Færsluflokkur: Evrópumál

Jón Sig. fyrrverandi formaður Framsóknar viðurkennir að ESB aðildarbrölt er búið spil !

Jón Sigurðsson f.v. ráðherra og flokksformaður er mikill raunsæismaður og það er mjög gott og virðingarvert að hann opnar nú augun og viðurkennir og sér að ESB aðildar umsókn Íslands var algerlega óraunsætt feigðarflan sem sé nú varanlega komið af dagskrá íslenskra stjórnmála !

Jón bætist þar með í stóran hóp fyrrverandi ESB sinna sem sjá stóra ágalla ESB og viðurkenna og skilja vel afhverju þjóðin þeirra ítrekað og sterkt hafnar ESB aðild með öllu.

Það er einstaklega ánægjulegt fyrir okkur ESB aðildarandstæðinga að sjá þessar jákvæðu breytingar, þegar helstu fyrrverandi kanónur ESB trúboðsins á Íslandi beigja af og viðurkenna með rökum og af raunsæi ESB mistökin. Áður höfðum við séð Jón Baldvin Hannibalsson taka u beigju burt frá ESB ruglinu !

Hvenær ætli trausti rúinn flokksforysta Samfylkingarinnar viðurkenni mistökin ?


mbl.is ESB ekki á dagskrá næstu árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að marka neikvæðar skoðanakannanir um Donald Trump.

Það er ekkert að marka þessar skoðanakannanir fjölmiðlafyrirtækjana nú frekar en það var heldurekkert að marka þessar kannanir þeirra fyrir kjör Trumps. Eftir allan róginn, útúrsnúninginn og illmælgin sem þessir sömu fjölmiðlar viðhafa daginn út um þennan 45ta forseta Bandaríkjanna. 

Merkilegt að Morgunblaðið skuli taka þátt í þessari rógs herferð gegn réttkjörnum forsta Bandaríkjanna. Öðruvísi mér áður brá !


mbl.is Trump óskynsamur og óheiðarlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atvinnulífið gegn ESB aðild. Aðeins 16% atvinnurekenda hlynntir aðild. Meirihlutinn vill líka slíta aðildarviðræðum

Ólafur Stephensen formaður Félags atvinnurekenda hlýtur nú að hætta ESB trúboðinu. Þeir eru algerlega umboðslausir sífellt klifandi um að atvinnulífið vilji ESB aðild. Það er enginn áhugi fyrir ESB aðild meðal félagsmanna, eins og fram kemur í þessari könnun. Enginn ahugi heldur fyrir upptöku Evru. Ekki einu sinni lengur hægt að hanga í því að einhver ahugi sé fyrir einhvers konar viðræðum við ESB. Slíku er ekki til að dreifa lengur enda flestir búnir að sjá í gegn um þann blekkingarleik.

Löngu tímabært að þessi ESB umsókn verði afturkölluð af Alþingi og umsóknin jörðuð endanlega !


mbl.is Meirihluti nú andvígur viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breska þingið samþykkir BREXIT þ.e. ESB útgönguáætlun ríkisstjórnar Theresu May með miklum meirihluta atkvæða. (498 gegn 114)

Alveg óhætt að óska Bretum til hamingju, bæði þjóðin og þingið hafa nú samþykkt að Bretland segi skilið við Evrópusambandið og ekkert er nú til fyrirstöðu að 50 grein Lissabon sáttmálans um úrsögn úr Sambandinu verði virkjuð.

Andstaðan gegn ESB hefur styrkst og aukist síðan í kosningunum, ekki hvað síst fyrir áræði og staðfestu Theresu May forsætisráðherra, en ekki síður fyrir ótrúlegan hrokagikks hátt framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Bretum og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þeir ætluðu bara að hundsa þjóðarviljann og heimtuðu nýjar kosningar eins og venjulega af því að niðurstaðan var þeim ekki að skapi. Síðan hafa þeir verið með sífelldar hótanir um að refsa Bretum fyrir að hafa kosið gegn ESB. Allt þetta hefur virkað þveröfugt á hina sjálfsstæðu og þrjósku Breta. Síðan er sigur Trumps stórt tækifæri fyrir Breta til þess að gera öflugan og sjálfsstæðan viðskiptasamning við Bandaríkin.

 


mbl.is Breska þingið samþykkir Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur fyrir Útvarp Sögu og Pétur Gunnlaugsson. Varnarsigur fyrir tjáningarfrelsið sem á í vök að verjast.

Ákærunni um "hatursglæpi" á hendur Útvarpi Sögu og Pétri Gunnlaugssyni var vísað frá í Héraðsdómi í dag. Niðurstaðan er varnarsigur fyrir tjáningarfrelsið og frjálsa óháða fjölmiðlun. Engu að síður á tjáningarfrelsið í vök að verjast fyrir pólitískum rétttrúnaði. Viðbúið er að þeir sem harðast vilja ganga fram í "rétthugsun" fái nú löggjafann til að herða reglur og skilgreina enn þrengra hvað sé rétt hugsun og röng. Einnig munu hinir rétttrúuðu heimta enn frekari styrkingu "haturs- og hugsana lögreglunnar. Þetta er mjög varasöm þróun.


mbl.is Máli Péturs á Útvarpi Sögu vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB reynir að koma í veg fyrir að Bretland geri sjálfsstæða fríverslunarsamninga við USA og önnur ríki.

Framkvæmdastjórn ESB sýnir nú á sér kunnuglega kúgunartakta. Takta sem við könnumst alveg við úr ICESAVE deilunni og í deilunni um makrílinn. Framkvæmdastjórn ESB óttast mjög að nú eftir BREXIT bjóðast Bretum sjálfsstæðir og hagstæðir viðskiptasamningar við öll helstu ríki heimsins, s.s. Bandarikin, Kína, Indland, Astralíu auk fjölda smáríkja. Framkvæmdastjórn ESB er svo ótrúlega valdasjúk og skini skroppinn að þeir ætla að reyna að þvælast fyrir því að Bresk stjórnvöld geti gert tvíhliða og sjálfsstæða viðskiptasamninga við þessi ríki, fyrr en Bretland er alveg farið út. Þessi hroki og yfirgangur framkvæmdastjórnar ESB er alveg eftir öðru hjá þessu kúgunarapparati og þessi freklega framganga þeirra opnar aðeins augu annarra ríkja á því hversu glataður þessi klúbbur er.


mbl.is Mega ekki semja um viðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BREXIT; Bretar ætla út úr ESB, þeir ætla ekki að vera á "innri markaði" sambandsins. Þeir ætla ekki að lúta tilskipunum frá Brussel.

Thersa May forsætisráðherra Bretlands talaði alveg skýrt í dag. Bretland er á leið út úr ESB og þar verður ekkert hálfkák, þeir verða ekki á innri markaði Sambandsins, þeir taka fulla stjórn á landamærum sínum og innflytjendastefnu. Þeir muni stöðva greiðslur til Sambandsins og þeir munu ekki lúta tilskipunum frá Brussel. Theresa May varaði ráðamenn ESB að ætla að beita Breta refsiaðgerðum eða þvingunum.

Bretar myndu auðvitað afram verða hluti að Evrópu og þeir vildu vera vinir og bandamenn Evrópuþjóðanna og hafa við þau sem mest viðskipti.

Bretland er lang mikilvægasta viðskiptaland Íslands, þangað flytjum við stærstan hluta okkar sjávarafurða og þaðan koma flestir ferðamenn til landsins. Útganga Breta mun skapa okkur tækifæri á að efla viðskiptin við Bretland með tvíhliða samningum, sem verður hagstætt báðum aðilum.


mbl.is Verða utan innri markaðar ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USA vill nú vinna hratt í því að gera öflugan fríverslunarsamning við Bretland ! Áfall fyrir ESB sem hefur haft í hótunum eftir BREXIT !

Donald Trump nýkjörinn forseti Bandaríkjanna vill að unnið verði hratt í því að gera öflugan fríverslunar- og viðskiptasamning við Bretland. Slíkur samningur yrði gríðarlega mikilvægur fyrir Breta nú þegar þeir eru að vinna að úrsögn úr ESB eftir BREXIT. En forystumenn ESB hafa hótað Bretum öllu illu í reiði sinni yfir því að þjóðin kaus BREXIT. Þannig töldu þeir sig getað einangrað Breta, en sennilega mun það frekar verða þeirra hlutskipti sjálfra.

Mikilvægt er fyrir nýjan utanríkisráðherra okkar að fylgjast mjög vel með þessu.

Bretland og Bandaríkin eru miklvægustu viðskiptalönd okkar. Það er ekki að efa að Guðlaugur Þór mun fylgjast mjög vel með þessum málum enda hefur hann verið mjög áfram um að Ísland nýti möguleikana sem felast í sjálfsstæðinu og frelsinu með því að standa utan ESB og geta gert sjálfsstæða og hagstæða fríverslunarsamninga sniðna að okkar hagsmunum.


mbl.is Vill semja hratt við Breta um viðskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV óttast mjög ef Trump og Pútín ætli kannski að velja Reykjavík fyrir leiðtogafund !

RÚV kvöldfréttir voru uppfullar af því að neita því að nokkuð gæti verið hæft í fréttum NYT og fleiri fjölmiðla um að þeir Trump og Pútín vilji halda nýjan leiðtogafund í Reykjavík. RÚV-arar sem hafa lengi kynt undir andófi og áróðri gegn Pútín Rússlandsforseta og beittu sér mjög gegn kjöri Trumps sem forseta Bandarikjanna geta ekki hugsað sér að þessir "vondu" leiðtogar komi hingað til lands og mengi yfirráðasvæði RÚV og þeirra heilaga pólitíska rétttrúnaðar !

RÚV vill ekki að Rússland og Bandaríkin friðmælist það passar ekki pólitískri afstöðu RÚV !


mbl.is Engar viðræður um leiðtogafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump og Pútin boðnir velkomnir til Reykjavíkur til að ræða frið.

Auðvitað eiga nú bæði ríkisstjórnin og borgarstjórn Reykjavíkur að bjóða þjóðhöfðingjana Donald Trump og Vladímír Pútín velkomna til Íslands. Hér geta þeir fetað í fótspor Regans og Gorbatsjovs sem hér í Höfða lögðu drögin að endalokum Kalda stríðsins. 

En ég held að villta vinstrið í borgarstjórn geti ekki hugsað sér að þessir tveir fordæmdu menn í þeirra augum fái að koma hingað. Friður meðal þjóða er ekki markmið villta vinstrisins og anarkitana sem halda höfuðborg okkar í gíslingu. Mönnum er í fersku minni þegar borgarstjórn Reykjavíkur varð sér að atlægi með því að setja viðskiptabann á Ísrael.

Nýr utanríkisráðherra gæti líka slegið sér upp í leiðinni með því að tilkynna Pútín um afnám þessa fáránlega viðskiptabanns okkar gagnvart Rússlandi sem er haldið úti af þjónkunn einni við ráðamenn ESB !


mbl.is Trump vill funda með Pútín í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband