Færsluflokkur: Evrópumál
Þriðjudagur, 15. nóvember 2016
Stjórnarmyndunarviðræðum slitið ! Gott mál !
Það var augljóst að Viðreisn og BF gerðu ESB málið að úrslitaatriði í þessum stjórnarmyndunar viðræðum. Þessir tveir litlu flokkar ætluðu aðeins að ná ESB málinu fram, það var og er þeirra ær og kýr. Fyrir þa skiptu önnur mál nánast engu máli. Það var heiðarlegt hjá Bjarna að segja hingað og ekki lengra og ekki svíkja í ESB malinu ! Tími til kominn að fólk og flokkar standi á sannfæringu og stefnu að vilja halda landi okkar og þjóð utan þessa "brennandi húss" Evrópusambandsins !
![]() |
Vildu halda viðræðunum áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 15. nóvember 2016
Donald Trump mun koma á óvart !
Obama er víst með einhverjar áhyggjur. En Trump mun verða öðruvísi forseti og vonandi mun hann láta af þessu heimskulega Rússa hatri og semja frið við Pútín og leggja drög að friðvænlegri og betri heimi.
![]() |
Biður fólk að gefa Trump tækifæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 24. júní 2016
BREXIT - Rothögg à ESB ! - FormaÄur ViÄreisnar þarf àfallahjàlp !
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. mars 2016
"Allahu Akbar" Guð er mikill - öskruðu morðingjarnir í Brussel áður en þeir sprengdu sig í loft upp með banvænum naglasprengjum ! Enn ætlar borgarstjórnin að leyfa byggingu Mosku á gjafalóðinni í Sogamýri.
Enn eittt skelfilegt hryðjuverkið er nú framið í Evrópu í nafni Spánmannsins og trúarinnar á hann, af haturfullum og morðóðum Islamistum.
Dagur borgarstjóri sendi víst samúðarkveðjur til Brussel, mikil er hræsni hans og tvískinningur.
Ísland er friðsamasta ríki heims og hefur verið það til margra ára. Hér eru færri ofbeldisglæpir en í nokkru öður ríki Evrópu.
En Dagur og Co finnst að höfuðborgin þurfi að verða alþjóðlegri og fjölmenningarlegri, kannski svona Brusselsk og því tóku þeir upp á því að gefa eina bestu lóð borgarinnar undir Mosku fyrir múslima.
Engu virðist breyta fyrir Dag og co að verulega andstaða er við þetta ráðslag þeirra og heldur virðist það þá engu skipta þó að víða í Evrópu séu yfirvöld að láta loka moskum múslima og annarsstaðar hafa byggingarleyfi fyrir nýjum moskum verið afturkölluð.
Dagur og co vilja heldur engar skorður setja við því að bygging Sogamýrarmoskunnar verði fjármögnuð af Saudi Aröbum eða öðrum vafasömum hryðjuverkahópum Islamista.
Ekkert virðist heldur bíta á þeirra einbeitta múslimska "fjölmnningar" vilja að nýlega hefur danska sjónvarpsstöðin TV2 í Danmörku sýnt vandaða sjónvarpsþætti þar sem fram koma sannanir fyrir því að í Moskum Danmerkur er almennt boðað hatur og ofbeldi að hætti Sharía laga múslima. Að múslimar eigi ekki að samlagast þjóðfél0gum vesturlanda og að þeir megi ar af leiðandi ljúga og svíkja til að sniðganga dönsk lög og misnota félagskerfið til hins ítrasta.
Ekkert segir okkur að starfið í íslenskum moskum verði með eitthvað öðrum hætti en í Danmörku og víðar um Evrópu þar sem oft hefur komið fram að moskurnar eru notaðar til að útbreiða hatur og ofbeldi gagnvart vestrænum samfélögum og þær hafa margsinnis verið notaðar sem vopnageymslur og skjól fyrir hryðjuverkamenn Islamista.
Viljum við að okkar friðsama þjóð dragist inn í þennan óþvera og verði leiksoppur þessara ofbeldisafla ?
Eða þorum við að standa í lappirnar og styðja Íslensku Þjóðfylkinguna til áhrifa og valda í íslensku samfélagi - Eina aflið hérlendis sem þorir að andæfa gegn þessum undarlega sjálfseyðandi navíisma!
![]() |
Guð er mikill og hávær hvellur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 28. október 2015
Stutt í fasismann þegar valdsmenn krefjast þess að lýðræðið víki fyrir: Ein Reich eine EU Union !
Það þarf ekki frekari vitnanna við hér fer elítu forseti Portúgals fram á það að ekki verði tekið mark á lýðræðislegum kosningum eða yfirlýstum vilja fólksins og að lýðræðinu í eigin landi verði vikið til hliðar vegna þess að það þóknist ekki hagsmunum ESB og miðstjórnarlegum valda hugmyndum þess um eitt ríki og eina miðstjórn ! Nei við ESB !
![]() |
Vill ekki vinstriflokka í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 5. október 2015
Til að þóknast - "góða og fína fólkinu" ómerkir Innanríkisráðherra dóm Hæstaréttar ! Og þverbrýtur grundvallarreglur réttarríkisins !
Og við sem töldum okkur lifa í réttarríki þar sem þrískipting ríkis valdsins tryggði eðlilegan og réttlátan framgang réttvísinnar og girðingum og hindrunum til að hindra misbeitingu þessa valds.
En við sjáumm nú að það er ónýt og úrellt regla vegna þess að "góða og fína fólkið" hefur sagt innanríkisráðherra að í þessu máli verði að grípa fram fyrir hendurnar á Hæstarétti Íslands æðsta dómsvaldi þjóðarinnar og ómerkja þennan dóm sem dæmdi þó alveg skýrt eftir lögum landsins !
Og takið eftir, hún Innanríkisráðherrann lætur undan kröfum um lögleysuna og þorir ekki annað en guggna og þverbrýtur þar með allar grundvallarreglur réttarríkisins um þrískiptingu ríkisvaldsins !
Og þessi kona ætlar víst að verða Varaformaður Sjálfsstæðisflokksins ?
"Góða og fína fólkið" hefur því miður í skjóli fjölmiðla elítunnar tekið öll völd í þjóðfélaginu og stjórnmálastéttin til hægri og vinstri er í herkví og gíslingu þessa liðs !
Það er löngu komin tími fyrir nýtt afl fólksins í landinu sem þorir að rísa upp gegn þessum óskapnaði, þessum yfirþyrmandi pólitíska réttrúnaði !
![]() |
Verða ekki sendir aftur til Ítalíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 6.10.2015 kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 20. júlí 2015
Hollande hinn Franski er villuráfandi pólitískur fáráðlingur !
Hollande er algerlega rúinn fylgi og trausts og innan við 15% þjóðarinnar bera traust til þessa villuráfandi og vesæla leiðtoga Frakklands.
Síðasta hálmstrá hans er því svipað og íslenskra krata að úr því að þeir séu algerlega vonlausir og getulausir til að "breyta heiminum" þá sé bara best að heimurinn sé í Brussel, þar sem þeir fáí að lokum örugt skjól í samvirkum hópi hinns Evrópska teknó kratiska aðals !
![]() |
Vill sameiginlega ríkisstjórn evruríkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 13. júlí 2015
Óhamingju Grikklands verður allt að vopni - ESB forystan hagar sér eins og í ICESAVE !
Sumir segja að með þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi Gríska Ríkisstjórnin ætlað að reyna að velja íslensku leiðina, en því miður var það of seint.
Vandi Grikkja er að þeir völdu íslensku leiðina of seint -
Fyrst í krísu ferlinu sem hófst fyrir 5 árum þá völdu þeir nefnilega ICESAVE leið íslenskra stjórnvalda sem Evrópusambandið þvingaði þá til að gera, það er þeir ríkisvæddu einkaskuldir óreiðumannanna !
Alveg eins og ESB reyndu að þvinga okkur til að gera og fóru meira að segja með málið fyrir EFTA dómsstólinn, en töpuðu !
ICESAVE leiðin gekk út á það að gera alla þjóðina samábyrga fyrir risaskuldum óreiðumannanna.
Fyrri björgunarpakkar ESB til Grikkja voru ICESAVE leiðin sem var banvænn eiturbikar og það er hinn sorglegi vandi Grikkja í dag, þeir eru fastir í ESB/EVRU gildrunni !
Er nema von að æstustu ESB sinnar á Íslandi séu búnir að missa trúna á þessu ólýðræðislega apparati ESB !
![]() |
Þið yfirgefið ekki herbergið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 9. júlí 2015
Hittir hann "Juncker the Drunker"
Ætli hann togi í bindið hjá Sigmundi.
https://www.youtube.com/watch?v=XPgiI46FCDU
![]() |
Fundar með leiðtogum ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 19. júní 2015
RÚV ætti að biðja þjóðina afsökunar á miklu fleiru ! Hlutleysis- og trúnaðarbrot RÚV eru miklu fleiri og alvarlegri !
"Batnandi fólki er best að lifa" segir máltækið.
En þessi afsökunarbeiðni RÚV er lítil og léttvæg og reyndar aðeins eitt korn af þungu hlassi hlutleysisbrota og pólitísks rétttrúnaðar sem fréttastofa þessarar stofnunar hefur gróflega og ítrekað framið til að draga vagn hinns pólitíska rétttrúnaðar vinstri elítunnar á Íslandi.
Kannski að þeir hafi aðeins gert þetta af því að rithöfundurinn og fyrrverandi VG þingmaðurinn áttu í hlut.
En þeir hafa ekki enn beðið forsetann afsökunar á því hvernig þeir í langan tíma misnotuðu aðstöðu sína í síðustu forsetakosningum gegn ÓRG og með sínum eigin frambjóðanda.
Ekki hafa þeir heldur enn beðið forsetann eða þjóðina afsökunar á því hvernig þeir af mikilli hlutdrægni fjölluðu um ICESAVE málin og hvernig þeir reyndu að troða þeim skuldaklafa upp á þjóðina.
Ekki biðjast þeir heldur afsökunar á því hvernig þeir ítrekað hafa hundsað og sniðgengið skoðanir og sfstöðu ESB andstæðinga meðan þeir í sífellu hampa ESB sinnum og þeirra málsstað.
Hef ekki mikla trú á að þetta sé einhver alvöru siðbót hjá RÚV.
Þeir munu örugglega áfram þjóna sínum og verða því áfram "útvarp vinstri manna og flestra starfsmanna"
![]() |
Bað forseta og orðuhafa afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 06:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar