öryrkjar og eða gamalmenni, eða utan vinnumarkaðar af einhverjum ástæðum þá dekkar þessi upphæð sjálfsagt ævitekjur allra íbúa EVRU svæðisins.

Ævitekjur allra íbúa EVRU svæðisins sóað á einu bretti í þessa dómadags vitleysu.

Allar ævitekjur næstu kynslóða EVRU svæðisins fara í að greiða fyrir þennan "svokallaða "Björgunarleiðangur" - þennan banvæna kokteil tvíeykisins "Mer-Kozy".

Þetta er margfallt verra og ófyrirleitnara en Versala-nauðungarsamningurinn var Þjóðverjum eftir fyrra stríð  

Þetta er svona eins og geðveilur og græðgi kapítaliskrar óstjórnar sé reynt að lækna með sósíalisma andskotans. 

Svo er strax byrjað á að tala um að þetta sé allt of lítið og komi allt of seint og dugi hvergi til.

Þetta lítilræði er svo aðeins gert til að bjarga EVRUNNI sem gjaldmiðli og bankakerfi ESB/EVRU landana sem annars færu í umvörpum á hausinn við að afskrifa hluta af skuldum hinns gjaldþrota ESB/EVRU lands Grikklands sem þó er aðeins lítið 10 milljóna land.

Hvað þarf þá mikið til við að bjarga bankakerfi ESB/EVRU landana öðru sinni þegar tugmilljóna lönd eins og Ítalía og Spánn byrja að skjálfa.

En sá skjálfti er reyndar þegar byrjaður. 

Takið eftir að allir þessir neyðarfundir og öll þessi gríðarlega peningasóun fer ekki í að bjarga Grískum almenningi, nei síður en svo hún fer öll í að bjarga stórkapítali ESB/EVRU svæðisins.

Reikningurinn aftur á móti er sendur á skattgreiðendur ESB/EVRU svæðisins og næstu kynslóðir. 

Inn í þetta Óreiðu Skuldabandalag stefnir Samfylkingin. Það verður að stöðva þessa helför Ríkisstjórnarinnar til Brussel STRAX.

Fyrsta skrefið er að skrifa undir hjá: skynsemi.is 

 


mbl.is Björgunarsjóður yfir billjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi Arnbjörnsson: ESB Aftaníossi og rugludallur og mesta viðrinni Íslenskrar Alþýðu !

Gylfi Arnbjörnsson ruglar enn út í eitt um gatslitna og ónýta Evru og ESB !

Þú sem ert algerlega umboðslaust viðrinni íslenskrar alþýðu !

Farðu frá Gylfi Arnbjörnsson !

Og segðu af þér sem yfirjólasveinn siðspilltrar ASÍ- Elítunnar !

Fólkið í landinu hefur fnegið meira en nóg af þér og þínum siðspilltu kónum !

Íslensk Alþýða vill ekkert ESB- eða EVRU rugl ! 

 


mbl.is Biðja á um aðstoð vegna krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Merkozy" - "Lýðræðið" - Örvæntingin leynir sér ekki " Nú eða aldrei" - Annars er EVRAN sjálf, mesta og versta misfóstrið þeirra og ESB Elítunnar ónýtt drasl á ruslahaugum sögunnar og stjórnsýsluapparat ESB- Elítunnar líka.

Hvað haldið þið nú að komi svo út úr þessu annað en, enn eitt misvísandi og einskis nýtt ESB- klúðrið enn og aftur.

Þetta er gersamlega svo óskilvirkt og handónýtt stjórnsýsluapparat að það hálfa væri nóg.

Þeim tekst ekki endalaust að ljúaga sig út úr raunveruleikanum og sannleikanum, þó þau hnykli sína ónothæfu vöðva um ERMU og EVRU svæðið.

Þetta er svo algerlega vonlaust og dauðadæmt ESB- Elítu klúður og allt í beinni útsendingu.

Eru spunameistarar Samfylkingarinnar ekki að taka þetta alheims- EVRU klúður ESB- Elítunnar upp á video fyrir næsta Landsfund Samfylkingarinnar ?

 

 

 


Noregur og Ísland: Svipuð afgerandi andstaða gegn ESB hjá þessum tveimur frændþjóðum !

Þetta er reyndar mesta andstaða sem mælst hefur í Noregi gegn ESB aðild.
 
En andstaðan hefur reyndar oftast mælst svipuð og hún hefur mælst á Íslandi undanfarin 2,5 ár eða þetta 62 til allt að 70%.
Merkilegt er líka, en kemur mér samt ekki á óvart, er að Norðmenn eru ekki í neinum vandræðum með að taka skýra og afdráttarlausa afstöðu til ESB, þrátt fyrir að engar samninga- eða aðildarviöðræður séu gangi hjá þeim við ESB og standa heldur ekki til.
Auk þess er þar heldur enginn samningur á borðinu, til að "sjá hvað er í pakkanum", eins og það heitir á máli ESB sinna.
 
Aðeins rúmlega 10% Norðmanna eru hlutlausir þegar kemur til afstöðunnar til ESB aðildar landsins eða taka ekki afstöðu.
 
Fylgi við ESB aðild er hinns vegar sem fyrr sáralítið og fer sífellt minnkandi, er aðeins 18,6% núna.
 
Þegar ESB- sinnar hérlendis skammast sem mest útí mikið fylgi við andstöðuna við ESB vísa þeir oft til þess að þetta sé ekkert að marka af því að þetta fólk geti ekki og megi eiginlega ekki taka svona afstöðu af því að það viti ekkert hvað sé í pakkanum og enginn samningur sé enn á borðinu.
 
Samt sýnir staðan bæði hér og í Noregi svipaðar niðurstöður og fólk er fullfært um að taka einarða afstöðu og hafa skýrar skoðanir á þessum málum, án þess að "kíkt verði frekar í pakkann" eða einhver samningur tilbúinn á borðinu.
 
Mikill meirihluti fólks í báðum þessum löndum vill eifaldlega ekki ganga í Stórríki ESB og EVRUNAR.  
 
Þess vegna eru þeir sem eru hlutlausir eða taka ekki afstöðu mjög fáir.

mbl.is 70,8% vilja ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Pandórubox" ESB Elítunnar verður opnað. Ekki til bjargar sauðsvörtum almenningi heldur aðeins til bjagar Elítunni sjáfri !

Er þetta ekki dæmigert fyrir vonleysið, vitleysuna  og vesældóminn fyrir þetta "Europian Soviet Union" - Hörmungar, stjórnræðis- skulda- og vandræðbandalags Evrópusambandsins.

Sannkölluð ráðalaus og ósjáfsstæð Ráðstjórnarríki Evrópusambandsins.

Það er Stjórnsýsluapparatið sem heitir  ESB, sem hefur lagt fullveldi þeirra í rúst, þar sem fréttirnar snúast um hvort Merkel heimsækir Sarkozy og hina helgina heimsækir Sarkozy heim Merkel til að ráða ráum þessa 25 ríkja og 500 milljóna einstaklinga innan þessa bandalags.

Aðrir leiðtogar hinna 25 aðildarríkjanna, hvað þá einstakir aðilar þess hafa akkúrat ekkert að segja við þetta heimskunnar borð.

Þetta ER ESB lýðræðið í hnotskurn og hið svokallaða "Sterkara Ísland" kallar eftir því að íslenska þjóðin sitji ráðalaus og allslaus og handjárnuð sem 26 ríkið við þetta borð.

Í sögubókum framtíðarinnar og kennslubókum stjórnmálafræðinnar verður þetta sennilega kallað "Merkozy lýðræðið" = "Einræðislýðræðið"   

Það þarf ekki fleiri orð um þessa vesælu hörmung !


mbl.is Íhuga að breyta sáttmála ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumur Jóhönnu Sig. um ESB- aðild Íslands mun verða að martröð Samfylkingarinnar !

Jóhanna Sigurðardóttir er algerlega rúinn trausti og nýtur nær einskis trausts meðal þjóðarinnar.

Ekki einu sinni meðal síns eigins flokksapparats nýtur hún sjáanlegs trausts, þó svo að hún hangi áfram sem forystumaður af því enginn þorir gegn henni.

En nú reynir hún að berja í brestina og áfram skal haldið vonlausri baráttu fyrir ESB aðild, með forystu VG í taumi. Niðurlægir stuðningsmenn VG sérstaklega með því að þakka þeim sértsaklega fyrir stuðninginn við ESB helförina sem þeir sjálfir og mikill meirihluti þjóðarinnar er algerlega andsnúinn.

Þó hún viti að hú sé langt kominn með að gera forystu þanns flokks að ginningarfíflum og eyðileggja þann flokk sem veitt hefur henni brautqargengi og líka mesta samkeppni um vinstra fylgið.  Það verður kannski hennar eini sigur í ESB málinu að hafa gengið frá sínum eigin flokki og þá sérstaklega VG flokknum nær dauðum.

En inn í ESB innlimun mun þjóðin aldrei fara sjálfviljug !

Fyrr verða ESB- aftaníossarnir Jóhanna, Árni Páll og Össur að steinrunnum tröllum í íslensku samfélagi. 

  


mbl.is Stolt af því að vera formaður áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB Helsið - Og ESB Rétttrúnaðurinn eru stærstu og verstu mistök Samfylkingarinnar.

Veit að ESB málið mun stórskaða flokkinn hennar Jóhönnu og ekki síst samstarfsflokk hennar VG sem samþykkti þessa helför fyrir þrákelkni Samfylkingarinnar, þvert gegn stefnu sinni og kjósenda sinna.
 
ESB málið verður kolfellt af þjóðinni og verður akkelisarhæll þessarar Ríkisstjórnar !

mbl.is Ná atvinnuleysi niður í 4-5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 65839

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband