EVRU skuldavandinn - Enn ein innistæðulausa heimasoðna naglasúpan misheppnast og markaðirnir fúlsa við !

Eftir u.þ.b. 50 neyðarfundi ESB/EVRU apparatsins undanfarin tvö ár, og heitingar um margboðaðar stór aðgerðir til bjargar EVRU skulda vafningnum.
 
En samt allt kemur fyrir ekki EVRU svæðið eru áfram í hroðalegri niðursveiflu, mjög miklum efnahagssamdrætti, heimsmeti í atvinnuleysi sem sífellt fer vaxandi og verandi nú orðið versta og hættulegasta hagvaxtarsvæði heimsins, sem ógnar nú öllu heilbrigðu efnahagslífi alls heimsins.
 
Þá reynir nú samt valda Elítu klíkan í Brussel með ECB bankann í broddi fylkingar enn einu sinni nýjar sjónhverfingar til að þykjast vera að laga ástandið, sem til að byrja með átti reyndar aðeins að vera minniháttar hnökrar á hinni "fullkomnu mynt" og hinu "fullkomna stjórnkerfi" Sovétríkja Evrópusambandsins.
 
Almenningur aðildalanda ESB/EVRU sambandsins sem haldið hefur verið í sívaxandi spennitreyju ruglsins er nú meira en komin að sársauka þolmörkunum og hvort sem það verður markaðurinn eða almenningur sjálfur sem að lokum brýtur þetta handónýta stjórnsýslubákn á bak aftur og sprengir í loft upp þennan hættulegasta elítu gjaldmiðil veraldar, því betra fyrir almenning og efnahag þessara þjóða.
 
Að Ísland skuli enn vera með umsókn í gangi um að gerast aðili að þessu vesæla og deyjandi stjórnsýsluapparati er með öllu óskiljanlegt og í algerri og ítrekaðri mótsögn við vilja stærsta hluta þjóðarinnar, sem vill ekkert með ESB/EVRU aðild hafa að gera.
 
Þessu Brussel blindflugi og ESB martröð íslensku þjóðarinnar mun sem betur fer, senn linna þegar Samfylkingar ómyndin og allt þeirra hyski verður sent út í ystu myrkur.

mbl.is Byrjar aftur að kaupa skuldabréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

75% Norðmanna gegn ESB aðild. Þeir þurfa ekkert að "kíkja í ESB pakkann" til að hafa eindregna afstöðu !

Íslenskir ESB aðildarsinnar segja oft við okkur sem höfum fyrir löngu síðan lýst með sífellt sterkari rökum megnustu andúð okkar á því að þjóðin gangi í ESB að í raun getum við ekkert leyft okkur að hafa þessa "óábyrgu" afstöðu af því að við vitum ekkert hvað gæti leynst í pakkanum.
Norðmenn sem í tvígang síðast 1994 höfnuðu ESB aðild, hafa ekkert sótt um aðild síðan og um það er þegjandi samkomulag í Norsku þjóðfélagi, þar sem að allar götur síðan hefur verið gríðarleg andstaða við ESB aðild og nú er svo komið að stuðningur við aðild er sáralítill eða nánast enginn.
Aðeins 17,2 Norðmanna vilja nú inngöngu en 75% eru andvígir inngöngu sem þýðir að 92% Norðmanna taka einarða afstöðu með eða á móti ESB aðild. Aðeins 8% taka ekki afstöðu eða eru hlutlausir.
 
Þetta eru reyndar ekkert óáþekkar tölur og byrst hafa okkur hér undanfarin 1 til 2 ár um gríðarlega og vaxandi andstöðu íslensku þjóðarinnar við ESB aðild og eins og í Noregi fáir eru þar hlutlausir. 
 
Það þarf því auðvitað alls ekkert að vera að "kíkja djúpt ofan í ESB pakkann" - hvað þá standa í margra ára rándýrum aðildar- og aðlögunraviðræðum eins og við íslendingar höfum nú gert til þess að almenningur hjá jafn vel upplýstum þjóðum eins og Noregs og Íslands geti tekið einarða og upplýsta afstöðu um það hvort að landið þeirra eigi að ganga í ESB eða ekki.
 
Þjóðin sem situr gegn vilja sínum innanborðs í þessu langflugi þarf að stöðva þetta stórhættulega blindflug til Brussel strax og snúa vélinni við.
Flugstjórinn í þessu glórulausa ESB-helflugi er Össur Skarphéðinsson og hann getur aldrei lent flugvélinni ólaskaðri á Brussel völlum.
Því hann hefur ekki "hundsvit á því - ekki frekar en hann hefur heldur alls "ekki hundsvit á  efnahags- og peningmálum", eins og hann sagði eiðsvarinn í Rannsóknarskýrslu Alþingis.  

mbl.is 75% Norðmanna vilja ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB svikaslóð forystu VG verður ekki falin !

Alveg sama þó landið rísi og hagtölur batni.

Þá er VG því miður ónýtt stjórnmálaafl sem á sér ekki viðreisnar von.

Eftir að hafa framið stærstu kosningasvik aldarinnar með því að hafa svikið stuðningsmenn sína með því að hefja þetta blindflug til Brusssel með Samfylkingunni og það án nokkurra haldbærra skilyrða eða takmarkana.

Það er því engin furða að forystan sé nú að míga á sig af hræðslu !


mbl.is VG hefur áhyggjur af fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega Þjóðhátíð ! - Er 17. júní - Þjóðrembingsdagur !

Frá því að ég var barn að aldri hefur 17 júní ávallt verið einn af mestu og helgustu hátíðisdögum ársins.
Svo er enn í mínum huga þó svo að ég haldi nú upp á daginn erlendis með löndum mínum hér.
Þjóðhátíðardagurinn var settur á stofn þegar Ísland varð Lýðveldi árið 1944 á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar sjálfsstæðishetju þjóðarinnar.
Þar með sleit þjóðin endanlega tengslin við Danaveldi og varð frjálst og fullvalda þjóðríki, eftir árhundraða baráttu.
 
En nú eru svo sannarlega blikur á lofti. Hér var ákveðið með naumum meirihluta Alþingis sumarið 2009 að sækja um aðild að ESB.
Þetta var gert að undirlagi Samfylkingarinnar og með kosningasvikum flestra þingmanna hinns stjórnarflokksins það er VG og síðan með liðsinni örfárra ESB sinna úr öðrum flokkum.
 
Helsta réttlætingin og grundvöllurinn að ESB umsókninni var:
 
1. Að aðildarumsóknin yrði sérstök hraðferð og að þjóðin fengi að kjósa með eða gegn aðild ekki seinna en snemma árs 2011.
 
2. Að með ESB aðild og upptöku EVRU yrði hér komið á varanlegum stöðugleika og aukinni velsæld.
 
Allt hefur þetta reynst annaðhvort hrein lygi eða örgustu öfugmæli.
 
Þessi umsókn hefur valdið þjóðinni stórtjóni og sundrað þjóðinni verr enn nokkuð annað á síðari tímum. Mikill meirihluti þjóðarinnar er og hefur verið andvígur ESB aðild allan tíman og sá meirihluti er nú mjög afgerandi eða allt að 70%.
En meirihluta þjóðarinnar er haldið í gíslingu ESB umsóknarinnar.
Hér er það látið líðast að ESB opni hér sérstakt sendiráð og einnig sérstaka áróðursmálaskrifstofu og veiti hundruðum milljóna í beinan áróður fyrir þessu valdaapparati.
Meirihluti fjölmiðlana gætir ekki hlutleysis og sama á við um mikinn meirihluta háskólaelítunnar sem er líka áberandi hallur undir ESB aðild.
Við sem efumst og eða berjumst gegn ESB innlimun erum af æstustu ESB sinnum kallaðir öllum illum nöfnum s.s. þjóðrembingar, einangrunarsinnar og jafnvel fasistar og nasistar.
Íslenski fáninn og öll þjóðleg gildi eru talin af hinu illa af þessum hópi fólks. Sem sér ekkert annað en ESB stórríkið.
 
Sumir úr okkar hópi eru svo öskureiðir að þeir kalla þennan hóp æstustu ESB sinna sem ótýnda "landráðamenn", ég hef sjálfur forðast það svona opinberlega þó svo að ég geri það óhikað í einkasamtölum.
 
Ég hef reynt að virða skoðanir þeirra og rökræða við þá og veit að sumum þeirra hefur gengið gott eitt til. Sífellt fleiri þeirra hafa reyndar gengið af ESB trúnni, sem betur fer.
En nú er svo komið og svo augljóst að öll rök fyrir ESB aðild ef einhver voru, eru nú fyrir löngu fokin út í veður og vind og því er svo komið að ég get varla lengur borið nokkra virðingu fyrir skoðunum þessa háværa minnihlutahóps. Þeir geta ekki með nokkru móti lengur haldið því fram að þeir séu að berjast fyrir hagsmunum þjóðarinnar. Hér er einhverjar annarlegar eða trúarlegar hvatir að baki. Því gagnrýni ég nú ekki þá sem í réttlátri reiði sinni kalla þetta lið "landráðahyski" En það er sorglegt hvernig þessi ESB sundurlyndisfjandi hefur leikið okkur illa og tvístrað þjóðinni. 
 
Um leið og ég óska öllum íslendingum nær og fjær gleðilegs þjóðhátíðardags, þá hvet ég samherja mína gegn ESB aðild að herða nú enn róðurinn fyrir frjálsu og fullvalda Íslandi, án ESB helsis !

Stjórnvöld viðurkenna að brottrekstur Tómasar H. Heiðars sem formanns samninganefndar Íslands, hafi verið gerð til þess að gefa eftir í makríldeilunni.

Ljósara getur það ekki orðið. Sjálfur sendiherra Íslands í Bretlandi gæti ekki talða svona nema með samþykki og vilja íslenskra stjórnvalda.
Hann segir beinlínis að Tómasi H. Heiðar þjóðréttarfæðingi og formanni Íslensku samninganefndarinnar í makríldeilunni við ESB hafi beinlínis verið fórnað til þess að hægt yrði að gefa eftir hagsmuni þjóðarinnar í makríldeilunni.
Í ljósi þessa óræka vitnisburðar fulltrúa íslenskra stjórnvalda er eitt alveg víst að þjóðin þarf að fylgjast grannt með samningataktík íslensku samninganefndarinnar.
Ef að nú á að fara að fórna gríðarlegum hagsmunum þjóðarinnar með því að gera óásættanlega samninga við ESB til þess eins að þóknast þröngum flokkshagsmunum Samfylkingarinnar og ESB trúboðinu á Íslandi, svipað og með ICESAVE vitleysuna.
 
Þá þurfum við á ný að geta átt forseta með bein í nefinu sem hikar ekki við að vísa slíkum ólögum til þjóðarinnar.

mbl.is Vilja lenda makríldeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur Joð er "Svikari" = Júdas Ískaríot í ESB málum !

Eftir að hafa svikið eitt helsta stefnumál VG fyrir síðustu kosningar um það að berjast gegn ESB aðild, þá sótti hann ásamt Samfylkingunni um ESB aðild.
Samfylkingin laug því að þetta tæki 12 til 18 mánuði og þessu trúðu margir óbreyttir VG liðar og sumir úr þingflokknum líka.
 
Steingrímur Joð gerði enga haldbæra fyrirvara um það að ESB gæti ekki vaðið hér uppi með hundruðir milljóna í áróður fyrir ESB aðild og milljarða í svokallða IPA aðlögunarstyrki að auki.
 
Steingrímur Joð sér ekkert athugaavert við þetta, EKKERT - og fer enn og aftur gegn öllum samþykktum síns eigin flokks skríflis.
 
Hann er í botnlausri afneitun og ætlar sér nú greinilega með hjálp Samfylkingarinnar að leggja VG í rúst í næstu kosningum.
 
Verði honum að góðu, og það er talsverð synd því að VG var eitt sinn flokkur sem hafði mikil áhrif og tugþúsundir stuðningsmanna sem flestir hafa nú snúið baki við þessu botnlausa svikagengi undir forystu Steingríms Joð.
 
Flokkurinn hafði meira að segja eitt sinn virðingu og stuðning langt út fyrir flokksfylgi sitt, sökum staðfestu sinnar og heiðarleika.  Slíkt er nú löngu liðinn tíð.
 
Steingrímur Joð og flokkur hans VG sem nú er orðið að eyðilegu flokksskríbli sem mun ekki eiga sér viðreisnar von framar eftir endalaus ESB svikin á bakinu !

mbl.is Ekki kunnugt um afskipti ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spánn settur í RUSLFLOKK og með 25% atvinnuleysi ! Enn einn stórsigur ESB/EVRU svæðisins.

Evrukrísan vindur enn upp á sig og síðasta útspilið ætlar ekki að virka frekar en annað sem á undan hefur gengið.
Fyrir utan Írland, Portúgal og Grikkland og væntanlega Kýpur líka þá er nú fjórða stærsta hagkerfi Evru svæðisins komið upp að vegg og í öndunarvél ESB/EVRU björgunarsjóðsins og AGS og með 25% sívaxandi atvinnuleysi og "downgradað" í Ruslflokk af Moodys.  
 
Ítalía bíður á bekknum en er samt skyldað til að greiða 20% af "Bail out" björgunarsjóði Spánar á 4% vöxtum en greiðir sjálft yfir 7% vexti á markaði til að afla þessa fjár. Gereyðingarvéla ESB/EVRU vitleysunnar sér alveg um að bræða úr hagkerfum sínum hjálparlaust.
 
Svo talar forsætisráðherrar Spánar og Íslands um enn einn stórsigur EVRUNAR og ESB !
 
Þetta fólk ætti ekki að vera í forsvari fyrir heilar þjóðir því að augljóslega þarf þetta lið að leita sér bæði áfallahjálpar og sálfræðiaðstoðar !

mbl.is Lánshæfi Spánar lækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin mun aldrei hafa meiri þörf fyrir Ólaf Ragnar sem forseta okkar en einmitt nú og næstu ár. !

Ólafur Ragnar hefur heldur betur tekið afgerandi forystu í baráttunni um Bessastaði.
Það er nú nokkuð ljóst að þetta er búið spil fyrir Þóru.
Ólafur Ragnar mun sennilega verða kosinn forseti þjóðarinnar með glæsibrag og vonandi með meirihluta greiddra atkvæða.
 
Þjóðin þekkir Ólaf Ragnar, skarpskyggni hans og rökfimi og gríðarlega þekkingu hans á samélaginu og alþjóða málum. Það þekkir vel kosti hans og auðvitað galla hans líka.
Því yrði þessi sigur Ólafs Ragnars enn þá stærri og merkilegri því að það væri einsdæmi og aldeilis ekki sjálfgefið að forseti sé kosinn fimmta kjörtímabilið í röð.
Sjálfur er ég og margir aðrir efins eða beinlínis á móti því að slíkt fyrirkomulag eigi almennt rétt á sér eða sé sanngjarnt. Sjálfur vildi ég láta breyta þessu fyrir næstu forsetakosningar þannig að kjörin forseti geti aðeins setið í tvö kjörtímabil eða samtals 8 ár.
 
Engu að síður að vel athuguðu máli og eftir að hafa skoða og heyrt í meðframbjóðendum Ólafs Ragnars, þá ætla ég nú sáttur og glaður að styðja Ólaf Ragnar áfram til endurkjörs.
 
Það geri ég vegna þess að nú á þessum víðsjárverðu óvissu tímum, bæði hér innanlands og ekki hvað síst í Evrópu og reyndar víðar í veröldinni. Þá þarf þjóðin á að halda sterkum og reynslumiklum forseta, sem hefur gáfur, kjark og þor til þess að stappa stálinu í þjóðina og standa lýðræðislegan vörð um hagsmuni hennar á öllum vígstöðvum þar sem hann getur komið því við.
Ekki hvað síst verður þörf þjóðarinnar fyrir Ólaf Ragnar gríðarleg þegar mikill meirihluti þjóðarinnar fær loks tækifæri til þess að hafna þessari ESB umsókn og bókstaflega jarða hana.
Þessi umsókn hefur valdið þjóðinni stórtjóni og alið hér á sundurlyndisfjandanum og bókstaflega sundrað þessari þjóð og það á versta tíma í sögu hennar.
Ólafur Ragnar verður þá rétti maðurinn á réttum stað og réttum tíma til þess að blása þjóðinni eldmóð í brjóst á ný og hvetja til sátta um að sameinast um að byggja áfram upp frjálst og fullvalda Ísland án ESB helsis!
 
Hvet fólk til þesss að fara inn á heimasíðu framboðs Ólafs Ragnars og lýsa þar yfir stuðningi við hann. Heimasíðan er: olafurogdorrit.is  

mbl.is Ætlar sér að brúa bilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB/EVRU Ríkið Grikkland í RUSLFLOKK ! "Þetta hefði ALDREI getað gerst hefðum við verið í ESB og með EVRU" !

Þetta glamur yrði sem nú hefur löngu þagnað var samt eitt helsta slagorð ESB trúboðsins á Íslandi eftir efnahagskrísuna hér haustið 2008.
 
Einhverjar svæsnustu falsanir og mestu lygar Íslandssögunnar hafa nú verið afhjúpaðar !
 
"Það sem að varast helst hann vann, það skyldi koma yfir hann" 

mbl.is Fitch lækkar lánshæfi Grikklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband