Össur er óhæfur, en ekki bara það hann er líka algerlega vanhæfur: Því hann er félagi í Breska Verkamannaflokknum !

Það er alveg öruggt að Össur er af mörgum ástæðum algerlega óhæfur til að gæta hagsmuna þjóðarinnar í ICESAVE málinu.

En í annan stað er hann líka algerlega vanhæfur.

Því að ég veit ekki betur en að hann sé ennþá skráður sem félagi í Breska Verkamannaflokknum, sem hann og Björgvin G. Sigurðsson hældu sér af á velmektardögum Tonys Blair á valdastóli.

En Verkamannaflokkurinn, sem er í raun Breska Samfylkingin og sat einn á valdastóli allan tíman þegar ICESAVE var hleypt af stokkunum í Bretlandi og líka þegar það endaði meðan Gordon Brown var forsætisráðherra Breta og setti Hryðjuverkalögin á Ísland og félagi Björgvin G. sat í Armani jakkafötunum sínum með hendur í skauti og gerði ekki neitt. 

En svo í annan stað er Össur hinn "Skarpi" líka algerlega óhæfur vegna vankunnáttu sinnar og algeru skorti á trausti.

Hann hefur marg ítrekað orðið þjóð sinni til skammar á erlendri grundu með galgopahætti og orðið að atlægi á fundum með ráðmönnum ESB fyrir, hégóma sinn og barnaskap.

Síðan er hann eini maðurinn sem sagði meira að segja  eyðsvarinn í Rannsóknarskýrslu Aþingis:

"Að hann hefði ekki hundsvit á efnahags- eða peningamálum"

Þjóðin getur alls ekki treyst þessum manni til að gæta hagsmuna þjóðarinnar í þessu ICESAVE máli sem snerta hagsmuni Breta og ESB snúast þar að auki um háar fjárhæðir og túlkanir á peninga- og gjaldeyrisgerningum, sem hann hefur sjálfur sagt að hann hafi ekki hundsvit á !

Þá er veðurvitinn Árni Páll þó skömminni skárri af tveimur slæmum kostum !


mbl.is Óvíst um forræði í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ICESAVE - Hlakkar nú í mörgum ESB sinnanum því ESA hefur ákveðið að kæra okkur til EFTA dómstólsins.

Einn af þeim sem hlakkar nú í yfir þessari niðurstöðu er ESB aftaníossinn og ritstjóri Baugs-Fréttablaðsins, sjálfur Ólafur Þ. Stephensen.

En þeir eru reyndar margir fleiri sem eins og fyrrnefndur ritsstjóri börðust af öllu afli, fyrst fyrir framgangi ICESAVE I og síðan fyrir ICESAVE II og að síðustu fyrir ICESAVE III virðast af undarlegum ástæðum kætast nú yfir þessari niðurstöðu, Eftirlitsstofnunar ESA að senda málið til EFTA Dómstólsins.

Ég segi nú bara við fólk andið með nefinu og slappið af.  

Ísland hefur nú þegar þegar sloppið við að greiða "Cash" 100 milljarða í erlendum gjaldeyri bara í vaxtagreiðslur bara vegna þess að meirihluti þjóðarinnar lét ekki hræða sig með heimsenda spám og sagði þvert NEI við þessum nauðungarsamningum.

Það er því alveg sama hvernig þetta mál endar það hefur þegar sannað sig í því að NEIIÐ með því að standa gegn þessum ósvífnu og ófyrirleitnu kröfum hefur fært þjóðinni allri stórkostlegan ávinning og sigur.

Menn skulu alveg átta sig á því að þessi EFTA Dómsstóll er alls enginn "Stóri Dómur" eins og margir ESB aftaníossar og ICESAVE lúbarðir þrælar hér virðast vona og halda, heldur er þesssi dómsstóll aðeins til áréttingar og leiðbeiningar og getur á engan hátt dæmt okkur til fésekta eða til greiðslu skyldu vaxta eða kostnaðar.

Eftir kannski 2 til 3 ár þegar og ef þessum málaferlum mun þá linna er dómurinn aðeins prentuð orð á blaði og varla meira en pappírsins virði.

Líklegast er að á þessum tíma muni málinu annað hvort verða vísað frá eða það fellt niður eða samið verði um málamynda bætur til þess að því verði hætt.

Ef svo ólíklega vildi til eftir þennan tíma að okkur yrði dæmt í óhag sem kæmi reyndar ESB kerfinu og öllu því handónýta bankaeftirliti öllu verst í koll.

Þá værum við samt ekki greiðsluskyld hvorki á vöxtum eða höfuðstól.

Þessir meintu sparifjáreigendur sem þá allra líkast til væru þá þegar búnir að fá allar sínar höfuðstóls kröfur greiddar af þrotabúi Gamla Landsbankans yrðu þá að fara með málið fyrir Íslenska dómsstóla.

Ólíklegt er að þeir legðu í þann kostnað og þá áhættu eftir að vera búnir að fá þrátt fyrir allt búnir að fá höfuðsstól krafna sinna greiddan að fullu af þrotabúi Gamla Landabankans, að vísu án nokkurra vaxta, sem annars hefðu fallið á okkur og numið hundruðum milljarða af hálfu íslensku þjóðarinnar og íslenskra skattgreiðenda !  

Svei þessu ESB aftaníossaliði og ICESAVE rugl liði! 

 

 

 

 

 


Hótanir ESB- um ólögmætar viðskiptaþvinganir, vegna aþjóðlegra lögmætra veiða okkar á Makríl í okkar eigin fiskveiðilögsögu - Eru ólíðandi !

Á sama tíma og alla vegana annar hlemingur Íslenska Ríkisvaldsins á í samningum um inngöngu í þetta yfirráðasama Stjórnsýsluapparat ESB.

Þá grípa þau nú til hótana um ólögmætar viðskiptaþvinganir og ólögmætra refsiaðgerða gegn okkur ef við látum ekki tafarlaust og einhliða að vilja þeirra um að þeir skipi einhliða svo fyrir hvað við megum og eigum að fá að veiða lítið af makríl í okkar eigin fiskveiðilögsögu.

Við höfum mjög sterka þjóðréttarlega og hafréttarlega stöðu í málinu, af því að við erum sjálfsstætt fullvalda ríki en ekki innan miðstýringarapparats ESB.  Því að þá hefðum við enga stöðu í málinu.

Okkar sterka staða byggðir líka á fiskirannsóknum á makrílstofninum sem hefur undanfarin ár dvalið í íslensku fiskveiðlögsögunni umhverfis allt landið að stórum hluta.

Hér í sumar voru mæld yfir milljón tonn á beit í íslensku lögsögunni og af því veiddum við  kvótan okkar eða aðeins 148 þúsund tonn, en það er aðeins 1/3 af þeirri þyngdaraukningu sem þessi stofn sem hér var er talin hafa bætt á sig meðan hann dvaldi hér við að aféta okkar seyðabúskap og beitilönd íslenskra fiskstofna.

Við eigum að taka á hótunum þeirra af fullri hörku og einurð.

Gerum hlé á viðræðunum við ESB nú þegar eða jafnvel slítum þeim fyrir fullt og fast. Hagsmunum okkar er mikið betur borgið utan þessa skuldabandalags sem nú logar stafnana á milli af skuldum og ofstjórn en ekki hvað síst af óstjórn !

Ekki nóg með að þeir hafi lagt sín eigin fiskimið í rúst með áralangri óstjórn og ofstjórn. Þá berast nú líka fréttir af því að þeir séu langt komnir með að eyða upp fiskimiðum hinns fátæka Afríkulands Marokkó. 


mbl.is Fá frest fram í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn syrtir í álinn fyrir ESB ! Þrátt fyrir "Neyðarfund nr. 8" sem öllu átti að bjarga. Þá trúir markaðurinn ekki á nýjar umbúðir án innihalds !

Hlutabréfavísitölur um alla Evrópu falla enn og aftur að meðaltali vel yfir 3% í stærstu ESB- ríkjunum, sem er gríðarlega mikið fall á eftir allar þær hörmungar sem á undan hafa gengið.

En reyndar er lækkunin lang minnst í Bretlandi eða aðeins 1,83%.  

Þetta gerist þrátt fyrir "allar stóru aðgerðirnar" sem áttundi "Neyðarfundurinn" um helgina skilaði.

Sem reyndust reyndar þegar betur var að gáð ðeins innihaldslaust froðusnakk í nýjum en skrautlegum umbúðum skreyttum bláum gulstjörnufána þessa stjórnsýslu apparats !

Nú þarf enn og aftur að blása til enn eins "Neyðarfundarins" þar sem aftur og enn verður reynt að búa til eitthvað frekara "show" til bjargar skuldavafningnum EVRU og vonlausu og úrsérgengnu Stjórnsýsluapparati Evrópusambandsins !

Ætli að hann Össur hinn "Skarpi" sem nú er víst í höfuðstöðvum ESB Elítunnar í Brussel með sína skósveina viti nokkuð af þessu.

Sennilega ekki enn því að um um þetta leyti dags eru þeir sennilega að skála við Stefan Fulle þessum forstokkaða fyrrverandi Tékkóslavíska harðlínukommúnista og nú áróðurs- og stækkunarstjóra Sambandsins og -öðrum fulltrúum þessa yfircommisars valdaelítunnar á einum af 5 stjörnu "eðal" útvöldum hótelum ESB Elítunnar í Brussel, þar sem allt verður í boði Elítunnar sjálfrar ! 


mbl.is Töluverð lækkun á evrópskum mörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðum vilja þjóðarinnar. Kjósum strax um það hvort að eigi að halda þessri ESB vitleysu áfram !

Myndin sýnir Össur okkar hinn "skarpa" baða sig, afkáralega sigri hrósandi í bláa gulstjörnufána þessa fallandi og ráðvillta Ríkjasambands. Alveg há heilagur með báðar hendur upp til himins eins og vígður pokaprestur að blessa elskaðan söfnuð sinn.
 
Þessi mynd minnir á áróðursmyndir frá Sovétríkjunum í den þar sem framámennirnir létu ævinlega mynda sig einmitt svona sigri hrósandi með bros á vör og í grunninn voru rauðu fánarnir með gulu sigðina og hamarinn, eða eithvað af hinum nú föllnu "symbolum" kommúnismans. Össur kann þetta og nýtur þess alveg í botn. En hann hefur ekkert umboð meirihluta þjóðarinnar til þess að halda þessari vitleysu áfram, né að leiða okkur inn í þetta helsi þessa gíruga skuldabandalags.
 
Fréttin segir líka frá því að þarna töluðust þeir við gömlu kommarnir tveir þeir Össur hinn Skarpi og svo sjálfur stækkunarstjórinn Stefán Fulle sem var alla tíð framámaður í hinum harðneskjulega harðlínu kommúnistaflokki Tékkóslóvakíu, eftir Dubchek og allt þar til þeir hrökkluðust frá völdum.
 
Nú er hann komin til æðstu metorða hjá ESB elítunni sem yfircommisar útbreiðslu og áróðursmála hjá ESB stjórnsýsluapparatinu. Enginn tilviljun það.
 
Hann ætti að þekkja öll trikkinn sem þeir gömlu kommarnir beittu þar í landi í áróðri sínum og til að halda völdum án þess að almenningur skipti sér af þeim málum, svona rétt eins og þeir gera nú hjá valdaelítu ESB.
 
Geri ekkert með þessa ófaglegu og bæði villandi og leiðandi skoðanakönnun sem Fréttablaðið og hinir Baugsmiðlarnir létu gera um afstöðu fólks til þessara aðildarviðræðna.
 
Sem er svo blygðunarlaust blásinn upp sem vísindalegar niðurstöður og notuð í ómerkilegu áróðursstríðinu af úrtölu og landsöluliðinu sem vill koma okkur undir ESB helsið, sama hvað !

mbl.is Skref áfram í viðræðum við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi Arnbjörnsson - Yfirjólasveinn ESB/ASÍ Elítunnar á að segja af sér !

Maðurinn er algerlega óhæfur til að gæta hagsmuna íslenskrar alþýðu.
 
Hann er að auki algerlega umboðslaus í þessu sífellda ESB/EVRU trúboði sínu.
 
Þetta er svona jafn hættulegt og vitlaust og að hvetja fólk til að hraða sér og ganga inn í brennandi húsbyggingu, þar sem eldar loga og stórhætta er á eldssprengingu og frekari hörmungum.
 
Er maðurinn með réttu ráði?
 
Eða er hann kannski svona álíka vel að sér í efnahags- peningamálum og flokksbróðir hans sjálfur Össur hinn "skarpi" Utanríkis, sem hefur sagt eyðsvarinn í sjálfri Rannsóknarskýrslu Alþingis "að hann hafi ekki hundsvit á efnahags- eða peningamálum"
En samt þykist hann nú eins og Gylfi hafa svo mikið vit á efnahags- og peningamálum að það besta sem þjóðin gerði væri að hraða okkur inn í ESB til að geta tekið upp Evru sem allra fyrst !
 
Þessa tvo kumpána þarf þjóðin að losa sig við sem ráðmenn sem allra fyrst, það er að slá þá af sem fyrst, því fyrr því betra ! 

mbl.is Undarleg tímasetning ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ESB- og Trúða Fylkingin" eða "Litla Samfylkingin" !

Ég hélt að þeir ætluðu að kynna einhverja nýja og alvöru bitastæða stefnu þessa nýja framboðs.

En það kemur ekki margt fram hjá þeim, nema svona almennt froðusnakk og svo mikið lagt upp úr því að þykjast vera fyndnir, sem heppnast reyndar mjög illa hjá þeim.

Ætli þeir viti það nokkuð almennilega sjálfir hvert þeir stefna, ja nema að að taka upp stefnu ESB Trúboðsins á Íslandi og svo að styðja þessa Ríkisstjórn.

Mér hefur alltaf verið frekar hlýtt til Guðmundar Steingrímssonar og þetta er sjálfssagt hinn besti maður.

En mér finnst hann því miður ekkert hafa haft fram að færa í íslensk stjórnmál.

Það hefur ákaflega lítið komið frá honum og hann hefur verið einstaklega atkvæðalítill, áttavilltur og ráðleysislegur þó hann hafi verið lengi í stjórnmálum, þ.e. fyrst fyrir flokkinn sem hann var fæddur inn í með silfurskeið í munni þ.e. Framsókn og síðan í Samfylkinguna og setið á Alþingi fyrir báða þessa flokka og svo fór hann aftur í Framsókn og svo þaðan út og svo nú út í þetta og dregur einhverja parta af Besta flokknum með sér svona til uppfyllingar og til að reyna að slá sér eitthvað upp á.

Þó að forfeður hans hafi verið stjórnmálaskörungar á sínum tíma í Framsóknarflokknum, þeir Hermann Jónasson afi hans og Steingrímur Hermannsson faðir hans sem báðir voru lengi í stjórnmálum og báðir gengdu forsætisráðherra stöðum fyrir þjóð sína lengi, þá kemst Guðmundur ekki neitt nálægt því að vera með tærnar þar sem þeir voru með hælana.

Faðir hans var ákaflega frjálslyndur umbótamaður og umburðarlyndur og í flestu farsæll stjórnmálamaður. En hann gat líka gert sín mistök, en öfugt við flesta aðra stjórnmálamenn þá gat hann oftast viðurkennt mistök sín og alltaf fljótur að biðja þjóð sína afsökunar á mistökum sínum. Enda var honum líka oftast fyrirgefið.

Steingrímur var líka mikill og sannur náttúrverndarsinni og mikill baráttumaður fyrir sjálfsstæði og frelsi íslensku þjóðarinnar enda var hann harður andstæðingur ESB aðildar landsins alla tíð, enda einn af stofnendum Heimssýnar, þ.e. sjálfsstæðissinna í ESB málum og var þar virkur félagi fram á síðustu ár meðan heilsa hans leyfði.

Ég spái þessu framboði sem ég vil helst kalla ESB & Trúðafylkinguna einhverju froðufylgi til að byrja með í næstu skoðanakönnunum, en þegar nær dregur kosningum munu þeir missa flugið og trúverðugleikann að mestu.

Hugsanlegt þó að þeir nái inn 2 til 4 mönnum, en það verður þá alfarið á kostnað Samfylkingarinnar sem á þó örugglega eftir að tapa meiru fylgi en bara til þessa flokks.  


mbl.is Nýtt nafnlaust stjórnmálaafl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setjum ESB umsóknina alla á "ATHUGUNARLISTA" og stöðvum BLINDFLUGIÐ til Brussel !

Í framhaldi af þessari niðurstöðu Standard & Poor´s væri það rökrétt niðurstaða að setja alla kafla þessarar ESB umsóknar á ís, á meðan farið væri í rækilega og óháða athugun á öllum ferlum þessarar umsóknar.

Það er mikil ábyrgð að ætla að láta soga þjóðina ofan í þetta yfirveðsetta skuldavafnings svarthol sem ESB/EVRU svæðið er orðið.

En "Einkaflipps- Þota Samfylkingarinnar" heldur áfram þessu þjóðhættulega blindflugi til Brussel með alla þjóðina innanborðs og við stýrið situr enginn annar en yfirflugstjórinn Össur hinn Skarpi.

Þessi sá hinn sami sem sagði eyðsvarinn í Rannsóknarskýrslu Alþingis: 

"Að hann hefði ekki hundsvit á efnahags- eða peningamálum"

Það sama á við nú að hann hefur heldur ekki hundsvit á flugvélum eða hvernig eigi að stýra þeim og hvað þá í blindflugi á hraða hljóðsins.

Samt hefur hann gefið enn meira í, við hverjar hörmungarfréttirnar sem berast af kreppunni og vandræðunum frá Brussel.

Hróðugur og bísperrtur segist hann engan tíma mega missa !

Mikill og vaxandi meirihluti farþegana vill samt alls ekkert fara til Brussel, hann vill þegar snúa vélinni heim og fá einhvern af farþegunum sem hefur full flugstjórnarréttindi til þess að setjast í yfirflugstjórasætið.

Sumir höfðu verið lokkaðir um borð af því að þetta væri einskonar huggulegt könnunarflug yfir Brussel með góðum fararstjórum og fríjum og huggulegum veitingum.

En svo hefði fljótlega komið í ljós að þetta væri aðeins "one way ticket flight"

Yfirflugstjórinn segði að það ætti að lenda vélinni í Brussel, sama hvað hver segði. Þá reyndar mættu farþegarnir fá að kjósa um það hvort að vélin ætti að halda kyrru fyrir eða fljúga heim á leið. En sú kosning væri aðeins leiðbeinandi en ekki bindandi fyrir flugáhöfnina, sem réði hér för.

Mikill ágreiningur virðist samt vera meðal sumra áhafnarmeðlima og oftsinnis hefur heyrst hávaða rifrildi úr flugstjórnarklefanum og stundum hefur vélin tekið óþægilegar dýfur og síðan verið flogið í nokkra hringi, áður en sama stefnan virtist aftur vera tekin á ný.

Óhug sló að farþegunum þegar fréttist  að 3 úr áhöfninni hefðu hent sér fyrir borð í fallhlífum yfir Færeyjum.

En bæði yfirflugstjórinn, fyrsti flugstjóri og sjálf Yfirflugfreyjan hafi öll reynt að róa mannskapinn og sagt að þetta skipti alls engu máli og hefði enginn áhrif á þetta frábæra flug. "Þeim brást víst örendið" heyrðist Fyrsti flugstjóri tauta við Yfirfreyju. 

Síðan gengju flugþjónarnir sífellt um vélina með einhverja staðlaða tékklista og spyrðu farþegana í þaula furðulegra og áreitinna spurninga um hitt og þetta, sem þeir margir hverjir kærðu sig ekkert um að svara. Jafnframt lásu þeir upp einhvern óskiljanlegan tilskipunarlista og sögðu að þetta væri gert til að uppfræða þá hlutlaust um göfug grunngildi hinns "Evrópska samrunaferils"

Þegar farþegarnir spyrðu hverju þetta sætti þá segðu þau bara að þetta væri partur af bráðnauðsynlegu aðlögunarferlinu ! Aðlögunarferli hvað ? spurðu margir á móti, en fengu enginn svör. 

Meirihluti farþegana væri orðinn öskureiður og sumir steittu hnefana að áhöfninni.

En þá hafi yfirflugstjórinn ásamt Yfirfreyju tilkynnt til að reyna að róa mannskapinn að nú myndi áhöfnin dreifa seðlabúntum meðal farþeganna og það meira að segja í Evrum.

Þetta væru sérstakir svokallaðir IPA aðlögunarstyrkir sem væru óafturkræfir og væru til þess að auðvelda fólki aðlögunina og lífið eftir lendinguna í Brussel.

Þessi tilkynning hafði lítið að segja til að sefa reiði flestra farþegana á almenna farrýminu, margir bölvuðu og rögnuðu og sögðust aldrei þyggja svona mútufé.

Að vísu klappaði lítill og einangraður hópur farþega sem sat á SAGA CLASS fremst í vélinni, um leið og þeir otuðu höndunum í átt að flugþjónunum í von um að verða fyrstir til að ná til sín sem mestu af þessu óvænta fé, sem þegar var byrjað að útdeila þar. 

Blindfglugið til Brussel heldur víst enn áfram, með yfirflugstjóra sem aldrei mun geta lent vélinni ólaskaðri og með sífellt fleiri reiðum og örvæntingarfullum farþegum.

En spurningin er, mun hluti áhafnarinnar og farþegarnir gera uppreisn og snúa vélinni heim aftur áður en kemur að óhjákvæmilegri brotlendingu vélarinnar á Brussel völlum ? 


mbl.is Allt evrusvæðið á athugunarlista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG - Forystan með ESB þjónkunn sinni, alveg að verða búinn að eyðileggja þetta sem var hér áður, eina raunverulega vinstra afl Íslenskrar alþýðu !

Ekki er ég hissa á að þessi unga, gáfaða og vel hugsandi kona og nú fyrrverandi formaður "Ungra Vinstri Grænna" Brynja Halldórsdóttir skuli nú á endanum eftir endalaus vonbrigði segja sig úr flokknum sem eitt sinn var að hennar og margra annarra mati flokkur staðfestu og þjóðfrelsis.

Flokkurinn og forysta hans er fyrir löngu búinn að missa allt raunverulegt jarðsamband við "grasrótina" í flokknum og ekkert bendir til annars en þeir verði bara áfram auðmjúk og sífellt eftirgefandi hækja Samfylkingarinnar.

Um fjórðungur þingmannaliðs sem kosinn var af stuðningsmönnum flokksins í s.l. kosningum er nú genginn fyrir borð og hefur sagt skilið við flokkinn og annar fjórðungur sem þó enn eftir situr er niðurlægður og er samt á báðum áttum.

Áfram keyrir samt formaðurinn SJS og harðlínuklíkan í kringum hann, þetta hroðalega ESB- stef og þetta þjóðhættulega blindflug til Brussel í boði Samfylkingarinnar. 

Þetta eru einhver mestu pólitísku vonbrigði sem ég hef upplifað og það á við um mörg þúsundir annarra íslendinga sem í sannfæringu sinni köstuðu atkvæði sínu á þetta pólitíska afl sem ég í reiði minni kalla nú ekkert annað en "flokksskríbbli" og ómerkilega hjáleigu og hundakofa Samfylkingarinnar ! 

 


mbl.is Segir sig úr VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Kínverski Kommúnistinn, Huang Nubo sé orðinn félagi í Samfylkingunni, eða með sérstakaka óskráða auka- og velvildaraðild ?

Það mætti ætla að Kínverjinn Huang Nubo sé genginn í Samfylkinguna.

Eins og æðstu menn þar á bæ snúast nú fyrir hann.

Nú leitar þetta lið logandi ljósi að því að sniðganga eða finna smugur í íslenskum lögum til þess að fá Huang Nubo háttsettan félaga í Kommúnista flokki Kína og milljarrðamæring til þess að koma hér að málum.

Þó svo að Huang Nubo sé félagi í Kommúnistaflokki Kína þá er víst ekkert að því að hann gerist líka félagi í svona andlega skyldum flokki eins og Samfylkingunni á Íslandi.

Þetta gerðu a.m.k. þeir Össur Skarphéðinsson og stórsnillingurinn Björgvin G. Sigurðsson "Hinn fyrsti"  þegar þeir hældust yfir því að vera orðnir gildir meðlimir í Breska Verkamannaflokknum, þeim sama og setti svo hin alræmdu "hryðjuverkalög á Ísland".

Annars gæti líka verið að Huang Nubo sé bara svona óskráður auka- og velvildar meðlimur í Samfylkingunni.

Svona svipað og Jón Ásgeir Jóhannesson var fyrir "Hrunið"

En svoleiðis óskráð auka- og velvildar aðild að Samfylkingunni mun víst kosta miklu mun meira en venjuleg félagsjöld kosta hinn almenna félaga.

Því eins og sannaðist með Jón Ásgeir þá kostaði þessi sérstaka auka- og velvildar aðild hans tugir milljóna króna í flokksssjóði Samfylkingarinnar og einnig þurfti hann líka að bera fé á ýmsa frambjóðendur flokksins og það líka á hinum ýmsu kennitölum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband