Öreigaganga No Borders samtakanna stefnir á að ryðjast yfir landamæri USA. Á myndum má sjá einn göngumanna með íslenska fánann?

Ætli þessi göngumaður með íslenska fánann framan á sér sem sést vel á myndum af göngunni sé kannski íslenskur No Borders meðlimur sem ætlar sér að sækja um pólitískt hæli í Bandaríkjum Trumps?

Merkilegt að þessi hópur aðgerðarsinna sem ætlar sér með góðu eða öllu inn yfir landamæri USA skuli yfirleitt vilja inn í Bandaríkin Donalds Trumps?

Afhverju stefnir þessi Suður amerískra ganga ekki inní eitthvert af sæluríkjum sósíalismans á þessum slóðum, s.s. Venesúela, Nicaragva eða Kúpu, þar sem höfuð markmið sósíalismans um algeran jöfnuð hafa að mestu náðst, þ.e. allir eru jafnir í eymdinni því enginn á þar fyrir mat.


mbl.is Sendi 15.000 hermenn að landamærunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakúgun og atvinnuofsóknir hvergi verri en hjá háskólasamfélaginu.

Kristinn Sigurjónsson lektor við verkfræðibraut HR er umsvifalaust rekinn vegna persónulegra skoðana sem hann lætur í ljósi á lokuðum umræðu vef. 

Hinn pólitískri rétttrúnaður er fyrir löngu genginn af göflunum. 

Fórnarlambið er skoðana- og tjáningarfrelsið og akademískt frelsi hefur verið jarðsett.

Uppskeran verður steingelt Orwellskt samfélag, þar sem allt verður bannað nema það hafi sérstaklega verið leyft með lögum sem saminn hafa verið af hinum púrítanska rétttrúnaði.


mbl.is Kristinn biður konur afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV er risaeðla sem ætti að loka og stoppa upp.

Ríkisútvarpið er alger tímaskekkja sem skemmir frjálsa samkeppni og er gróflega misbeitt af pólitískri elítu marxiskrar menningar klíku sem ræður og stjórnar þessari stofnun án nokkurrar lýðræðislegrar aðkomu almanna valdsins.

Þessi ríkisrekna marxíska stofnun hefur með þegjandi samþykki og sjálftöku heimildum aukið völd sín og sogið til sín sífellt meiri fjármuni okkar skattgreiðenda.

Enginn þorir gegn RÚV ræðinu, sem einangrar og hegnir stjórnmálafólki sem ekki lætur segjast um að lúta þessu klíkuræði menningarmarxistanaí Efstaleiti.

Alveg eins og í Austur Þýskalandi þar sem STASI, höfuðstöðvum hinns pólitíska rétttrúnaðar var lokað þegar múrinn féll og því og dótinu þar breytt í safn um þessa hörmungar tíma.

Það sama ætti að gera við RÚV, loka þessari risaeðlu og breyta því í safn fyrir almenning um hinn pólitíska rétttrúnað, innrætingu og skoðanakúgun, komandi kynslóðum til viðvörunar !


mbl.is Ekki stefnt að skertri þjónustu RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SD - Svíþjóðardemókratarnir í lykilaðstöðu eftir sögulegan stórsigur í Sænsku þingkosningunum!

Alveg eins og í DK þar sem Danski þjóðarflokkurinn DF hefur haft gríðarlega sterk áhrif þá koma Svíþjóðsrdemókrarnir nú sterkir inn og hafa nú þegar varanlega breytt landslagi sænskra stjórnmála. Hér á Íslandi er því miður enn enginn breyting, allt stjórnmálalífið krata vætt!

 


mbl.is Krefst afsagnar Löfvens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindaráð SÞ með Ísland innanborðs hlýtur að grípa til aðgerða gegn þessum skelfilegu mannréttindabrotum í Sádí Arabíu !

Nei við því þarf reyndar ekki að búast. Þær hugrökku Sadi Arabísku konur sem barist hafa fyrir mannréttindum í landi sínu og sitja nú bak við lás og slá og bíða dauðadóms mega alls ekki vænta neins liðsinnis frá Mannréttindaráði hinna Sameinuðu þjóða og heldur ekki íslenskra stjórnvalda eða kvenréttindasamtaka á vesturlöndum yfirleitt.

Það næsta sem við heyrum frá Mannréttindaráði SÞ með Ísland inbanborðs verður enn ein harðorð yfirlýsing gegn stjórnvöldum í Ísrael. 


mbl.is Kosta mótmælin hana lífið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalverndunarsinnar eru hræsnarar. Sjálfbærar, ábyrgar hvalveiðar eru stundaðar við Ísland.

Langreiðin er hvalategund í góðum vexti og viðgangi við Íslands strendur og í Norður Atlantshafi, þetta staðfesta rannsóknir og stofnstærðarmælingar Hafrannsóknastofnunar og Alþjóða hvalveiðiráðið einnig. Veiðar okkar íslendinga eru því mjög ábyrgðar og algerlega sjálfbærar og fullkomlega löglegar samkvæmt lögum Íslands og alþjóðaréttar. Allt tal svokallaðra hvalverndunarsinna um annað eru áróður og lygar. Nú reka þeir upp ramakvein yfir því að mögulega hafi ein langreiðin sem veidd var verið með fóstri. Auðvitað getur það verið þetta er heilbrigður stofn í góðum náttúrulegum vexti og viðgangi.

Ramakvein hvalverndunarsinna um hvalafóstrin eru hol að innan, ætlast þeir til að hvert einasta dýr verði sent í ómskoðun áður en það er veitt ? Eins sér maður að það er að stórum hluta sama fólk sem hér hneikslast sem mest sem í nafni frjálslynds vill helst gefa fóstureyðingar á mannabörnum í móðurkviði algerlega frjálsar ! 

images


mbl.is Segja Hval hf. hafa veitt kálffulla langreyði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nigel Farage aftur ì Bresk stjòrnmàl til að þrýsta à um BREXIT !

Þvì ber að fagna innilega að hinn litrìki og mælski fyrrverandi leiogi UKIP Nigel Farage skuli nù snùa aftur af alefli ì Bresk stjòrnmàl og styðja BREXIT hreyfinguna í að lýðræðið og niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 23 júní 2016 séu birtar "Leave Means Leave"


mbl.is Nigel Farage: „Ég er kominn aftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pia Kjærsgaard boðin velkominn til Íslands. Forseti danska þjóðþingsins flytur ávarp á hátíðarfundi á Þingvöllum.

Pia Kjærsgaard forseti danska þjóðþingsins er einn áhrifamesti stjórnmálamaður Danmerkur. Hún var einn af stofnendum Danska þjóðarflokksins (DF) og formaður hans til margra ára.

Hún hefur gert Danska þjóðarflokkinn að áhrifamikilu stórveldi í dönskum stjórnmálum.

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur hefur orðað það þannig að DF eigi sviðið og ráði dagskránni í dönskum stjórnmálum.

Danski Þjóðarflokkinn nýtur fjöldafylgis og er orðinn einn af burðar flokkum danskra stjórnmála og gegnir nú þar lykilstöðu með því að sátt varð um það að Pia Kjærsgaard skyldi verða forseti danska þingsins og DF skyldi veita ríkisstjórn Vestre stuðning.

En áhrif Piu Kjærsgaard og Danska þjóðarflokksins á dönsk stjórnmál ná langt út fyrir flokkinn sjálfan og langt út fyrir landamæri Danmerkur.

Þannig hafa allir stærstu stjórnmálaflokkar Danmerkur orðið að taka tillit til sterkar stöðu DF og nú er svo komið að meira að segja Danski jafnaðarmannaflokkurinn hefur gerbreytt stefnu sinni í innflyjenda málum til að koma til móts við kröfur lýðræðisins.

Það var merkilegt að þingflokkur Pírata lét sig vanta á hátíðarsakomuna, Umburðarlyndi þeirra fyrir skoðunum annarra er hræsnin ein, þeir vildu útiloka forseta danskra þjóðþingsins og þingflokksformaður þeirra lá andvaka í alla nótt út af skoðunum og nærveru Piu Kjærsgaard.

Það er tími til kominn að púrítanskur pólitískur rétttrúnaðar verði kveðinn niður í íslenskum stjórnmálum. 

Nærvera Piu Kjærsgaard á hátíðarfundinum á Þingvöllum í dag slær okkur þjóðlegum og framsæknum öflum eld í brjóst, okkar tími mun koma.


mbl.is Umdeilda áhrifakonan á Þingvöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðför að Vestfirðingum í nafni öfgastefnu í náttúruvernd.

Hvað næst? Verða kannski allir Vestfirðingar friðaðir, líka firðirnir og hafninar þeirra, flugvellirnir og vegirnir líka. Þannig að þeir komist ekki einu sinni burt.

Öll vitum við hvað þessi öfgamennska hefur tafið og eyðilagt fyrir Vestfirðingur og þjóðinni allri um að hægt yrði að ráðast í vega umbætur um sunnan verða vestfirði, samanber áratuga tafir um veglagningu þar. 

Mikið er reynt til að eyðileggja eðlilega uppbyggingu fiskeldisins á vestfjörðum og nú þetta!

Vafalaust á hinn ókjörni VG ráðherra eftir að leggja það til að Hvalárvirkjun verði flautuð af. Öfgarnar blífa! 

 

 


mbl.is Friðlýsing lögð til gegn Hvalárvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breska þjóðin kaus útgöngu úr ESB, það ber að virða, ekki að það yrði bara kosið aftur og aftur ef niðurstaðan þóknaðist ekki ESB !

Breska þjóðin kaus 23 júní 2016 að Bretland ætti að yfirgefa Evrópusambandið. Þetta var stærsta þjóðaratkvæðagreiðsla sem haldinn hefur verið í Bretlandi og það var met í kosningaþátttöku. Meirihlutinn var skýr 52% sögðu nei við ESB. Þessi niðurstaða var alveg skýr.

En allt síðan þá hefur framkvæmdastjórn ESB grafið undan því að lýðræðislegur vilji Bresku þjóðarinnar næði fram að ganga. Það er ekki í fyrsta skipti sem elítan í ESB neirar að virða lýðræðið í aðildarlöndum sambandsins. 

Merkilegt er líka að sjá að fjölmiðlar eins og RÚV og hér Morgunblaðið nú skuli vera uppfullir af fréttum um að ESB sinnar í Bretlandi skuli nú hafa farið í mótmælagöngu til að mótmæla lýðræðinu, en ekkert segja frá því að á sama tíma marsering tugþúsundir Breskir Breta um allt Bretland til að krefjast þess að vilji þjóðarinnar yrði virtur ! 


mbl.is Vilja kjósa á ný um Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband