Færsluflokkur: Evrópumál
Sunnudagur, 14. júní 2015
"Þetta hefði aldrei skeð hefðum við verið í ESB og með Evru" - Hörmungarnar í Grikklandi halda áfram þrátt fyrir ESB og með Evru - Eða eigum við að segja eimitt vegna þess að þeir eru óburðugir í ESB og með Evru !
Hrikalegt er að fylgjast með þessum "Gríska harmleik"
Þessi forna og mikla menningar þjóð virðist nú komin að fótum fram.
Íslenskir ESB sinnar héldu því lengi fram að hér hefði aldrei orðið neitt bankahrun og allt hefði veri hér í "gúddí" hefðum við bara verið undir verndarvæng ESB og með Evru.
Það reyndist allt rangt, því bæði varð gríðarlegur samdráttur og hrun víðast í Evrópu og atvinnuleysi miklu verra og samdráttur hefur verið þar gríðarlegur þrátt fyrir Evru og einmitt vegna ráðlausrar Ráðstjórninnar í Brussel.
Meira að segja er það staðreynd sem er að vekja stórkostlega athygli umheimsins að litla Ísland með sitt sjálfsstæði utan ESB og með sína eigin krónu er að rétta miklu mun hraðar og betur við efnahaginn en flest megnlands ríki Evrópusambandsins, sem enn eru í botnlausu ráðleysi og atvinnuleysis- ruglinu !
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 27. maí 2015
Fámenn mótmæli uppreisnarseggja gegn "Simma Klikk" undir blaktandi ESB fánum !
Uppreisnarseggir og veggjakrotarar með ESB fána mættu á Austurvöll í gær, með skiltum sem á stóð "SIMMI KLIKK" og þar var átt við forsætisráðherra þjóðarinnar
Það voru reyndar ekki nema örfáar hræður sem mættu og miðað við viðbúnaðinn sem RÚV og aðrir vinstri besservissarar voru búnir að auglýsa alla vikuna þá var eftirtekjan náttúrlega nöturleg fyrir sjálfa uppreisnarseggina.
Þetta fór greinilega mjög mikið í taugarnar á sumum skemdarvarganna sem þessvegna enduðu á því að einn þeirra réðst að Alþingishúsinu og lögreglu meðan hinir útkrotuðu sóðalega út styttu Jóns Sigurðssonar sem síðan endaði með því að einhverjir óróaseggjanna fannst ekki nóg að gert og báru því eld að frelsishetju íslensku þjóðarinnar, eins og sést á frétta myndum.
Sem betur fer þá fer þeim nú sífellt fækkandi sem treysta þessu úrtölu- og uppgjfarliði íslenskra uppreisnar- og byltingarseggja sem vaða um með veggjakroti og skemmdarverkum talandi um "klikkhausa" um leið og þeir níða land okkar og þjóð niður undir blaktandi fánum ESB Stór- ríkisins !
![]() |
Elín ósátt við eggjakastið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. apríl 2015
Undirferli Árna Páls í Brussel til að fá embættismenn þar til að hundsa utanríkisstefnu Íslands !
Þessi fáheyrða framganga Árna Páls í Brussel er ósvífinn aðför að sjálfsstæði þjóðarinnar og réttkjörnum stjórnvöldum.
Að hann skuli með þessum undirferlum beita sér í Brussel til að fá embættismenn þar til þess að taka sig saman um að hundsa utanríkisstefnu þjóðarinnar og lítilsvirða og sniðganga vilja réttkjörinna íslenskra stjórnvalda er aðför að lýðræðinu og hagsmunum og sjálfsstæði íslensku þjóðarinnar.
ESB sinnaðri utanríkisstefnu Árna Páls og flokks hans Samfylkingarinnar var algerlega hafnaðað í þingkosningunum 2013 með því að flokkur hans með sína ESB stefnu bauð algert afhroð með aðeins 12,9% fylgi.
Við stjórnartaumunum tóku tveir stærstu stjórnmálaflokkar þjóðarinnar sem báðir höfðu á stefnuskrá sinni að slíta aðildarferlinu við ESB og að Ísland ætti ekki heima í ESB.
Samfylkingin og Árni Páll verða að virða lýðræðið og lýðræðislegan rétt þjóðarinnar. 12,9% flokkurinn hefur ekkert umboð til að móta utanríkisstefnu Íslands og hann getur heldur ekki sótt það umboð til embættismanna í Brussel.
Árni Páll hefur engan lýðræðislegan rétt til þess að fá embættismenn í ESB til þess að ganga gegn íslenskum stjórnvöldum.
Undirferli af þessu tagi eru ólíðandi í lýðræðis ríki.
![]() |
Leitar liðsinnis innan ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 16. mars 2015
Það eru enginn lög í landinu sem segja að aðildarviðræður við ESB skuli vara um aldur og ævi !
Það er merkilegur hroki í þeim sem virðast halda það að þingsályktunartillaga nokkurra fyrrverandi stjórnarþingmanna sem reyndar flestir eru fallnir út af þingi skuli vara um alla eilífð og sé ósnertanleg heilög kú.
Þessi þingályktun um ESB aðildarviðræður sem reyndar var ekkert annað en viljayfirlýsing þessara þingmanna og þáverandi ríkisstjórnar. Auk þess var tillagan þvinguð í gegn með einhverjum stærstu kosningasvikum og þvingunum á þingmönnum VG sem sögur fara af. Sömu þingmenn höfnuðu því líka ítrekað að þjóðin fengi beina aðkomu að málinu.
Það er ekkert í lögum landsins eða stjórnarskrá sem segir það að þessar aðildarviðræður skuli vara um aldur og ævi og séu ósneratanlegur og heilagur gerningur þessa fyrrverandi þings.
Reyndar eru engar viðræður í gangi því þær strönduðu fyrir meira en tveimur árum í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar vegna andstöðu ESB sjálfs við þá fyrirvara sem Alþingi hafði sjálft sett í sjávarútvegsmálum.
Vorið 2013 var gengið til kosninga og þáverandi stjórnarflokkar Samfylking og VG guldu sögulegt kosninga afhroð fengu samanlagt aðeins 16 þingmenn af 63, en höfðu áður haft 34 þingmenn.
Núverandi Ríkisstjórn er meiri hluta stjórn tveggja flokka hún er á móti ESB aðild studd af landsfundum beggja stjórnarflokkanna. Það væri algerlega á móti lýðræðinu og þingræðinu að þessi stjórn færi að framfylgja strandaðri stefnu fyrrverandi rikisstjórnar í ESB málinu eða utanríkismálum yfirleitt !
![]() |
Gunnar Bragi fullkomlega úti að aka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 14. mars 2015
Kata Jak. vill framlengja ESB svikaslóð Vinstri Grænna !
Katrín Jakobsdóttir staðfestir hér að hún er ómerkilega lítilsigldur stjórnmálaforingi.
Nú hafði hún einstakt tækifæri til að rífa sig burt frá Samfylkingunni og kvitta fyrir svikaslóð Steingríms J. í ESB málinu. En nei hún lagðist enn og aftur kylli flöt fyrir Brusselvaldinu. Nú skrifar hún undir betlibréf til Brussel bossa. Plís ekki taka okkur af inngöngulistanum, við verðum sem allra lengst að halda úti kosningasvikunum og ESB svikaslóðinni frá 2009 ! Aumkunnarvert !
![]() |
Stjórnarandstaðan sendir ESB bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 09:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 15. febrúar 2015
Dagur hræsnari sendir samúðarkvejur til Danmerkur !
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það afhverju mér finnst þessi sýndarmennska hans vera hræsni og ekkert annað ! Yfirleitt er Dagur seinn til viðbragða og er oftast mjög hugsi talsvert lengi áður en hann þorir sig að hreyfa, eða taka nokkra ákvörðun !
![]() |
Samúðarkveðja til Kaupmannahafnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 13. janúar 2015
Ásmundur hrópaður niður af öskuröpum Rétttrúnaðarkórsins !
Þingmaðurinn sagði ekkert meira en það að hann spurði aðeins hvort að það þyrfti ekki að ræða þessi mál og hvort við þyrftum ekki á alveg sama hátt og öll nágrannalöndin í kringum okkur hafa gert og eru að gera í enn frekara mæli að auka á eftirliti og aðgæslu með grunsamlegum Islamistum og herskáum hópum þeirra í samfélögum sínum.
Afhverju skildum við ekki vilja gæta sama öryggis hér, þó á minni skala sé.
Sjálfur hafði formaður Múslima á Íslandi Salman Tamimi miklar áhyggjur af þessu á haustdögum 2010, en þá fór hann til lögreglu og sagði þeim að hann óttaðist mjög að öfgasinnaðir Islamistar kynnu að reyna að smygla sér til landsins.
Salman Tamimi var ekki hrópaður niður sem rasisti með þessar áhyggjur sínar.
Salman Tamimi hélt því líka fram í nýlegum útvarpsþætti að við værum í mikilli hættu að verða fyrir árás þessara hryðjuverka af því að í byrjun þessarar aldar hafði Ísland stillt sér upp með USA og flestum hinna vestrænu ríkja í deilu þeirra við harðstjórann Sadam Hussein.
Nú er ráðist að miklu offorsi að Ásmundi úr öllum áttum og hann sakaður um útlendingahatur og Islamista fóbíu, en hvað þá með sjálfan formann Múslima á Íslandi, sem var og miklu frekar að lýsa yfir ógn og hættu sem við kunnun að búa við frá þessum hópum Islamista ?
Hvað líka með okkar helstu nágranna sem gera þetta allt og það í vaxandi mæli. það er fylgjast með einstaklingum og hópum Islamista, það sem Ásmundur vildi aðeins ræða hvort við þyrftum ekki líka að einhverju leyti að huga að til að gæta öryggis okkar.
Það er orðið stutt í að tjáningarfrelsinu og málfrelsinu á Íslandi stafi veruleg ógn af þessum endalausa rétttrúnaði sem á sér vart hliðstæðu í vestrænum heimi nema ef vera skyldi í Bandaríkjunum á tíma Mcchartys þegar þeir sáu hættulega kommúnista alls staðar.
![]() |
SUS fordæmir ummælin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 14.1.2015 kl. 00:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. janúar 2015
"Allahu akbar" - Guð er mikill !
Grimmd og viðbjóður eru árásir þessara Islömsku öfgamanna í Frakklandi sem vekja nú óhug um allan heim.
Það er ekki rétt sem sumir íslenskir fréttamenn éta hverjir eftir öðrum að 99% Franskra Múslima séu friðsemdar fólk.
Það hefur margsinnis verið sýnt fram á það í skoðanakönnunum að yfir 50% Franskra Islamista styðja Islömsku glæpasamtökin ISIS.
![]() |
Maðurinn sem bauð þeim birginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 3. nóvember 2014
Öfugmæla mótmæli -Ætli þeir mótmæli ekki veðurblíðunni á Austurvelli líka!
Það eru sjálfssögð mannréttindi í öllum lýðræðisríkjum að fólk nýti sér tjáningarfrelsið og mótmæli því sem hverjum og einum finnst að eigi skilið þeirra mótmæli.
Seint eða líklega aldrei verða samfélög okkar mannanna fullkominn og alltaf má benda á að þörf sé á umbótum eða breytingum.
En mér er svolítið hulin ráðgáta hverju mótmælendur ætla að mótmæla á Austurvelli í dag ?
Fundarboðendur segjast vera að mótmæla Ríkisstjórninni sem setið hefur við völd í 18 mánuði. Einnig niðurskurði í heilbrigðis- og menntamálum og svo auðvitað almennt þessu sígilda of lágum launum og vondum kapítalisma.
Mér finnst þetta hálf gerð öfugmæla mótmæli.
Vegna þess að síðan þessi ríkisstjórn tók við þá hefur:
# Tekist að koma skikki á ríkisfjármálin og reka hér ríkissjóð hallalausan og stöðva skuldasöfnun.
# Tekist að kveða niður atvinnuleysið sem er nú það minnsta í Evrópu.
# Tekist hefur með markvissum aðgerðum að kveða niður verðbólguna og stöðugleiki með vaxandi sóknarbyr ríkir
# Tekist hefur að koma hjólum efnahagslífsins af stað þannig að fjárfesting atvinnulífsins hefur stóraukist. Miklar nýjar fjárfestingar innlendar og erlendar eru farnar af stað eða við það að hefjast.
# Tekist hefur að snúa spilunum í efnahagslífinu þannig við að hér er bullandi góður hagvöxtur.
# Tekist hefur að stórlækka skuldir heimilanna og eigið fé einstaklinga og fyrirtækja hefur stóraukist.
# Kaupmáttur allra launatekna hefur vaxið hröðum skrefum, enda er einkaneysla almennings að stóraukast. Þannig eru kjör alls almennings að stórbatna.
# Allt þetta hefur gert það að verkum að nú er bullandi lag á að afnema hér fjármagnshöftin í stórum skrefum þó þannig að það spilli ekki stöðugleikanum og kjörum fólks og þeim góða árangri sem þegar hefur náðst.
# Framlög til heilbrigðis og menntamála hafa verið stóraukin, en eflaust þarf að gera þar miklu betur og vegna þess hvað vel hefur gengið og bjart er framundan þá eru sem betur fer bullandi færi á að gera það.
Alveg eins og veðurblíðan leikur við okkur í dag sem er táknrænt fyrir þessi "öfugmæla mótmæli" þá er líka bjart yfir landinu okkar og stórsókn hafin fyrir styrkum efnahag og bættum lífs kjörum fólksins í landinu.
Veðurblíðan ætti alla vegana ekki að skemma fyrir í þessum öfugmæla mótmælum þeirra við að mótmæla góðærinu og stórum bjartari horfum þjóðarinnar allrar, já og góða veðrinu um leið, alveg væri það í stíl þessara öfugmæla mótmæla að mótmæla veðurblíðunni á Austurvelli líka !
![]() |
Fyrstu mótmælendurnir mættir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. október 2014
Þetta er það eina skynsamlega sem frá þessari arfa slöppu stjórnarandstöðu hefur komið!
Loksins kemur eitthvað af smá viti frá þessari vesölu stjórnarandstöðu.
Hingað til hefur þaðan ekkert komið annað en lýðskrum, uppþot, málþóf og einelti.
Reyndar hefur stjórnarandstaðan varla haft nokkra málefnalega skoðun á innanlandsmálum þjóðarinnar, því að þeirra mati er allt ónýtt á Íslandi og eina lausn þeirra á flestum málum hefur verið að væla um að troða okkur undir vald Elítunnar í Brussel.
En batnandi fólki er best að lifa. En ætli ríkisstjórnin hafi nú vit á því að hlusta. Ríkisstjórnin virðist alltaf óttast stjórnarandstöðuna mjög þegar kemur að ESB málum og marg beigt sig þegar að þeim málum kemur, jafn ömurlegt og það nú er.
![]() |
Bankastarfsemi verði aðskilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Lirfur frá helvíti kostað milljónir
- Hermenn alls staðar ef mótmælin aukast
- Þrír á sjúkrahús eftir sprengingu
- Banna botnvörpuveiðar á 30.000 ferkílómetra svæði
- Hundruð þjóðvarðliða á götum Los Angeles
- Segir Rússa spila óheiðarlega pólitíska leiki
- Hótelverð hækkað um 50 prósent
- Lík Sinwars fannst undir sjúkrahúsi