Færsluflokkur: Evrópumál

Aðför hafin að tjáninga- og skoðanafrelsinu í Frakklandi. Le Pen saksótt fyrir að skýra frá staðreyndum !

Tjáninga- og skoðanafrelsið á nú undir högg að sækja víða í hinum vestræna heimi. Nú er gerð lúaleg pólitísk aðför að Marine Le Pen formanni FN fyrir það eitt að skýra frá staðreyndum og birta myndir af voðaverkum ISLAMISTA um allan heim. Nú lætur hinn pólitíski rétttrúnaður með forseta Frakklands í broddi fylkingar finna fyrir sér og nú skal pólitískum andstæðingum eins og Le Pen komið fyrir kattarnef og hún svipt þinghelgi og komið í fangelsi fyrir það eitt að nota stjórnarskrár bundinn rétt sinn til skoðana- og tjáningafrelsis og að birta myndir og staðreyndir um morð og grimdarverk ISLAMISTA og vara fólk við þeirri hugmyndafræði illsku og haturs sem þar býr að baki.

Það mætti segja mér að þetta snúist illilega í höndunum á andstæðingum Marine Le Pen og þessar lúalegu pólitísku ofsóknir muni stórauka vinsældir hennar og gera hana að næsta forseta Franska lýðveldisins.


mbl.is Le Pen svipt þinghelgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósum EKKI vinstri-pírata glundroða stjórn. Úttekt á stjórnmálunum - Hér vantar þjóðlegan flokk sem þorir að hafa sjálfsstæða stefnu í innflytjanda málum.

Við sem viljum öðruvísi stjórnmál eða fylgjum ekki hinum pólitiska rétttrúnaði eigum svolítið erfitt með að ákveða hvert við hendum atkvæði okkar í þessum kosningum.

Eitt er alveg öruggt að við hendum ekki atkvæði okkar á vinstri glundroða flokkana þ.e. Samfylkingu, VG eða Pírata og heldur ekki á ESB hægri kratana í Viðreisn.

Þá eru eftir Sjálfsstæðisflokkur, Framsókn, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins.

Stutt úttekt á göllum og kostum þessara flokka.

Sjálfsstæðisflokkur.

Kostir; Við vitum nokkuð hvar við höfum hann. Flokkurinn hefur djúpar rætur meðal þjóðarinnar, er nokkuð þjóðlegur, er gegn ESB aðild og bíður ákveðinn stöðugleika og er treystandi í efnahags- og skattamálum. Flokkurinn ver vestræn gildi.

Gallar;Flokkurinn er of kratavæddur, ekki vel treystandi í ESB málum, of mikill kerfisflokkur og of hagsmunatengdur Síðast en ekki síst hefur flokkurinn ekki haft kjarkinn til þess að taka á innflytjendamálum með röggsemi og hefur endalaust gefið eftir. 

Hæfasta fólkið. Ásmundur Friðriksson, Brynjar Níelsson, Sigríður Anderssen og Óli Björn Kárason.

Óhæfasta fólkið. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir.

Framsókn.

Kostir. Elsti stjórnmálaflokkur landsins, gefur ákveðinn fyrirheit um stöðugleika, Er þjóðlegur flokkur gegn ESB aðild. Styður íslenskan landbúnað og landsbyggðina. 

Gallar; Of tækifæris sinnaður flokkur. Ekki vel treystandi í ESB málum. Hafa elt vinstri flokkana í vitleysunni og því reynst alveg vita gagnslausir í að standa gegn frekari opnunum í innflytjendamálum.

Hæfasta fólkið. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, Jón Ingi Gíslason.

Óhæfasta fólkið. Eygló Harðardóttir.

 

 

Miðflokkurinn.

 

Kostir; Flokkurinn er lausnamiðaður með hæfan formann. Gegnheill á móti ESB. Kemur með nýjar hugmyndir.

 

Gallar; Hefur ekki nýtt tækifærið til þess að fara gegn hinum pólitíska rétttrúnaði í innflytjendamálum og varla að búast við því.

 

Hæfasta fólkið; Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorsteinn Sæmundsson, Sveinn Hjörtur Guðfinnsson.

 

Óhæfasta fólkið; Gunnar Bragi Sveinsson og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir.

 

 

Flokkur fólksins. 

Kostir; Nýr flokkur með harðar áherslur á að bæta kjör eldri borgara og öryrkja.

 

Gallar; Flokkurinn hefur slegið í og úr og nú aðalega úr í innflytjendamálum. Flokkurinn var í dauðafæri til að setja þessi mál á dagskrá og þora að hafa aðra stefnu í þessum málum en formaðurinn því miður þorði ekki.

 

 

Hæfasta fólkið. Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason

 

Það skiptir sannarlega máli hvernig þessar kosningar fara.

Auðvitað hefði verið best að við sem stöndum fyrir þjóðlegri stefnu og viljum fara mjög varlega í innflytjendamálum, erum hörð gegn ESB og viljum út úr Schengen og endurskoðun EES samningsins værum búinn að skipuleggja okkur í öflugum stjórnmálaflokki. 

Það mistókst með Þjóðfylkingunni og var endanlega klúðrað nú í aðdraganda þessara kosninga. Það tókst því miður ekki að sveigja nýju stjórnmálaflokkana Miðflokkinn eða Flokk fólksins inná þessa stefnu. Það náðist aðeins viðspyrna hjá Sjálfsstæðisflokknum og þar sjást aðeins merki um breytta stefnu en engan veginn nóg.

Frelsisflokkurinn sem stofnaður var í sumar og ég er formaður fyrir hefur verið að forma stefnu sína og störf. En við vorum engan veginn tilbúinn í þessar óvæntu kosningar að þessu sinni. Við gerðum því rétt í því að sitja hjá í þetta skipti.

En það er algerlega ljóst að sjónarmið okkar verða að ná fram og það er mikill hljómgrunnur fyrir okkar sjónarmið og það hefur sýnt sig um alla Evrópu að það verður enginn raunhæf breyting á hinum pólitíska rétttrúnaði nema stjórnmálahreyfing með þessi sjónarmið nái fótfestu, þá fyrst fara hinir borgaralegu flokkarnir að sveigja stefnu sína í átt til okkar.

Okkar tími mun koma, en núna kjósum við næst skásta kostinn !


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB Benzi reynir að smygla okkur inná Evru svæðið með því að Evru væða svarta markaðinn.

Þessi fjarmálaráðherra Viðreisnar er gersamlega galinn. Nú vill hann beita allra bragða til þess að grafa undan efnahagslegu og stjórnarfarslegu sjálfsstæði þjóðarinnar og jafnframt níðast á almenningi. Hans eina hugssjón virðist vera að koma þjóð sinni á vonarvöl þannig hann geti fengið órum sínum framgengt um að ýta þjóð sinni inn í svart hol Evrópusambandsins.

 


mbl.is 10.000 króna seðillinn úr umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boris Johnsson er trúr og sannur ESB andstæðingur. Gæti leitt Bretland farsællega út úr ESB.

Bretland þarf á sterkum og góðum leiðtoga að halda nú, þegar sundrungar liðið reynir allt hvað það getur til að koma í veg fyrir að ákvörðun þjóðaratkvæðagreiðslunbar, BREXIT um úrsögn úr Evrópusambandinu gangi eftir og verði að veruleika ! RÚV sendi Boga Agústsson fréttamann til Bretlands gagngert til þess að reyna að koma í veg fyrir ESB úrsögnina !


mbl.is Tekur Boris Johnson við af May?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður þetta stórsigur fyrir Theresu May og Breska ihaldsflokkinn. Nauðsynlegt að styrk forysta leiði Bretland til sóknar og út úr ESB !

Það mætti segja mér að sigur Theresu May yrði enn meiri en skoðanakannanir og fjölmiðlar hafa látið uppi. RÚV sendi Boga Ágústsson fréttamann til London og alveg augljóst á pistlum hans að vinstri hallinn og vinstri hlutdrægnin er enn með ólíkindum hjá þessum svokallaða óháða fréttamiðli eins og í öllum kosningum og í allri þjóðfélags umræðu undanfarinna ára.

RÚV er sérlega illa við Theresu May eins og alla stjórnmálamenn austan hafs og vestan og hérlendis líka sem ekki vilja í blindni leita leiðsagnar ESB valdsins í Brussel.

Það er mjög mikilvægt fyrir lýðræðið og þjóðfrelsið að Theresu May takist af festu og öryggi að fylgja eftir úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um BREXIT og leiða Bretland farsællega út úr hinu miðstýrða og vonlausa stjórnsýsluapparati Evrópusambandinu !

Þessvegna er RÚV og Brussel elítan á móti sigri hennar !


mbl.is Hvenær liggja úrslitin fyrir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð og Framfarafélagið með nýja og öðruvísi sýn á íslensk stjórnmál ?

Það er mikil þörf á að vettvangur skapist til að almenningur í landinu geti fengið opin tækifæri til að koma fram með nýjar tillögur um framþróun íslensks samfélags og hvert beri að stefna. Mörgum finnst sem hin pólitíska elíta stjórnmálaflokkana allra spegli ekki lengur skoðanir og væntingar almennings heldur séu þeir aðeins meðvirkir í að dansa hinum pólitíska rétttrúnaði lof og prís.

Ýmis mál fást alls ekki rædd eða eru aldrei tekin á dagskrá  íslenskra stjórnmála vegna hræðslu- og vesældóms íslenskrar stjórnmálastéttar við ægivald RÚV og flestra fjölmiðla sem eru ofurseldir hinum pólitíska rétttrúnaði. 

Gæti Framfarafélagið kannski orðið frjósamur farvegur til þess að þau sjónarmið fáist rædd af einhverri skynsemi og yfirvegun, en séu ekki endalaust fótum troðin af öfgum og heift hinns pólitíska rétttrúnaðar ?

Ég hvet allt áhugafólk til að mæta á fundinn í Rúgbrauðsgerðinni kl. 11.oo á laugardaginn og sjá hvað Sigmundur Davíð og Framfarafélagið hafa fram að færa !


mbl.is Vigdís gengur í Framfarafélagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hét Salman Abedi, Islamski morðingin í Manchester. ISIS ríki Islam lýsir hróðugt yfir ábyrgð á viðbjóðnum.

22 eru látnir og 59 eru sárir. Meira en helmingur fórnarlambana voru börn. Riki Islam ISIS lysir hróðugt yfir ábyrgð á árás þessa 22ja ára Islamista, en hann var flóttamaður frá Lybiu.

Hefði svona viðbjóðslegur terror getað skeð hér á tónleikum Ramstein í Kórnum um siðustu helgi. Mannfjöldinn á tónleikunum i Kórnum og Arena höllinni í Manchester var áþekkur ?

Hefst nú enn og aftur söngurinn um að þetta hafi ekkert með Islam að gera og að "Islam sé trú friðarins" Hefst nú enn eitt meðvirkniskast RÚV og fjölmiðlana um að finna afsakanir og skýringar á þessum viðbjóði og að sennilega sé þetta allt okkur að kenna og því eðlilegt að við og börnin okkar verði fyrir þessu.

Ég er ekki meðvirkur og hvet fólk til að sýna það með fordæmingu um leð og við vottum aðstandendum og Bresku þjóðinni okkar dýpstu samúð !


mbl.is Árásarmaðurinn var 22 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgnæfandi, eða meira en 2/3 hlutar Breskra kjósenda eru nú með BREXIT og styðja útgöngu Breta úr ESB !

Meira að segja í Skotlandi er nú talið að meirihluti kjósenda styðji ESB útgönguferlið og einarða afstöðu rikisstjórnar Theresu May. 

Vaxandi stuðningur og eindrægni Bresku þjóðarinnar nú er ekki hvað síst tikominn vegna einstaklega hrokafullrar og yfirgangssamrar framkomu framkvæmdastjórnar ESB gagnvart lýðræðinu og þeirri lýðræðislegu niðurstöðu Breskra kjósenda að segja NEI við ESB ! Þetta kemur skýrt fram í neðangreindri frétt Mbl. um málið.


mbl.is Mikill meirihluti hlynntur Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boris Johnsson segir; "NEI við ESB" Segir ekki koma til greina að Bretar samþykki fjárkröfu kúganir ESB !

Hann svarar ESB kröftuglega og segir ekkert í Lissabon sáttmálanum eða öðrum samningum Breta við ESB sem skyldi þá til að greiða ESB einhverjar skaðabætur vegna útgöngunnar þó svo að kommíserarnir í Brussel séu æfir af bræði !

Þvert á móti eigi Bretar sameiginlegar eignir með ESB sem nú þurfi að skipta upp og Bretar muni gera kröfur á ESB !


mbl.is ESB eins og Hótel Kalifornía
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Theresa May, sterkur leiðtogi Bretlands. Leiðir þjóð sína út úr svartholi ESB !

Hún sýnir ótrúlegan styrk og Brussel liðið óttast hana og einarða stefnu ríkisstjórnar hennar um að leiða þjóðina út ur ESB og fara að vilja þjóðar sinnar.

Þessi staðfesta þolir Elítan í Brussel mjög illa, því hingað til hafa þeir aldrei viðurkennt  urslit kosninga sem kjósa á móti vilja þeirra. Þess vegna heimtuðu þeir strax nyjar kosningar i Bretlandi og svo hafa þeir nú allt á hornum sér vegna þess að svo verður ekki og reyndar er nú traustari meirihluti fyrir útgöngu Bretlands en nokkurn tíman áður. Allar heimsenda og hrakfara spár þeirra um að allt færi til fjandans myndu Bretar kjósa að yfirgefa ESB reyndist innihaldslaus hræðslu áróður. 

Man einhver eftir ICESAVE hákarlinum og Kúbu norðursins ?


mbl.is Vinsælli en Thatcher og Blair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband