"GRATULERER TIL DE NORSKE - HEJA, HEJA, HEJA NORGE" !

Innilegar hamingjuóskir til Norsku þjóðarinnar á 17. maí þjóðhátíðardegi Norðmanna.
 
Hef verið í Noregi á þessum degi og það var mikil upplifun og sérstaklega gaman að samfagna með þeim á þessum degi.
 
Sjálfstæðið, uppruninn og samheldnin er þeim mjög mikils virði.
 
Íslensk þjóð getur ýmislegt lært af bræðrum okkar og systrum í Noregi, hinni gömlu þjóð forfeðra okkar.
Einnig ber okkur að þakka Norsku þjóðinni fyrir vinskap og stuðning gegnum aldirnar.
 
Heja Norge !

mbl.is Norðmenn á Íslandi fagna 17. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að marka VG. Þeir geta ekkert falið ESB svikaslóðina með svona uppgerðar sýndarmennsku. Blindflugið til Brussel heldur samt áfram í boði VG !

Enginn trúir lengur á það sem að þeir segja, hvorki í þessu né öðru !

ESB svikaslóðin verður ekkert falinn með svona uppgerðar upphlaupi og augljósri sýndarmennsku.

Þeir gætu allt eins ályktað að hér ætti að setja á stofn geymferðarstofnun að fyrirmynd NASA og að Ísland ætti að taka forystu í geymvísindum.

Enginn tæki mark á slíku rugli, frekar en þessari "allt í einu" NATO andstöðu tillögu VG ! 

VG hefur nú ekki bara misst meira en helming stuðningsmanna sinna og margt hæfileika fólk vegna skelfilegra kosningasvika þeirra í ESB málinu.

Það sem meira er, þeir hafa líka misst allan trúverðugleika í þjóðfélaginu og virðingu pólitískra andstæðinga sinna og þorra almennings.

VG hafði nefnilega hér áður fyrr virðingu og áhrif langt út fyrir raðir stuðningsmanna sinna og langt út fyrir kosningafylgi sitt, vegna heiðarleika og stefnufestu.

Ekki bara fylgið þeirra er hrunið heldur er flokkurinn nú líka rúinn öllu trausi og virðingu þjóðarinnar !

Þökk sé þeim afvegaleiddu forystumönnum VG sem samþykktu ESB umsóknina og standa enn í þessum svikum og glórulausu blindfluginu til Brussel !


mbl.is Ísland segi sig úr Nató
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur með ESB- hræðsluáróður! Hótar nú þjóð sinni með "snjóhengjum" og snjóflóðum !

Hversu lágt getur þessi lymskulegi "refur" íslenskra stjórnmála lagst til þess að reyna með góðu eða illu að beygja og flæma þjóð sína undir ESB helsið í Brussel !
 
Nú þegar allt um þrýtur og fylgið við ESB umsóknina er búið og farið veg allrar veraldar þá reynir hann nú með ísmeygilegum og viðurstyggilega lymskulegum hætti að notfæra sér einhverjar hroðalegustu og verstu hörmungar íslensks landsbyggarfólks og íslensku þjóðarinnar til þess að hóta og hræða fólk undir ESB helsið !
 
" HOW LOW CAN YOU GO"  - ÖSSUR !
 
-ANNARS BÍÐA BARA SNJÓHENGJUR OG SNJÓFLÓÐ -
 
Segir Össur hinn skarpi ! 
 
Össur berst leynt og ljóst fyrir "alveg sama hvað" fyrir Ráðstjórnina í Brussel sem stendur nú að beinni aðför að íslensku þjóðinni og sjálfsstæði hennar og velferð fyrir dómsstólum vegna ICESAVE og hóta nú einnig valdbeitingu og  alþjóðlega ólöglegum viðskipta aðgerðum, ef við hættum ekki fullkomlega löglegum veiðum okkar á makríl innan okkar eigin 200 mílna fiskveiðilögsögu !

mbl.is Össur: Aðild snýst um langtímahagsmuni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Schulz forseti ESB þingsins er endurunninn Austur Þýskur kommúnisti, sem heimtar nú meira VALD til Ráðstjórnarinnar ! "VÉR EINIR VITUM"

Sagan virðist því miður  allt of oft endurtaka sig kynslóð eftir kynslóð.

Um leið og Martin Schulz þessi ógeðfelldi þýski forseti ESB þingsins viðrkennir nú í örvæntingu sinni að raunveruleg endalok hinns draumkennda og óskeikula fyrirmyndar ESB ríkis hans gætu hugsanlega verið í nánd.  

Þá jafnframt heimtar þessi ólýðræðislegi og endurunni Austur Þýski Kommúnisti að hann og hin óskeikulu Kommísara ráð Brussel valdsins fái nú meiri og víðtækari völd til sín til þess að hafa enn frekara vit fyrir lýðnum, því að hans staðfasta trú og þessa spillta Elítu aðals er sú að aðeins: 

"Vér einir vitum"

Þétta raðirnar og styrkja miðstjórnina og óskeikula Ráðstjórnarinnar í BRUSSEL !

Þrátt fyrir ESB/EVRU kreppuna allt klúðrið og óstjórnina og ofstjórnina sem þessi ESB Ráðstjórn hefur nú þegar kallað yfir aðildarþjóðirnar.

Að heyra þetta nú frá þessum vægast sagt vafasama manni, þá fer bókstaflega um mann kaldur hrollur, vegna þess að þetta hljómar eitthvað svo óhuggnanlega mikið kunnuglega !

 

 


mbl.is Hrun ESB orðið að raunhæfum möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirgangur og hótanir ESB í makríl deilunni eru svívirðilegar ! Sami yfirgangur sýnir sig í ICESAVE deilunni !

Ekki bjóst ég við því að það kæmi að því að ég tæki heilshugar undir einarðan málflutning formanns Sjálfsstæðisflokksins.
 
En það geri ég svo sannarlega nú.
 
Yfirgangur og hroki ESB Ráðstjórnarinnar í Brussel gagnvart okkar þjóð er með þvílíkum ólíkindum !
 
Slítum þessum aðildarviðræðum við ESB apparatið þegar í stað.
 
Rekum þessa áróðursmála fígúru, þennan svokallaða sendiherra ESB og allt hans hyski úr landi og látum einnig loka ESB áróðursmálastofu þessa sama fjandsamlega valdaapparats.
 
Það er meira en nóg komið ! 
 
ESB stjórnsýsluapparatið er hvort sem er sökkvandi skip og þjóð okkar hefur þar ekkert að sækja !
Nema eymd og volæði, lýðræðisleysi og gríðarlegt atvinnuleysi !

mbl.is Framganga ESB einkennist af yfirgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt gott og gillt - En hvað með ESB Ari Trausti ? Ef þú sneyðir hjá því stóra máli þá er framboð þitt merkingarlaust !

Allar fallegar og gildishlaðnar yfirlýsingar þínar um alþjóðlegt samstarf á sviði jarðfræði og menningar eru algerlega marklausar ef að þú segir okkur ekki refjalaust afstöðu þína til ESB aðildar þjóðarinnar.
 
Ég hugsa að ég væri alveg til í að kjósa þig ef að þú svaraðir þessari spurningu afdráttarlaust og eins og meiri hluti þjóðarinnar svo sannarlega vill.
 
Allt annað er bara bla, bla, bla, og algerlega merkingarlaust og þar fiskar þú í gruggugu vatni !

mbl.is Vanur erfiðum verkefnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB umsóknin - Sveipuð leynd og pukri - Lygum og svikum !

Leyndarhyggjan fyrir Hrun um raunverulegt hryllings ástand íslenska bankakerfisins varð ekki hvað síst til þess að gera Hrunið enn verra og illviðráðanlegra.
 
"Keep it under a wrap" hvíslaði Ingibjörg Sólrún í eyrað á Össuri í aðdraganda Hrunsins. Enginn mátti vita neitt um þjóðhættulega stöðuna ekki einu sinni sjálfur banka- og viðskiptamálaráðherrann.
 
En fólkið sem tók við stjórnartaumunum eftir kosningar 2009 lofaði að nú yrði breyting á og stjórnsýslan öll yrði nú öll opin og gegnsæ.
 
Samt sem áður hafa þessi sömu stjórnvöld staðið í umsóknar og aðlögunarferli við ESB stjórnsýsluna í bráðum þrjú ár og allt meira og minna í undarlegu og óskiljanlegu spunaferli og hulið leyndarhjúp.
 
Samningsmarkmiðin sem áttu að liggja fyrir í upphafi viðræðnana hafa aldrei verið sett fram eða þolað dagsins ljós og allt þar í óljósri þoku og reyndar breyst daglega allt eftir hentugleikum aðildarsinna og kröfum ESB, hverju sinni.
 
Aftur og aftur er utanríkisráðherrann fláráði sem talar tungum tveim, marg staðinn að því að gefa rangar og villandi upplýsingar um framgöngu mála, allt eftir hentugleika hverju sinni, þ.e. hvort hann er að tala í Brussel eða Reykjavík.
Vinnubrögðin öll meira og minna umsveipuð pukri og leynd, enda allt ferlið unnið í mikilli andstöðu við stærstan hluta þjóðarinnar og því hefur þetta mál í heild sinni aldrei þolað dagsljósið eða sannleikann !
 
Mál er að þessum hörmungum linni. Trúnaðarbrestur og algert umboðsleysi þessa fólks gagnvart þjóð sinni er öllum orðið löngu ljóst.
 
Slíta þarf ESB viðræðunum strax og boða til nýrra kosninga ! 

mbl.is Sérkennilegur fundur um samskipti við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er meira nóg komið ! Framkvæmdastjórn ESB heimtar að taka beina afstöðu gegn hagsmunum Íslands í ICESAVE málinu !

Þeir taka nú harða og einarða afstöðu gegn okkur í Makríldeilunni !

Nú taka þeir líka beina og harða afstöðu gegn okkur í ICESAVE nauðunginni !

Er virkilega ekki nóg komið ?

Stöðvum ESB ruglið !


mbl.is ESB vill aðild að Icesave málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Margur heldur mig sig" - Össur hinn "slóttugi" segir orð Írska ráðherrans aðeins til heimabrúks !

Þetta sýnir augljóslega að Össur heldur að allir séu jafn ófyrirleitnir og slóttugir eins og hann sjálfur.
 
Össur hefur nefnilega sjálfur marg verið staðinn að því að segja sitthvað hér og svo allt annað þar, allt eftir hentugleikum hans sjálfs og stað og stund.
Bara ef það hentar hans upphöfnu og blygðunarlausu tækifærismennsku við að nota aðstöðu sína til að misnota og "brúka" heiðarlegt fólk og meira að segja sína, eigin þjóð líka.
 
Samviskan plagar hann akkúrat ekkert því að hjá honum helgar tilgangurinn sjálfur alltaf meðalið og því réttlætir hinn lævísi og tungulipri Össur ávallt allar gerðir sínar við að ljúga og blekkja og misnota og "brúka" fólk og heilar þjóðir í eigin þágu og síns vafasama málsstaðar.
  
Þegar mikið liggur við þá afmarkar Össur stundum brúksemi sína og fórnarlömb sín að mestu við einhvern einn ákveðinn einstakling, til þess að ná fram slóttugum vilja sínum.
Þannig laug hann því blákalt að Ögmundi Jónassyni "vini" sínum sem hann smjaðraði mikið fyrir eftir kosningarnar 2009 til þess að reyna að fá hann og VG til þess að samþykkja ESB umsóknina gegn vilja sínum.
Össur fullyrti að umsóknarferlinu yrði hespað af og kláraðist árið 2010 og þá yrði einfaldlega kosið um málið og þar með væri það þjóðin sjálf sem segði af eða á.
Þetta er bara eitt lítið dæmi um blekkingar og brúksemi Össurar og hvernig hann brúkar ýmsa hluti þegar og þar sem það hentar honum.
Það má eiginlega kalla það að þetta hafi eiginlega bara verið til svona "Ömmabrúks".
Því að Ögmundur gekk í gildruna og þessi brúksemi Össurar heppnaðist fullkomlega, því Ömmi lét þennan svokallaða "vin" sinn ljúga þessu í sig.
 
Svona mismunandi "brúksemi" og einbeittur blekkingarvilji kallast einu orði ekkert annað en  "siðleysi".
 
Mannkynssagan segir okkur að slíkir einstaklingar geta orðið hættulegir þjóðfélögum sínum, komist þeir þar til einhverra metorða.

mbl.is Segir hótunina ekki til heimabrúks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Þór Sigurðsson er ESB svikari, með mjög einbeittan brotavilja til áframhaldandi kosningasvika !

Árni Þór virðist vera með mjög einbeittan brotavilja við að svíkja kjósendur VG  og þjóð sína í ESB málinu !

Hann er eitthvert það aumasta mannkerti og versti skrifræðis-skarfur sem setið hefur á Alþingi fyrir VG og þó víðar væri leitað.

Hann hefur ásamt Steingrími J. diggilega staðið vaktina við að svíkja kjósendur sína og þjóð sína, enda hefur nú u.þ.b. helmingur af stuðningsfólki VG frá síðustu kosningum yfirgefið flokkinn. 

Honum mun sem betur fer fljótlega hefnast óafturkræft og rækilega fyrir kosningasvik sín, sem sífellt gerast nú, langvinnari, svívirðilegri, stórtækari og forhertari !

"Hefnist þeim er svíkur sína huldumey, honum verður erfiður ....."


mbl.is Gæti tafið ESB-viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband