VG stefnir í sögulegt afhroð - Flokknum fórnað fyrir blindflugið til Brussel !

Ef þetta verða úrslit kosninganna stefnir í algert afhroð og hrun á fylgi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í næstu kosningum.

Í síðustu kosningum hlaut VG 22,7% greiddra atkvæða eða alls um 40.600 atkvæði. Samkvæmt þessum tölum fengju þeir nú aðeins 9,1% og hafa því tapað meira en 23.000 atkvæðum eða nálægt 60% af fylginu er farið.

Reyndar sýnir þessi könnum líka gríðarlegt fylgistap Samfylkingarinnar. 

Samfylkingin var með 29,9% greiddra atkvæða í s.l. kosningum eða 55.700 atkvæði.

Samkvæmt þessum tölum fengi Samfylkingin aðeins 19,1% atkvæða og hafa því tapað yfir 20.000 atkvæðum eða u.þ.b. 35% fylgisins er farið.

 

VG gæti hreinlega átt á hættu að detta út af þingi. Það er greinilegt að ESB herleiðing forystu VG er stærsti örlagavaldur þessa flokks ! 

 

 


mbl.is Björt framtíð eykur fylgi sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn þingmaður VG flæmdur á brott af flokksforystu á villigötum !

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er nú fjórði þingmaður VG á kjörtímabilinu sem að annað hvort hefur verið flæmdur burtu eða hrökklast frá sökum svika og yfirgengilegar valdníðslu flokksforustunar.
Það verður mikill missir af brotthvarfi Guðfríðar Lilju af Alþingi.
Hún hefur verið einn af hæfustu og réttsýnustu þingmönnum VG á Alþingi. Hún hefur verið verðugur fulltrúi jafnréttis- og félagshyggju og einn trúverðugasti og glæsilegasti þingmaður þjóðarinnar.
Hún hefur notið trausts og virðingar langt út fyrir raðir VG.
Áður hafði flokksræðisklíka SJS séð um að bola henni úr flestum trúnaðarstörfum á vegum flokksins s.s. stöðu þingflokksformanns.
 
Steingrími Joð og hanns flokksræðisklíku býður nú ekkert annað en sanngjarnt afhroð í næstu kosningum. Það afhroð eiga þau fyllilega skilið !

mbl.is Guðfríður Lilja hættir um áramótin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI MEIR, EKKI MEIR, Árni Þór ! - Þú hefur algerlega brugðist - Undirferli, leynd, pukur og svikin loforð í ESB málinu varða vegin þinn !

Hver á eiginlega að trúa þessum manni?

Árni Þór hefur verið lúmskur en þægur skósveinn SJS og Flokksráðs VG í ESB málinu og þannig verið helsti "Kvislingur" flokksins í þeim svikum og undirferli.  

Önnur eins "gunga og drusla" hefur ekki sést á Alþingi íslendinga hvorki fyrr né síðar.

Svo notuð séu fræg svigurmæli þíns eigins flokks- formanns.  

Þú hefur svo sannarlega unnið fyrir því að kjósendur refsi þér og flengi þig ærlega í næstu kosningum ! 

 

 


mbl.is Ferlið jafnvel lagt til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persson segir langmikilvægast sé að þjóðin nái samstöðu, þannig náist mestur árangur við kreppuna. Kratarnir hér, hafa með ESB umsókninni alið á ófriði og sundrungu þjóðarinnar.

Ég held að gamli Persson þessi útbrunni Sænski Krati, hafi svo sem ýmislegt til síns máls, þegar að hann segir að á erfiðum tímum og í kreppuástandi þá sé það mikilvægast að sameina þjóðina og að stjórnmálamenn og stjórnvöld snúi bökum saman.
 
Hann gæti kannski reynt að kenna ofstopafullum ESB sinnum og skoðanabræðrum sínum úr Samfylkingunni hér, að það sé ekki vænlegt til árangurs og í raun vonlaust að tvístra og sundra þjóð sinni, jafn illulega og þau hafa gert með þessari hörmungar ESB umsókn.
 
Sem hefur nú þegar valdið stórtjóni og vaxandi úlfuð og sundrungu meðal þjóðarinnar.
 
Enda nýtur aðildarumsóknin sáralítils minnihlutafylgis og ítrekaðar skoðanakannanir sýna að aðeins um og innan við 30% þjóðarinnar eru raunverulega hallir undir ESB aðild.  

mbl.is Samstaðan mikilvægust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG - Hörmuleg kosningaþátttaka í forvali - Deyjandi flokkur sem mun bíða afhroð í næstu kosningum !

Það má efast um það hvort VG nái yfirleitt inn einum einasta manni á þing í Reykjavík í næstu kosningum.

Kosningaþátttakan er fyrir neðan allar hellur og sýnir glöggt hvað þessi sjálfhverfa flokkselíta er algerlega úti á túni og einangruð í eigin flokki. 

Þrír fjórðu hlutar skráðra félagsmanna í VG sjá ekki ástæðu til þess að mæta á kjörstað. Frambjóðendur flokksins, sem flestir eru reyndar annaðhvort hluti af flokkselítunni eða þægir þrælar hennar virðast líka meira og minna vera veruleikafirrtir og blindaðir af Stalínisku flokksræði flokksforystunar.

Þess vegna hefur þeim tekist með hroka sínum og yfirlæti að flæma burt helming af stuðningfólki sínu frá síðustu kosningum og fylgishrunið er ekki búið það mun halda áfram alveg fram að kosningum.

Helstu ástæður þess að fylgið hefur hrunið af VG og hversu hörmuleg staða flokksins er orðin eru þær að flokksforystan hefur ekki hlustað á kjósendur sína og staðið fyrir stórfelldum kosningasvikum með því að brjóta gegn stefnu flokkisns með því að standa fyrir ESB herleiðangrinum til Brussel.

 

Í sameiginlegum kynningarbæklingi allra frambjóðenda flokksins í Reykjavík þar sem frambjóðendum hverjum fyrir sig var gefin kostur á að kynna sig og helstu stefnumál sín og hvernig þau hyggðust koma þeim fram. En í þessum kynningarbæklingi var vandlega passað upp á það að enginn þeirra minntist einu orði á afstöðu sína til ESB eða aðildar umsóknarinnar. Þetta þótti mörgum ansi klént, eins og þetta væru saman tekin ráð að undirlagi Flokksfoustunnar.  

Þess vegna var það ekkert skrítið að á bloggsíðunni "Vinstri Vaktin gegn ESB" var leitað eftir ákveðnum svörum frá öllum frambjóðendum VG í Reykjavík í þessu forvali um afstöðu þeirra til ESB aðildar og umsóknarinnar.  Skemst er frá því að segja að mjög illa gekk að fá svör frambjóðenda við þessum sjálfssögðu og lýðræðislegu spurningum. Svör eða einhver viðbrögð bárust vægast sagt seint og illa. Á endanum tókst að fá einhver svör eða yfirlýsingar frá aðeins um þriðjungi þessa fólks.

Hin sýndu þann fádæma hroka að hundsa algerlega spurningarnar.

Þau fáu sem að þó svöruðu, með örfáum undantekningum þó, svöruðu þau flest andstætt við stefnu flokksins með ESB daðri, reyndar með mjög loðnum hætti, eða að svörin voru full af skætingi út í fyrirspyrjandann.

Sum þessara sem teljast þó hafa "svarað" þver neituðu reyndar að svara spurningunum beint, heldur sendu þess í stað á síðustu stundu frá sér yfirlætislegar en loðmollulegar yfirlýsingar.

Þetta fólk mun því ekki ná neinu til baka af því gríðarlega fylgi sem þegar hefur ákveðið að yfirgefa flokkinn.

Þau eru ekki einu sinni í neinum tengslum við þá sárafáu sem þó enn teljast til stuðningsmanna flokksins. Því að þrátt fyrir allt þá er það þó þannig að mikill meirihluti þessa hóps sem eftir situr, er andsnúinn ESB aðild og meirihluti þeirra vill líka afturkalla ESB umsóknina.

Þess vegna mun fylgishrun VG halda áfram alveg fram að kosningum.

 

   

 

  


mbl.is „Ég er ekki ómissandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nærtækara væri fyrir Árna Þór að leyfa þjóðinni að fá að kjósa um ESB hörmungina þegar í stað og fella þetta RUGL !

En það gerir hann auðvitað ekki þessi lævísasti og óforskammaðasti kosninga svikari, allra tíma.
 
Nú reynir hann á síðustu metrunum að bjarga sér og sínum óheilla svika flokki með því að reyna að fá að lögleiða það að honum og öðrum óforskömmuðum pólitíkusum leyfist að draga börn undir lögaldri á kjörstað til að kjósa sig.
 
Honum verður ekki kápan úr því klæðinu.
 
VG á skilið ærlega rassskellingu í næstu kosningum fyrir ótrúlega óheiðarleg svik sín gagnvart kjósendum sínum í ESB málinu.
 
Við fyrrverandi tugþúsundir stuðningsmanna VG úr síðustu kosningum sem teljum okkur illa svikin, skulum strengja þess heit að þeir fái sína ráðningu í næstu kosningum.
 
Markmiðið er að VG fái svo á illa á baukin í næstu kosningum að ALLIR HELSTU KOSNINGASVIKARAR FLOKKSAPPARTSINS falli af þingi, þar með talin fyrrnefndur Árni Þór ásamt formanni flokksins og reyndar miklu fleirum. 
 

mbl.is Vill lækka kosningaaldur í 16 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helreiðin til Brussel endanlega búin að gera útaf við VG. Forystan stendur uppi ein og yfirgefin öllu trausi rúinn..

Eftir stórsigur VG í síðustu kosningum þar sem fullt af nýju hæfileika- og hugssjónafólki kom inn á þing fyrir flokkinn eins og Guðfríður Lilja, Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason og reyndar margir fleiri.
Fólk sem með framgöngu sinni hafði dregið að flokknum þúsundir nýrra kjósenda, þannig að þegar upp var staðið vann flokkurinn sinn stærst og glæsilegasta kosningasigur.
Nú er þetta fólk orðið mætt og þreytt, hugssjónablikið er farið úr augunum og vonbrigðin lýsa sér ekki.
 
Flokksforustan brást vonum þeirra, flokksræðið drap hugssjónir þess. ESB svikin voru fyrsta skrefið þar sem Brussel blindfluginu hefur verið haldið áfram á fullu gasi þrátt fyrir algeran forendu brest.
 
VG mun fá rosalega rassskellingu í næstu kosningum.
Rassskellingu sem vonandi verður þeim ráðning til þess að endurmeta stöðu sína og skammast sín.

mbl.is Guðfríður Lilja stóð með grunngildunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klíkan í kringum Steingrím J. Allsherjarráðherra VG, er allsráðandi !

Það sést alveg með þessari skipun Álfheiðar Ingadóttur í stöðu þingflokksformanns VG.
Þeir þægu og fylgispöku við allsherjarráðherrann sitja nú á öllum póstum hjá VG.
 
Villiköttunum hefur flestum verið varpað fyrir borð eða þeir flúið.
 
En sitja einhverjir eftir múlbundnir eins og Guðfríður Lilja, sem vikið var úr stöðu þingflokksformanns á sínum tíma og Jón Bjarnason sem rekinn var úr stöðu sjávarútvegs- og landbúnaðarmála að kröfu ESB og Samfylkingarinnar.
 
Eftir stendur Samfylkingarhjáleigan sem einangraður villutrúa sérvitringaflokkur þjóðsvikara með allt niður um sig, rúinn öllu trausti bæði kjósenda sinna og þjóðarinnar.   
 
Enginn íslenskur stjórnmálaflokkur hefur áður sýnt af sér meiri sjálfseyðingarhvöt en VG. 
 
Sjá þessi pólitísku viðundur þau sem kalla sig nú um stundarsakir aðstoðarráðherra þeirra SJS og Kötu Jak, ráðast illkvitnislega að ESB andstæðingum innan flokksins á málgagni þeirra Smugunni í dag.
  
Hafi þau skötupör ævarandi skömm fyrir, svei þessu pakki ! 

mbl.is Álfheiður formaður þingflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG - Grafskriftin frá Hólum verður svona: Hér hvílir VG og öll þeirra ESB svik og önnur svikin kosningaloforð ! Hvíli þau í friði !

Það fór eins og ég marg sagði hér og víðar í síðustu viku að þessi svokallaði Flokksráðsfundur VG norður á Hólum yrði ekkert annað en eitt leikritið enn og sýndarmennskan uppmáluð.
 
Ekki það að þessir svokölluðu flokksráðsfundir endurspegli neitt grasrót flokksins, eða almenna stuðningsmenn hans.
 
Heldur er þetta fjarstýrð upphafningarsamkoma flokksræðisins og helstu flokkshestana svona fornt fyrirbrigði frá Stalíns tímanum og á ekkert skillt við lýðræði eða opnar og frjálsar umræður.
 
Enda fór það svo sem ég spáði að þessi marklausi Flokksræðisfundur myndi engu skila og upphlaup og uppgerðar mótmæli meirihluta þingflokksins frá síðustu viku við áframhaldandi stefnu og framgöngu í ESB málinu yrði svæft svefninum langa undir öruggri stjórn sannrar Stalínskrar Steingrímsku.
 
Þar með fór reyndar síðasti séns þessa annars fyrrum um margt ágæta stjórnmálaafls, til þess að nálgast uppruna sinn og breyta um stefnu og vinna eitthvað til baka af gjörtöpuðu fylgi sínu.
 
En NEI þau voru kefluð í sinni spennitreyju flokksræðisins.
 
Þess vegna er VG sem alvöru stjórnmálaafl nú búið að vera innan skamms, ekki einungis meðal fyrrum stuðningsmanna sem nú hafa tugþúsundum saman kvatt flokkin heldur einnig meðal andstæðinga hans sem engu að síður báru hér áður fyrr þó nokkra virðingu fyrir staðfestu og stefnufestu flokksins og forystunnar.
 
Nú er það farið líka. Niðurlæging VG er alger.
 
Grafskriftin um VG sem stendur í fyrirsögn þessa pistils, mun eins og ýmislegt annað úr sögu þessarar þjóðar verða greipt í gamlan grágrýtis stein á Dómkirkjunni á Hólum í Hjaltadal!

mbl.is Áfram samstarf vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandi stefnt inn á jarðsprengjusvæðið, inn í EVRU-skuldavandann, með hraði, segja þeir - EVRAN er nú talin hættulegasti gjaldmiðill heims !

Þessu liði í ESB samninganefnd Íslands er ekki sjálfrátt, enda öll nefndin í raun umboðslaus frá þjóðinni sjálfri. Enginn kaus þessa nefnd yfir okkur. Hún er einungis handvalin af einum manni honum Össuri hinum Skarpa sjálfum.
EVRU svæðið logar nú allt stafnana á milli í ósjálfbærum skuldavanda og óstjórn og óeiningu.
Bankakerfið er þar allt á hausnum og almenningur látin sjá um að standa undir björgunaraðgerðunum, sem enginn sér fyrir endann á.
 
Allt regluverk ESB um fjármála- og bankastofnanir er allt í molum og gersamlega ónýtt.
Í örvæntingu og ráðaleysi ESB Valdaelítunnar er hver Neyðarbjörgunarsjóðurinn á fætur öðrum nú stofnaður á kostnað almennings, auðvitað. Samtals eru nú komnar meira en trilljón Evrur inn í þessa sjóði til bjargar gjaldþrota ríkissjóðum og ónýtu banka- og fjármálakerfi.
Atvinnuleysi er í hæstu hæðum eða að meðaltali 11,2% á Evru svæðinu og fer enn ört vaxandi. Ofan á það bætist að atvinnuþátttaka á EVRU svæðinu er með því lægsta sem þekkist í þróuðum ríkjum og fer ört lækkandi.
Á Íslandi er atvinnuleysi nú með því al lægsta sem gerist í Evrópu eða aðeins tæplega 5% og fer lækkandi og atvinnuþátttaka með því hæsta sem gerist í heiminum eða u.þ.b. 80%.
 
EVRU svæðið er mesta og versta atvinnuleysis bæli í víðri veröld.
 
EVRU svæðið er nú lægsta og versta hagstjórnarsvæði heims með öfugan hagvöxt og vaxandi samdrátt.
EVRU svæðið og skulda vandinn þar ógnar nú ekki bara öllu svæðinu sem slíku og íbúum þess, heldur stafar allri heimsbyggðinni líka talsverð ógn af þesssum manngerðu stjórnleysis hörmungum.
Reiknað hefur verið út að ef við værum í ESB og með EVRU væri þjóðin búin að greiða eða ganga í ábyrgðir fyrir 115 milljörðum króna eða 360.000- krónum á hvert mannsbarn eða 1,5 milljónum króna á hverja 4ra manna fjölskyldu.
Allt til þess að standa undir Neyðar björgunarsjóðunum til bjargar Evrunni og þessar fjárhæðir eiga enn eftir að hækka.
Auk þess sem Ísland yrði að greiða a.m.k. lágmark 9 milljarða króna árlega í klúbbgjald til Brussel til að standa undir öllu svínaríinu og glasaglamrinu þar.
 
Þjóðin vill ekkert inn í þetta ofríkis ríkjasamband ESB, hvað þá taka upp þennan stórhættulega skuldavafning þeirra EVRUNA ! 
 
Þess vegna sem betur fer þá verður þessari þjóðhættulegu Samninganefnd Íslands fljótlega settur stólinn fyrir dyrnar og hún rekinn og það af þjóðinni sjálfri, með einum eða öðrum hætti !

mbl.is Evran verði tekin upp sem fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 65838

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband