Óvild, öfund og beint hatur Eiðs Guðnasonar á forseta vorum hefur aldrei leynt sér.

Það er ekkert nýtt að Eiður Guðnason ati forseta vorn aur og drullu.
 
Það hefur hann gert reglulega en mjög ómálefnalega í áratugi, að því er virðist af öfund og blindu pólitísku hatri einu saman.
 
Nú þegar forsetinn hélt sína langbestu, en væntanlega síðustu áramótaræðu og sagði þá "að þó ákveðin þversögn fælist í því" og hélt svo áfram nokkurn vegin svona: að þá teldi hann að á þessum erfiðu og víðsjárverðu tímum myndi reynsla hans og þekking nýtast þjóð sinni enn betur utan forseta embættisins, heldur en í því.
 
Þá gæti hann barist fyrir málsstað þjóðar sinnar á hans eigin forsendum og talað frjálst til þjóðarinnar, en ekki í viðjum embættisins.
 
Það sem hefur kannski gert sendiherrann fyrrverandi svona öskureiðan var það að Ólafur Ragnar stappaði svo sannarlega stálinu í þjóðina sína og talaði þar gegn úrtöluliðinu sem vill beina leið inn í ESB helsið með betlistaf !
Að minnsta kosti fjórum sinnum í aðeins 20 mínútna langri áramótaræðu sinni mælti forsetinn okkar enga tæpitungu gegn ESB aðild.  
 
Það var öllum ljóst sem lögðu vel við hlustir, þó svo hann gerði það mjög snilldarlega undir rós (samt ekki neinni kratarós).
 
Það er einmitt svona rósamál sem sendiherrum er kennt að skilja og þess vegna skilur Eiður Guðnason orð forsetans svona bæði vel, en samt svona illa fyrir hann sjálfan.
 
Nú er ESB liðið eins og Eiður Guðnason og Guðmundur Andri Thorsson skjálfandi á beinunum, því að þetta auma lið með sitt sáralitla fylgi vill miklu heldur að Ólafur verði forseti áfram þar sem hann gæti lítið beitt sér.
 
Frekar en hann stigi nú úr þeim stóli og beiti sér af fullu afli gegn ESB aðildinni og því skrifræðis helsi öllu sem það myndi færa þjóðinni.
 
Ólafur Ragnar myndi sópa fylgi að nýrri hreyfingu sem hafnaði ESB aðild og setti fullveldi og sjálfsstæði þjóðarinnar á oddinn, á því er enginn vafi.

mbl.is Sakar Ólaf Ragnar um óvirðingu við þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI TAKK, Jón Gnarr - Þú hefur þegar sýnt það að þú ert óhæfur sem borgarstjóri !

Þó Jón Gnarr sé ekki slæmur maður og ágætis grínari fyrir sumra smekk. Reyndar er svona aula húmor hans ekki fyrir minn smekk, en það skiptir engu máli.

Þá hefur hann algerlega sýnt það að hann er gjörsamlega óhæfur sem stjórnandi, eins og til að mynda borgarstjóri eða að geta verið almennilegur stjórnmálamaður.

Hvað þá ef svo slysaðist til að við fengjum þennan "trúð" sem forseta þjóðarinnar.

Það væri þvílíkur skandall fyrir okkur sem þjóð og sjálfsmynd þjóðarinnar.

En einnig og ekki hvað síst á alþjóða vettvangi, eftir að hafa nú um langt skeið haft yfirburða skarpan og greindan forseta eins og Ólaf Ragnar Grímsson sem forseta okkar, sem hefur áunnið sér gríðarlega virðingu og jákvæða eftirtekt um víða veröld fyrir skörungsskap sinn og yfirburða þekkingu á málefnum þjóðar sinnar og alþjóðamálum almennt.

Þar áður höfðum við svo þau Vigdísi og Kristján sem bæði skiluðu hlutverki sínu í embætti með miklum sóma og af djúpri virðingu fyrir þjóð sinni og öðrum þjóðum einnig.  Þó á annan hátt væri, að ýmsu leyti, en hjá Ólafi Ragnari, enda aðrir tímar uppi þá og Ólafur verið mun aðsópsmeiri og umdeildari, þá hefur hann samt notið virðingar bæði velunnarra og þeirra sem ekki hafa stutt hann.

Nei takk, ég held að þjóðin muni sem betur fer ekki taka þessar yfirlýsingar Jóns Gnarrs alvarlega !  


mbl.is Jón íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt nýtt ár - Feliz ano nuevo !

Óska öllum bloggurum, vinum og ættingjum nær og fjær gleðilegs nýs árs með þökk fyrir það gamla.
 
Vonum að nýja árið færi okkur öllum gleði, hamingju og góða heilsu.
 
Ég ætla svo sannarlega að halda áfram að blogga hér á Mbl.is og leggja mitt litla vogarlóð af mörkum við að herða á baráttunni gegn ESB- innlimun míns ástkæra föðurlands og heittelskuðu þjóðar.
 
Þó svo ég hafi nú undanfarið búið í meira en 6 ár í ESB ríkjunum Bretlandi og nú á Spáni, þá fylgist ég alltaf mjög vel með þjóðmálunum heima og heimsmálum almennt og er vel tengdur við landið mitt, þar liggja rætur mínar og taugar.
 
Reynsla mín að hafa búið og starfað í þessum löndum hefur líka kennt mér ýmislegt um galla ESB og EVRU aðildar og það hefur gert mig enn andsnúnari ESB aðild Íslands.
Einnig áttar maður sig alltaf betur og betur á því hvað Ísland er í raun þrátt fyrir allt gott og kraftmikið þjóðfélag, sem á gríðarlega bjarta framtíð fyrir sér sem sjálfsstætt og fullvalda ríki, án ESB helsis og skrifræðis. 

VG - Á að hafa kjark og þor til að segja "Hingað og ekki lengra" Annars slítum við bara þessu stjórnarsamstarfi sem einkennst hefur af yfirgangi og frekju Samfylkingarinnar !

Ragnar Arnalds er heiðarlegur og snjall heldri maður sem var vinsæll stjórnmálamaður og naut virðingar langt út fyrir raðir síns gamla flokks.
 
Hann hefur alltaf viljað standa vörð um sjálfsstæði þjóðarinnar og varðveislu lýðveldisins. Hann veit því nokk hvað hann syngur sá gamli.
 
Forystu VG veitti sko ekki af að hlusta meira á hann og hafa hlustað á hann miklu fyrr.
Það er með ólíkindum að SJS og forysta VG ætli að láta Samfylkinguna kúga sig svona sundur og saman, með sífelldum blekkingum og lygum í ESB málunum.
Ef SJS ætlar ekki að brenna allar brýr að baki sér og eyðileggja grasrót og bakland Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, þá náttúrulega hafnar hann algerlega þessum yfirgangi og kröfum Samfylkingarinnar sem eru ættaðar beint frá Brussel.
 
Ef hann hinns vegar vill brenna allar brýr að baki sér, eins og enginn sé morgundagurinn og valta endanlega yfir kjósendur VG og ganga þar með endanlega frá flokknum dauðum þá knýr hann þessar kröfur í gegnum ógnartök sín á flokksforystunni strax í kvöld.

mbl.is Segir Jóhönnu ganga erinda ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG NIÐURLÆGÐIR - Enn og aftur beygir flokksforystan sig í duftið fyrir yfirgangi Samfylkingarinnar !

Það er með ólíkindum hvað formaður VG virðist ávallt vera tilbúinn að ganga langt í að eyðileggja sinn eigin flokk, stefnu hans og hugssjónir og tæta af honum fylgið, bara til þess að þjónkast Samfylkingunni.
 
Hann gefur enn og aftur eftir á öllum sviðum, enginn prinsipp lengur, nú er landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytunum báðum sópað burt og fórnað fyrir Samfylkinguna og ESB trúboð þeirra, bara af því að þar situr maður sem er trúr stefnu og hugssjónum VG um að; "Íslandi sé best borgið utan ESB".
 
Yfirgangur Samfylkingarinnar er með þvílíkum ólíkindum, en það er reyndar vegna þess að þeim hefur af samstarfsflokknum alveg frá upphafi og enn og aftur síðan verið leyft að komast upp með þessa taumlausu frekju og yfirgang.
 
Svo á að stofna eitt atvinnumálaráðuneyti, þar sem landbúnaðar-sjávarútvegs- og iðnaðarmál verða á einni könnu.
Hverjir skildu nú vera búnir að eigna sér þá könnu ?
Jú nefnilega Samfylkingin, þeir eru þegar farnir að rífast um það hverjir þeirra eigi að hreppa það embætti.
 
Þessa gjörninga og þessa niðurlægingu ætlar formaður VG að láta yfir sig og flokk sinn ganga algerlega bótalaust. Ja nema að hann fær að hanga eitthvað lengur á stólnum sínum.
 
Ég segi nú sem fyrrverandi stuðningsmaður þessa annars fyrrum ágæta flokks að það er ljótt hvernig formaðurinn SJS hefur gefið eftir eða svikið hugssjónir flokksins aftur og aftur og hreinlega niðurlægt sjálfan sig en ekki hvað síst sjálfa kjósendurna, sem sitja eftir svektir og reiðir ! 
 
Það er nú svo komið að það þarf hreinlega að gera uppreisn gegn formanninum og forystu þessa flokks.
Það verður reyndar ekki gert á þessum svokallaða 100 manna "Flokksráðsfundi" sem er ekkert annað en valdastofnun foringjaræðisins, eins konar draugur eða arfur frá Stalíns tímanum.
 
Það er því miður þannig að þrátt fyrir að VG hafi gefið sig út fyrir að vilja vera lýðræðislegt afl alþýðunnar og vilja berjast fyrir hagsmunum hennar, þá hefur grasrótin, þ.e. alþýðan ákaflega litla aðkomu eða möguleika á að hafa eitthvað að segja um stefnu og starf flokksins.
Vegna þess að nánast allar alvöru valdastofnanir flokksins eru meira og minna gamaldags og lokaðar og hlutum þannig komið fyrir að innstu koppar í búri þar, eru yfirleitt þæg handbendi flokksræðisins !

mbl.is Ráðherraspilin stokkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig á maðurinn yfirleitt að tjá sig. Allt tóm svik og ekki síst ESB klúðrið !

Auðvitað getur SJS illa tjáð sig.
Búinn að svíkja megnið af fólkinu í flokknum og ekkert er slegið af fláræðinu og svikunum.
Nú skal Jóni Bjarnasyni líka hent fyrir borð, í nafni Samfylkingarinnar !
 
Endalaust skal haldið áfram svikum og svínaríi og þjónkun við tækifærismennskuna í Samfylkingunni með ESB málið eitt mála á oddinum.
 
Er nema að furða að VG sé búið að missa 3 góða og gegna þingmenn fyrir borð og meira en helmingin af fylginu !

mbl.is Steingrímur vill ekki tjá sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður Jón Bjarnasyni fórnað ! - Það er aðalmálið og þá er vonandi úti um þessa aumu ESB- Ríkisstjórn !

Skil ekki hvað þau eru að reyna að hanga þetta lengur á völdunum.
 
Þjóðin vill ekki sjá þessa Ríkisstjórn lengur og þjóðin vill alls ekki ESB aðild.
 
Þrír þegar stokknir fyrir borð af þingmönnum VG, vegna þýlindis og þjónkunnar Steingríms J. og forystu VG við Samfylkinguna og flokkurinn er rjúkandi rústir á eftir.
 
Ábyggilega eru þau nú að leggja á ráðin um að koma Jóni Bjarnasyni fyrir kattarnef, þess vegna er nú leitað logandi ljósi að finna einhverjar mútuþægar varaskeifur til að þau geti áfram hangið á völdunum og haldið áfram þessu ESB- rugli að kröfu Samfylkingarinnar !
 
Yfirgengilegt þetta ESB- rugl sem hefur á versta tíma, sundrað þjóðinni miklu meir og verr en frá sjálfri  Sturlunga öld ! 

mbl.is Breytingar á ríkisstjórninni ræddar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól til allra hér á mbl.is og vina og vandamanna nær og fjær.

Héðan frá Spáni sendum við jólakveðjur til allra vina okkar og vandamanna nær og fjær, svo og allra hér á Mbl.is.
 
Vonum að jólahátíðin færi ykkur öllum frið, kærleika og gæfu.
 
Hér á Costa Blanca strönd Spánar er blíðskapar veður nú á aðfangadag jóla 16 stiga hiti og sól.
 
Að Kaþólskum sið byrja nú ekki nein jól hér fyrr en á morgun jóladag, en aðal jóladagurinn þeirra er samt ekki fyrr en 6. januar á degi konunganna þriggja, það er vitringana þriggja, sem þeir segja að hafi ekki heimsótt Jesú barnið fyrr en á þrettánda degi jóla.
Þá ríða hér að fornum sið um borg og bæi, 3 prúðbúnir konungar og dreifa sælgæti til barna og unglinga. 
 
En við ætlum að hafa þetta upp á okkar gamla sið og hér mun hátíðin byrja hjá okkur hjónakornunum í kvöld kl. 19 að spænskum tíma sem er kl 18 að íslenskum tíma og þá ætlum við að hlusta á gömlu góðu Gufuna hringja inn jólin, gegnum netið.
Síðan borðum við íslenskt hangiket með uppstúf og alles og hlustum á íslensku jólamessuna frá Dómkirkjunni.
 
Á morgun förum við svo í jólaboð til enskra vinahjóna okkar sem búa norður af Alicante og eyðum með þeim jóladeginum og förum ekki heim fyrr en daginn eftir.
 
Ég er búinn að lofa konuni að vera ekki með neitt ESB- rugl um jólin, þannig að það verða engar bloggreinar um ESB hjá mér nú um sinn, enda á maður ekki að láta svoleiðis hégóma skemma fyrir sér góða jólaskapið! 
 
Gleðilega hátíð - Feliz Navidad 

Össur og stóra ESB- Gulrótin; Heldur hann að þjóðin hans séu ASNAR ?

Þá á ég auðvitað við ferfætlingana sem nefnast ASNAR og hafa verið plataðir til að hlaupa endalaust eftir gulrótum og öðru grænmeti sem er dinglað fyrir framan þá bundna í bandi á stöng.  
 
"Þið eruð ekki þjóðin" sagði fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar.
En Össur hefur greinilega fundið þjóðina sem var "ekki þjóðin".
 
Össur og Samfylkingin halda nefnilega að þjóðin þeirra séu ASNAR sem hægt sé að plata inní ESB með lygasögum um ofvaxnar GULRÆTUR  !
 
Nú ætlar hann að reyna að nota þessa stóru gulrót til að þess að reyna að tæla þjóðina sína eins og hverja aðra ASNA alla leið til Brussel og inní ESB Asna-réttina þar ! 
 
En þessi Stóra ESB Gulrót hans Össurar stækkar sennilega í hvert skipti sem Össur lýgur að okkur um dýrðir ESB- apparatsins, svona álíka og nefið á Gosa.
 
En allir sem þekkja eitthvað til grænmetisræktunar vita auðvitað að stórar og úr sér sprottnar gulrætur eru bæði trénaðar og óætar með öllu.
Ekki einu sinni nothæfar til sultu- eða grautargerðar.
 
En af því að íslenska þjóðin mun ekki láta Össur plata sig með þessari trénuðu ofvöxnu gulrót þá gæti hann kannski fært hana ESB- Commmiserunum í Brussel að gjöf, það gæti verið að hún gæti komið sér vel þar í enn eina naglasúpuna sem þeir eru sífellt að sjóða til lækningar og björgunar þessum fársjúka skuldavafningi Evrunni.
 
Sem nú allt í einu hefur einhverja hönnunargalla segir Össur !

mbl.is „Liggur á að komast út úr þessu endemis rugli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur sagði Eiðsvarinn í Rannsóknarskýrslu Alþingis; "Að hann hefði ekki hundsvit á efnahags- eða peningamálum"

Samt á að treysta honum til að leiða þetta vandasama ICESAVE mál, þar sem tekist verður á um gríðarlega háar fjárhæðir og flóknar greiðsluskuldbindingar.
 
Össur hefur sjálfur lýst sig eiðsvarinn algjörlega óhæfan til að hafa vit á þessum málum.  
Hann er því augljóslega algerlega óhæfur til þessa verks og þeir sem fá hann til þess eru líka óhæfir til að gæta hagsmuna þjóðarinnar.
 
Í annan stað er Össur ekki bara algerlega óhæfur því að hann er líka það sem kallað er "vanhæfur" því að því að ég best veit þá er hann félagi í Breska Verkamannaflokknum og búinn að vera allt frá velmektarárum Tonys Blairs.
 
En Breski Verkamannaflokkurinn leiddi Ríkisstjórn Bretlands allt frá því að ICESAVE var stofnað þar og þar til það hrundi síðan og í framhaldinu setti Breska Verkamannaflokksstjórnin hin endemis frægu hryðjuverkalög á Ísland.
 
Af þessum sökum er Össur ekki hlutlaus og er því algerlega vanhæfur til þess að gæta hagsmuna þjóðarinnar.
 
Í þriðja lagi hefur hann sýnt af sér þvílík undirferli og klækjastjórnmál í sambandi við þessa ESB umssókn og þar margsinnis verið staðinn að blekkingum og lygum að hann nýtur ekki neins trausts þjóðarinnar lengur.
 
Síðan til að bæta gráu ofan á svart þá hefur hann margsinnis og ítrekað orðið þjóð sinni til stórskammar á erlendri grundu og sjálfum sér til atlægis vegna galgopaháttar og hreinnar glópsku í yfirlýsingum sínum og með samskiptum sínum við æðstu yfirmenn í Brussel.
 
Fari þessi Ríkisstjórn, Norður og Niður - Því fyrr því betra !

mbl.is Össur fer með Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband