Færsluflokkur: Evrópumál

Pólitískur rétttrúnaður; Skólayfirvöld á Akranesi áhyggjufull. Biðja foreldra vera á varðbergi. "Sést hefur til gráhærðs manns í kringum skólana gefa sig á tal við ungmennin og dreifa Nýja testementinu meðal skólabarna"

Pólitískur rétttrúnaður hefur náð heljartökum á íslensku samfélagi.

Í meðfylgjandi frétt er sagt frá þeim voðalega atburði að sést hafi til eldri manns kring um skólana á Akranesi þar sem hann sé að dreifa "Nýja testamentinu" meðal skólabarna. Í viðtali við Flosa Einarsson aðstoðarskólastjóra Grundarskóla kemur fram að skólayfirvöld líta málið mjög alvarlegum augum. Pólitískum rétttrúnaði hefur fyrir löngu tekist að hrekja alla uppfræðslu um Kristnina og Kristin gildi út úr grunnskólunum. Það er því ekki að furða að viðbrögð skólayfirvalda skuli vera eins og hér sé um hættulegan barnaperra að ræða sem væri að byrla börnunum eiturlyf.


mbl.is Býður börnum Nýja testamentið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýrri ríkisstjórn óskað heilla. Mikilvægt að ESB umsóknin sé í frosti.

Það er óhætt að óska þjóðinni til hamingju með nýja ríkisstjórn, sama hvað fólki kann að finnast  

Sjálfsstæðisflokkurinn er hér burðarrásin með tvo nýja smáflokka sem eflaust verður ekki auðvelt að starfa með, ekki síst með svona knappan meirihluta. Mikilvægt er að Sjálfsstæðisflokkurinn stóð í lappirnar gegn ESB sýki þessara tveggja ESB sinnuðu flokka, alla vegana til að byrja með. En alls óvíst er að þessi ríkisstjórn lifi undir lok þessa kjörtímabils og þó svo þá geti hugsanlega komið til einhverrar tillögu í þinginu um einhverskonar þjóðaratkvæðagreiðslu um "áframhaldandi aðildarviðræður" eins og það heitir í stjórnarsáttmálanum. Þessir ESB flokkar tveir vita að þjóðin vill ekki ESB aðild og ESB er sjálft með allt niður um sig, því eru þeir ekki ófúsir til að fresta og halda einhverri glufu opinni og eiga þá möguleika á að þvæla ESB málinu áfram. Hættan er sú að með aðkomu þessara tveggja flokka að ríkisstjórninni þá reyni þeir að grafa undan sjálfsstæðinu m.a. með því að eyðileggja okkar góða landbúnað og vinna skemdarverk á gjaldmiðli okkar íslensku krónunni. Einnig munu þeir á allan hátt líma okkur við regluverk ESB og elta vitlausa utanríkisstefnu þeirra í blindni. Við andstæðingar ESB aðildar óttumst ekki heiðarlega og beina spurningu þar sem þjóðin væri spurð hreint út. Því fyrr sem þjóðin tekur þess mál í eigin hendur og hafnar ESB aðild með öllu því betra. Því þá verður þetta ESB mál jarðað endanlega.


mbl.is Sóttu fast að fá ráðuneytin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný ríkisstjórn - Óskrifað blað ! Píratar öskuillir !

Greinilegt að villta vinstrið er strax komið í harða stjórnarandstöðu. Fjölmiðlar þeirra eins og RÚV, Stundin og Kjarninn eru í augljósri fýlu. Í dag heyrðist ramakvein frá Pírötum sem ráðasr harkalega að Óttari Proppé og saka hann um svik við Pírata partýið og Birgitta ætlaði víst í einum hvelli að leggja fram vantraust á komandi ríkisstjórn, jafnvel áður en hún liti dagsins ljós.

Afhverju leggja Píratar bara ekki fram vantrausts tillögu á allar komandi ríkisstjórnir á Íslandi næstu 50 árin ?


mbl.is Björt framtíð samþykkti sáttmálann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Theresa May forsætisráðherra Bretlands talar skýrt fyrir útgöngu Bretlands; "Við erum að fara burt, við erum að koma okkur út, við ætlum ekki að vera aðilar að ESB"

Theresa May og rikisstjórn Bretlands undirbýr nú úrsögn Breta úr ESB bæði af kappi og forsjá. Nú er Boris Johnsson utanríkisráðherra Bretlands a leið til USA til að ræða við Trump og helstu ráðgjafa hans. En einnig hefur verð skýrt frá því að Theresa May munu halda til fundar við Trump nú í vor. Áður höfðu Trump og Nigel Farrage einn hesti leiðtogi Breskra útgöngusinnafundað í Bandarikjunum. En Trump hefur miklar mætur á Farrage.

Það kæmi ekki a óvart að Bretland og Bandaríkin muni nú þétta samstarf sitt og samvinnu og líklega reyna að hraða gerð víðtæks viðskipta- og fríverslunarsamnings milli ríkjanna. Slikt yrði eitur í beinum Brussel klikunnar sem hefur ekkert kunnað annað en hafa í hótunum við Breta ! 


mbl.is Nálgun Breta „ekki vitund ruglingsleg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BREXIT hefur mjög góð áhrif á Breskan efnahag. Þvert á spár sérfræðingana, sem nú viðurkenna að hafa haft kolrangt fyrir sér.

Allar hagtölur sýna nú góðan vöxt og gott gengi Bresks efnahags eftir BREXIT. 

Hlutabréfavisitölur stíga upp, hagvöxtur er pryðilegur, atvinnuþáttaka eykst og atvinnuleysi minnkar. Allar þessar ánægjulegu tölur ganga algerlega þvert á allar heimsenda spár sem sérfræðinga gengin settu fram að myndi ske ef Bretar segðu sig úr ESB og kysu BREXIT.

Þessir sérfræðingar og fals spámenn eru nú að stíga fram einn af öðrum og viðurkenna að þeir höfðu algerlega rangt fyrir sér. Breska pressan nýtur þess nú að niðurlægja þá og draga þá sundur og saman á háði og spotti.

Munið eftir öllum sérfræðingum Háskóla Íslands sem hampað var mjög í fjölmiðlum og héldu svona heimsenda spám fram fyrir ICESAVE kosningarnar hér heima og höfðu svo allir kolrangt fyrir sér.

Ekki man ég til að einn einasti þeirra hafi viðurkennt mistök sín, eða beðist afsökunar og ekki hef ég séð RÚV eða aðra fjölmiðla hér hæðast að þeim eða reyna að gera þá ábyrga út af ICESAVE ruglinu.

Þvert á móti hampar RÚV enn þessum falsspámönnum og áróðurs mönnum Evrópusambandsins.


mbl.is Hafði rangt fyrir sér um áhrif Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir BREXIT og kjör Trumps. Hittast leiðtogarnir May og Trump til að ræða framtíðarsamskipti Bretlands og USA ! Búast má við auknum viðskiptum og enn nánari tengslum þessara þjóða.

Búast má við að eftir útgöngu Breta úr ESB og kjör Donalds Trumps sem forseta USA muni samskipti og viðskipti þessara þjóða vaxa og dafna sem aldrei fyrr. Við íslendingar ættum að fagna þessu og fylgjast mjög vel með.

Bæði þessi ríki hafa verið okkar stærstu viðskiptaþjóðir um áratugaskeið og helstu bandalags- og vinaþjóðir þó þar hafi um nokkra hríð borið nokkra skugga á. 

Sem sjálfsstæð og fullvalda þjóð með fullt vald til að gera okkar eigin sjálfsstæðu viðskipta-og fríverslunarsamninga ættum við að skoða alvarlega að taka þátt í að vera með í viðskiptasamningi þessara frábæru vina þjóða okkar og efla þar með enn frekar frjáls og öflug viðskipti okkar, byggð á sjálfsstæði okkar og fullveldi án ESB helsis !


mbl.is May hittir Trump í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kafað djúpt" í stjórnarmyndunarviðræðum með Óttari Proppé !

Djúpköfunarhæfileikar Óttars Proppé eru löngu kunnir. Hann nær meiri dýpt en flestir aðrir. Nú er Bjarni Benediktsson á sérstöku köfunarnámskeiði hjá Óttari. Það á að reyna að fara það djúpt með Bjarna að hann sjái Brussel ljósin með Óttari og Benna. 

Hætt er við að Bjarni fari svo djúpt með Óttari að hann fái alvarlega köfunarveiki á leiðinni upp. 

Sami Óttar stjórnaði köfunarnámskeiði á síðasta þingi þar sem hann lét nánast allt þingið finna ónýtt og galopið innflytjenda frumvarp á hafsbotni, sem meira að segja Svíar voru búnir að henda. 

Þingið fór síðan heim en þjóðin situr uppi með ónýta frumvarpið og mun verða illa haldinn af köfunarsýki Óttars Proppé næstu árin


mbl.is Hafa ekki ákveðið ráðherraskiptingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða þeir Sjálfsstæðis þingmenn sem vilja standa á sannfæringu og stefnu flokksins síns í andstöðu við ESB aðild nú kallaðir "villikettir" í þessari stjórn.

Illa lýst mér á þetta leynimakk Bjarna Benediktssonar við þá ESB fóstbræðurna Benedikt Jóhannson og Óttar Proppé. Alveg er ljóst að þeir kumpánar ætla sér ekkert i stjórn með Bjarna öðruvísi en geta með ísmeygileg heitum og blekkingum komið ESB ruglinu einhvern vegin aftur á stað.

Ansi er ég hræddur um að þeir séu að leika sama leikinn gagnvart Sjálfsstæðisflokknum nú og Samfylkingin lék við VG í ESB málinu i Jóhönnu stjórninni 2009 til 2013.

Reyna á með öllum ráðum að koma ESB svika ferilnu aftur á stað.

Þeir þingmenn Sjálfsstæðisflokksins sem rísa munu á móti verða eflaust kallaðir "villikettir" og úthrópaðir af RÚV og öðrum ESB meðvirkum fjölmiðlum.

Síðan verða kallaðar til vara skeifurnar þ.e. þeir þingmenn Samfylkingar, Pírata og eftir atvikum VG til að hnoða ESB ruglinu áfram og halda líftórunni í stjórninni. 

Þarna er lifandi kominn taka 2 í svikum og blekkingum ESB trúboðsins á Íslandi !


mbl.is Stóru málin rædd á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar Sjálfsstæðisflokkurinn að endurræsa svikaslóð ESB umsóknarinnar !

Það er með miklum ólíkindum ef Bjarni Benediktsson ætlar að leyfa þessum tveimur smáflokkum Viðreisn og BF nú að koma ESB umsóknarferlinu aftur af stað. Það eru engar forsendur til "að hefja einhverjar viðræður" við ESB aftur. Annaðhvort er sótt um aðild að ESB af því að menn vilja inn i ESB, eða ekki er sótt um aðild af því að menn vilja ekki í ESB.

 

Það er ekkert annað en blekkingar og lygi að ætla sér að spyrja einhverrar loðmullu spurningar um einhverjar viðræður. 

Rosalegt ef nú á að endurræsa þennan blekkingarvef ESB aðildarumsóknarinnar á nýjan leik með svona ísmeygilegum blekkingum. Þetta mun aðeins kalla á enn frekari sundrungu þjóðarinnar.


mbl.is Flokksmenn hafa engan áhuga á þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert "kæra Eygló" núna. Færeyingar ekki taldir nógu fínir hjá "góða fólkinu !

Það er ekkert upphlaup í fjölmiðlum "góða fólksins" núna. Ekkert "kæra Eygló" eða svoleiðis. Færeyingar sennilega allt of Kristnir og hvítir í þokkabót, fyrir utan að vera allt of líkir okkur sjálfum, þjóðinni sem "góða fólkið" hatast við alla daga !

Þær eiga þakkir skildar þær Rakel Sigurgeirsdóttir og Addý Steinars með því að hvetja okkur til að standa nú við bakið á Færeyingum


mbl.is Skora á Íslendinga að hjálpa Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband