Takið eftir: Það var minnihluti stjórnar SA sam ályktaði með ESB aðild !

ESB aðildar- og innlimunarsinnar fara nú mikinn yfir því sem þeir segja að meirihluti Stjórnar þessara samtaka (SA) hafi lýst stuðningi við ESB viðræðurnar og ESB aðild.

Sumir ESB sinnaðir fréttamenn og fjölmiðlar reyna jafnvel að færa þetta í þann búninginn að öll Stjórn SA og allir félgsmenn þessara samtaka séu alfarið og einhuga í þessari afstöðu sinni.

Þetta er ekki alls kostar rétt.

Það var nefnilega þannig að það var minnihluti Stjórnar SA sem ályktaði með þessum hætti með ESB aðild.

Það eru nefnilega 21 stjórnarmaður í SA og það voru aðeins 10 eða minnihlutinn sem ályktaði með þessum hætti.

Í atkvæðagreiðslunni á stjórnarfundinum voru 6 stjórnarmenn andsnúnir tilllögunni, 2 treystu sér ekki til að greiða henni atkvæði sitt og 3 stjórnarmenn voru ekki á fundinum. Semsagt 11 stjórnarmenn eða meirihlutinn voru annaðhvort á móti tillögunni eða treystu sér ekki til að styðja hana eða höfðu ekki kost á því að greiða atkvæði. Lýðræðislegt ? 

Það er því beinlínis rangt að segja að meirihluti stjórnar SA standi á bak við þessa ályktun og ljóst er að það er gríðarleg óeining og vaxandi klofningur um afstöðuna til ESB innan stjórnarinnar.

Því er mjög hæpið að Samtökin sem heild og stjórn þeirra geti beitt sér fyrir og staðið fyrir sífelldum ESB áróðri, eins og staðan er og eins og formaður samtakanna hefur samt gert grímulaust hingað til.

Ekki síst í ljósi þess að engar faglegar alvöru kannanir hafa verið gerðar á vegum samtakanna um raunverulega afstöðu félagsmanna.

Það er því í raun alveg sama hvernig stjórnin ályktar með eða á móti í þessum málum, þá er hún algerlega umboðslaus gagnvart sínum félagsmönnum og hefur því engar heimildir til þess að standa fyrir áframhaldandi ESB áróðri.

Þar að auki hafa þær kannanir sem ég man eftir, glögglega sýnt að talsverður meirihluti íslenskra atvinnurekenda hefur verið andvígur ESB aðild. Full ástæða er til þess að ætla að andstaðan við aðild hafi heldur aukist frekar en hitt.

Sama umkomulausa umboðsleysið ríkir hjá forystu ASÍ sem hefur samt blygðunarlaust að fullum þunga beitt sér fyrir áróðursvagn ESB trúboðsins á Íslandi.

Þetta er algerlega umboðslaus Elíta án umboðs umbjóðenda sinna og þess vegna er ótrúverðugleiki þeirra öllum ljós og málflutningur þeirra aðeins holur hljómur !


Hinn nýji forseti Írlands hlýtur að daðra við "Fasisma" og þjóðernisöfgar, að mati Eiríks Bergmanns ESB rétttrúnaðarfræðings !

Hinn nýji forseti Íra ljóðskáldið Michael D. Higgins sór embættiseið í Dyflinarkasstala í dag. Hinn nýji forseti er þekktur fyrir ættjarðarljóð sín og er mikill og sannur Írskur ættjarðarvinur.

Hann vill nú endurvekja hin gömlu og þjóðlegu gildi Írsks samfélags.

Hann vill að þjóðin snúi nú baki við því sem hefur mistekist og byggja á öðrum Írskum gildum og rita nýjan kafla í þjóðarsöguna sem byggist á öðrum Írskum þjóðareinkennum.

Eiríkur Bergmann og aðrir sem taka undir að leggja beri niður öll hin þjóðlegu gildi því að það sé daður við fasisma, en vilja algerlega án fyrirvara ganga ESB helsinu og því Stórríki á hönd, hljóta nú að tala um að hinn nýji forseti Írlands daðri nú við "fasismann" og þjóðernisöfga.

Eins og hann og fleiri ráðast nú að Framsóknarflokknum fyrir að voga sér að hafa íslenska fánan í merki sínu og hafa fánahyllingu á Landsfundi sínum til virðingar við þjóðfána okkar og jafnframt sýna hina gömlu og göfugu þjóðaríþrótt íslenska glímu á Landsfundi sínum.

 

 


mbl.is Tími til að endurvekja gömul gildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur hinn bísperrti og hrokafulli ESB trúboði. Ræðst nú harkalega gegn íslenskum frjálsum og lýðræðislegum fjöldasamtökum eins og Heimssýn. Á samta tíma og hann mærir og lofar hið ólýðræðislega Stjórnsýsluapparat ESB og hinn ónýta skuldavafning EVRUNA !

Össur, þessi pólitíski og ófyrirleytni pólitíski refur ætti enn og aftur að skammast sín og sýna nú smá umburðarlyndi og biðja nú stærstu og fjölmennustu frjálsu lýðræðissamtök Íslands, sem berjast með rökum og frjálsri orðræðu gegn ESB helsinu og ESB innlimun þjóðarinnar afsökunar.
 
Við hjónin erum bæði félagar í Heimssýn og okkur finnst utanríkisráðherra þjóðarinnar hafa með þessum hætti ráðist gegn okkur með offorsi og ofstopa.
 
Heimssýn eru frjáls, fagleg og þverpólitísk fjöldasamtök einstaklinga með yfir 2000 félagsmennn.
 
Skipuð félagsmönnum sem eru úr öllum íslensku stjórnmálaflokkunum, líka Samfylkingunni en einnig fjöldamörgum óháðum félagasmönnum og konum sem eru ekki bundin neinum stjórnmálasamtökum.
 
Össur sýnir með þessu þvílíka ókurteisi og hversu fyrirlitlegur ESB aftaníossi hann er og því fyrirlitlegri og ómerkilegri sem hann sér ekki sóma sinn í því að biðja Heimssýn og þúsundir félagsmanna þeirra og einlægra stuðningsmanna þeirra afsökunar.
 
Reyndar á ég ekki vona á að hann geri það, en skömm hans og hroki verður bara því meir ljósari þjóðinni ! Þjóðin þarf að koma þessum pólitíska úrtölu- og landssölumanni og ESB aftaníossa út úr Stjórnarráðinu sem allra fyrst.
 
Því fyrr því betra.

mbl.is Vilja að Össur dragi ummælin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hroðalegt ástand í ESB og EVRU ríkinu Spáni ! Fátækt og glundroði !

Það er víst ekki ofsögum sagt yfir því eymdar og vesældar ástandi sem ríkir hér á Spáni.

Ég held að íslendingum væri hollt af að lesa þessa frétt um "Gríðarlega fjölgun fátækra á Spáni".

Ekkert lagast ástandið og enn vex atvinnuleysið, þrátt fyrir launalækkanir, hækkun skatta og miklar skerðingar á lífeyri og bótum öryrkja og atvinnulausra.

Ekki er búist við að neitt lagist hér með stjórnarskiptum sem vænta má nú eftir kosningarnar sem verða hér þann 20. nóvember n.k.

Sósíalistaflokkur Zappateros hefur verið ófær um að laga ástandið sem sífellt hefur versnað og ekki er búist við að spillingar hægri flokkurinn "Party Popular" geri hér nein kraftaverk.

Enda ráða ríkisstjórnir Spánar ekki sínum eigin peninga- og gjaldmiðils málum, sem er einn stærsti hluti vandans.

Spánn hefur með upptöku EVRUNNAR framselt þetta vald sitt til Brussel og ræður ekki yfir sínum eigin gjaldmiðli og það er mjög stór hluti vandans að vera læstir inn með helfrosinn gjaldmiðil sem passar engan veginn hagkerfi þeirra á samdráttar tímum.

Hér þyrfti nú að verða 30 til 40% gengislækkun til þess að koma hjólum atvinnulífsins almennilega af stað og draga úr atvinnuleysinu.

Tekið skal fram að við búum nú á Spáni og höfum gert á fjórða ár.


mbl.is Gríðarleg fjölgun fátækra á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur, sagði í Rannsóknarskýrslunni að "hann hefði ekki hundsvit á efnahagsmálum" Segir nú að EVRAN sé stöðugt að styrkjast. Merkel segir að það taki EVRU svæðið 10 ár að vinna sig út úr skuldavandanum og EVRU krísunni !

Skildi Össur vita þetta betur en sjálf Merkel kanslari Þýskalands og helstu sérfæðingar heims á sviði hagfræði- og viðskiptamála.
 
Merkel segir að nú sé framundan a.m.k. 10 ára sársaukafull þrautarganga til að vinna EVRU- svæðið út úr skuldavandanum og EVRU krísunni.
 
En svo segir Össur bísperrtur eins og hani á Alþingi að EVRAN muni koma miklu mun sterkari út úr þessu og gerir ekkert úr þessum vandræðum sem fyrr.
Hvor ætli viti nú betur um þessi efnahags- og peningamál frú Merkel, eða Össur, maðurinn sem sagði sjálfur vottfest í Rannsóknarskýrslu Alþingis að hann;
 
"Hefði ekki hundsvit á efnahagsmálum"
 
Hver á að taka þenna ESB/EVRU Snúð Samfylkingarinnar alvarlega.
 
Hvað þarf til þess að maðurinn vakni af þessum blautu ESB/EVRU draumum sínum og Samfylkingarinnar.
 
EVRAN er að verða martröð Evrusvæðisins og meira að segja smitar þessi skemmdi og gallaði gjaldmiðill og vandi hans allan efnahag veraldarinnar.
 
Í upphafi aðildarviðræðnanna sagði Össur kampakátur að við myndum vera á hraðferð þarna inn og yrðum kominn í bandalagið eftir 15 til 16 mánuði og með EVRU eftir rúmlega 2 ár eða svo.
Allt reyndist þetta sem betur fer aðeins rakalaus áróður og tómar blekkingar.
 
Eins og reyndar allt annað sem frá þessum manni hefur komið varðandi ESB og EVRU málin.
 
Það er svo sannarlega komið mál að linni.
Burt með Samfylkinguna, sem vinnur beinlínis gegn hagsmunum þjóðarinnar og er án umboðs meirihluta þjóðarinnar í þessu máli.
 
Við þurfum nýja Ríkisstjórn sem stöðvar þetta ESB glapræði, það má gera það með þjóðaratkvæðagreiðslu þess vegna.
 
Meirihluti fólks vill ekki að þesssi mál verði keyrð áfram með þessari vitleysu og þráhyggju Samfylkingarinnar. 

mbl.is Evran sterkari fyrir vikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað eiga hagsmunir þjóðarinnar að vera í fyrirrúmi. En ekki hagsmunir eða reglufargan ESB !

Hárrétt hjá Jóni Bjarnasyni.

Alþingi samþykkti sem betur fer ákveðna fyrirvara með ESB umsókninni og eftir þeim fyrirvörum sem eru grundvallar hagsmunir þjóðarinnar ber að vinna.

Samninganefndarmenn Íslands í ESB viðræðunum sem allir eru þekktir ESB sinnar og voru handvaldir af Össuri Skarphéðinssyni í þessar viðræður, komast ekkert framhjá þessum fyrirvörum þó svo þeir reyni það á ýmsan hátt og reyni með hjálp ESB sinnaðra fjölmiðla að rjúka upp moldviðri og reyna að gera Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að einhverjum sökudólg til þess að breiða yfir það að þeir eru að reyna með lymskulegum hætti að fara á svig við þessar samþykktir sjálfs Alþingis.

Jón Bjarnason á hrós skilið fyrir það að virða samþykktir Alþingis og er einn af örfáum í þessari ríkisstjórn sem þorir og vill standa í lappirnar við að gæta hagsmuna lands og þjóðar gagnvart ESB innlimuninni !


mbl.is Hagsmunir þjóðar í fyrirrúmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað fer Hoffellið með stýrislausa Kýpverska Stór-hafskipið Ölmu til heimahafnar á Fáskrúðsfirði nú strax í nótt !

Glæsilegt björgunarafrek skipverja og útgerðar Hoffellsins frá Fáskrúðsfirði ef þeir koma þessu stjórnlausa skaðræðis hafskipi til hafnar í heimahöfn sinni á Fáskrúðsfirði nú í nótt.

Íslenskir, austfirskir sjómenn láta ekki að sér hæða.

Fáskrúðsfirðingar halda auðvitað síðan skipinu og farmi þess í gíslingu og vírbundinni við bryggju á Fáskrúðsfirði þar til eðlileg og sanngjörn björgunarlaun hafa verið greidd til skipverja og útgerðar Hoffellsins af eigendum og tryggingaraðilum þessa Kýpverska stýrislausa "druslu" hafskips.

Sem ég reyndar stórefast um að hafi vottun alþjóðlegra skipaeftirlitsaðila til siglinga um heimshöfin og er það til umhugsunar fyrir Íslensk hafnsögu yfirvöld að svona druslu barkar frá ESB löndum fái að sigla hér um íslenska lögsögu, stórhættulegar manndrápsfleytur, eins og sjóræningja skip dauðans.

Ég vona að ég sé ekki of fljótur á mér að óska skipverjum og útgerð Hoffellsins til hamingju með þessa giftusamlegu björgun og reyndar Fáskrúðsfirðingum öllum. 

 


mbl.is Áætlun breytt vegna slæms veðurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðin er löng og ströng, 10 ára þrautarganga að koma EVRU svæðinu út úr skuldakreppunni ! Þetta segir sjálf Angela Merkel. Skyldi Jóhanna og Samfylkingin vita af þessu !

Hún boðar nú hvorki meira né minna en 10 ára þrautargöngu út úr skuldavandræðunum.
 
Þetta er næstum eins dramatískt og þegar Winston Churcil forsætisráðherra Breta sagði við þjóð sína í byrjun Síðari heimsstyrjaldarinnar. "Ég boða ykkur ekkert annað en, blóð, svita og tár".  
 
Svo tala Össur og Jóhanna alltaf eins og ekkert sé að, þetta sé aðeins tímabundið smá vandamál, sem leyst verði auðveldlega og EVRAN og ESB verði bara enn sterkari innan skamms.
 
Margir mjög virrtir hagfæðingar telja nú að EVRAN sé algerlega dauðadæmt fyrirbæri.
Innbyggðir hönnunargallar og veikleikar þessa gjaldmiðils séu allt of margir og að enginn lækning sé til, nema kannski ein.
 
Þessi eina lækning sem kannski er til talar nú Jochika Fischer fyrrverandi utanríkisráðherra og vara Kanslari Þýskalands um að sé sú að breyta ESB/EVRU svæðinu í eitt Sambandsríki þ.e. Bandaríki Evrópu.
Með einni samhæfðri og mistýrðri Ríkisstjórn.
 
Hann talar jafnframt um að það megi engan tíma missa til að koma þessu í framkvæmd, til þess að forða öllu Evrusvæðinu frá stórslysi. 
 
Ég sé ekki annað en að þessi ESB umsókn sé gjörsamlega fallinn um sjálft sig, því að það er orðin alger forsendubrestur.
Við erum að sækja um inngöngu í eitthvað allt annað fyrirbæri en var sumarið 2008.

mbl.is Löng leið að bata á evru-svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja Papandreo guggnar. "Merkozy" tvíeykið sýndi honum ESB/EVRU vígtennurnar á sérstökum neyðarfundi í gær ! Beint og opið lýðræði er og hefur alltaf verið, eitur í beinum Ráðstjórnarinnar í Brussel !

Það var svo sem auðvitað. Aumingja Papandreo hann var píndur til þess að draga þetta til baka.
 
Enda var öll Elíta ESB/EVRU svæðisins að fara af límingunum.
 
Sorglegast er þetta auðvitað fyrir Grikki sjálfa en einnig fyrir allan almennig á ESB/EVRU svæðinu, þar sem lýðræðið fer stöðugt minnkandi í krafti sífellt aukinna valdheimilda gírugrar Ráðstjórnar-Elítunnar í Brussel !

mbl.is Hætta við þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýji Björgvin G. Banka- og auðrónasleikja Hrunstjórnarinnar er nú ESB- Aðildar- sölumaður Dauðans !

Nýji Björgvin G. Sigurðsson sem nú hefur fengið nýtt nafn og númer eftir að hafa verið einn af höfuðpersónum "Hrunstjórnarinnar" er nú kominn í ný Armani jakkaföt.
 
Nú boðar hann sakleysislegur og alveg bláeygur sem fyrr mjög harða ESB innlimun og EVRU upptöku, sem sérstaka lausn.
 
Svona álíka heimskulegt og þegar hann boðaði að Ísland yrði í boði hans einskonar alheims- fjársvikamiðstöð banksterana og þeirra alþjóðlegu glæpafélaga.
 
Björgvin G. telur sig sífellt þurfa að boða þjóð sinni einhverjar guðdómlegar nýkratisma lausnir.
 
Eftir hrunið og þá niðurlægingu alla sem hann mátti þola þar, þá boðar hann nú þjóð sinni smjörgreiddur og sléttur og felldur sem fyrr og með sama falska sölumannsbrosið að selja þjóð sinni hið gerspillta og handónýta ESB stjórnsýsluapparat sem hinn mikla og óskeikula Guð, sem boðbera Stóra sannleikans og fagnaðarerindisins !
 
Fólk fellur bara ekki tvisvar fyrir svona lélegum bílasölum þó svo þeir hafi skipt um hárgreiðslu og fengið sér nýtt bindi og ný Armani jakkaföt.
 
Reyndu fyrir þér annars staðar Björgvin G. þú gjaldfellir íslensk stjórnmál enn meira en þörf er á með nærveru þinni og opinberri heimsku þinni !

mbl.is Jón hraði vinnu í aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband