Hrun markaða í Evru löndum og fum og ráðaleysi ESB sýnir svart á hvítu að þetta stjórnsýsluapparat er ónýtt !

Þetta kemur hreint ekki á óvart og hrunið er mest og alvarlegast á ESB/EVRU svæðinu, þrátt fyrir allt.

Það er alla svokölluðu björgunarsjóðana sem nú eru alls 440 milljarðar EVRA og neyðarráðstafinarnar og alla neyðarfundina og sumarleyfisafturkallanir leiðtoganna og embættisaðals ESB- Elítunnar og stanslausar yfirlýsingar ráðamanna ECB bankans, Seðalabanka ESB hafa greinilega alls engu skilað, aðeins náð að frestað vandanum um nokkra klukkutíma eða kannski nokkra daga og hafa þannig í raun akkúrat ekkert haft að segja.

Markaðurinn sjálfur hefur enga trú á þessum vonlausu pappírstígrum og misheppnuðu pappakössum ESB ráðaleysisins lengur !  

Innantómar og máttlausar björgunartilraunir þeirra koma alltaf of seint og þegar þær loksins koma þá eru þær, nær alltaf kolrangar !

Þannig virkar, eða eiginlega virkar alls ekki svona þungglammalegt og óskilvirkt stjórnsýslu apparat eins og ESB skrifræðis apparatið, sem líkist nú meir útdauðri risaeðlu frá fornöld, eða jafnvel Gömlu Sovétríkjunum og þeirra óskeikulu "Æðstu ráðum" !

 

"Það er í raun hinn sameiginlegi gjaldmiðill EVRAN sem kemur í veg fyrir efnahagsumbætur í mörgum löndum Evru svæðisins"

Þetta sagði þekkti hagfræðingurinn Jeppe Christiansen forstjóri Maj Invest í Danmörku viðtali við Berlingske Tidende fyrir nokkrum dögum síðan.

Margir aðrir sérfræðingar í dönsku efnahagslífi taka í sama streng og segja mörg ríki S-Evrópu í raun gjaldþrota og ástandið sé miklu mun verra og alvarlegra á öllu EVRU svæðinu en hingað til hafi verið haldið.

Öll ríkin, ekki bara S-Evrópulöndin þurfi nú að búa sig undir langvarandi alvarlega skula- og fjárhagskreppu, vaxandi atvinnuleysi, niðurskurð í velferðarþjónustu og lítinn eða engan hagvöxt.

Því spyr maður sig ítrekað og æ oftar, hvers vegna í veröldinni erum við, okkar þjóð, að sækja um aðild að þessu sökkvandi og misheppnaða stjórnsýsluapparati sem þar að auki er með stórgallað eða ónýtt myntkerfi "sem kemur í veg fyrir umbætur".

Ég held að þó svo að þessi ragna rök muni auðvitað hafa talsverð neikvæð áhrif bæði hér og í öðrum Evrópulöndum sem eru blessunarlega utan ESB og með sinn eigin gjaldmiðil.

Þá sjái nú allt sjáandi fólk sem ekki er slegið ESB blindu að það sé nú langtum mun skinsamlegra að standa utan við og fara ekki um borð í þetta sökkvandi hafskip sem heitir M/S ESB-TITANIC !

Hvað sagði ekki ESB sinninn Gordon Brown fyrrverandi fjármála- og forsætisráðherra Bretlands og fyrrum formaður Bresku Samfylkingarinnar nýlega:

"Að jafnvel ennþá núna í dag eftir allt sem gerst hefði á síðustu mánuðum og dögum, ættu leiðtogar ESB enn erfitt með að skilja hvernig að efnahagsstefna Evru-svæðisins kæmi í veg fyrir umbætur og hagvöxt, yki atvinnuleysisvandann og hindraði bata og skildi Evrópu eftir illa undirbúna undir alþjóðlega samkeppni"

En alveg sama hvað í veröldinni gengur á þá heldur ESB trúboðið á Íslandi en fast við sinn keyp. ESB trúboð þeirra heldur áfram eins og ekkert hafi gerst, svona eins og harðlínu- og hreintrúa Stalínistar gerðu eftir afhjúpanirnar um hörmungar og hryllilegar afleiðingar Stalíns tímans !

Þessi ESB umsókninn er fyrir löngu síðan orðin algerlega ónýt og menn eiga að viðurkenna það að hún var alger mistök og reyna nú þess í stað að laga fyrir mistök sín !


mbl.is Bankar leiða fallið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Höfum ekki áhyggjur, allt mun þetta leiðrétta sig á endanum. Spurningin er einfaldlega hversu sáraukafull leiðréttingin verður, erum við að tala um annað Afghanistan, Iraq, Yugoslavia, Soviet, Latin America, Indochina, World War II, World War I o.s.frv., þar sem að stórveldið US of A í North Americas hefur verið leiðandi?

Skiptir þá litlu hvort örríkið Ísland sé "full member of the EU" eða ekki

Kv. 

Atlinn

atlinn (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 17:14

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

@ Atlinn !

Þakk fyrir þitt ágæta, stóíska og heimsspekilega comment.

Alveg rétt hjá þér að náttúrleg lögmál sjá alltaf um sitt eins og að allar ár renna til ósa og allt sem fer upp endar á að koma niður og öfugt og öll él styttir upp um síðir og svo mætti endalaust halda áfram !

Alveg eins og segja má líka að Heimsstyrjöldin síðari var ekkert til að hafa áhyggjur af af því að hún tók auðvitað enda eins og allar aðrar hörmungar eða að hún endaði líka árið 1945 eftir þvílíkar hörmungar. Eins má segja um Sovétríkin sálugu að þau liðu líka á endanumundir lok eða árið 1991 eftir rúmlega 70 ára misheppnaða tilraunastarssemi sem kostaði yfir 50 milljónir manna lífið.

Þannig mun ESB apparatið líka líða undir lok fyrr en seinna !

Gunnlaugur I., 10.8.2011 kl. 17:27

3 identicon

kannski er það ekki spurninginn ..heldur er spurninginn ..hversvegna ættum við að gera allt  sem í ríkistjórnarinnar valdi til þess að troða okkur inní fyrirtæki á við ESB sem ER AÐ HRUNI KOMIÐ ..

til hver ættum við að tróða okkur inn í þetta rugl við hefðum betur eytt þessum tugum miljóna í að koma okkur sjálfum á flot 

Hjörleifur Harðarson (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 17:30

4 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Þráhyggja þessa fólks snyst ekki um þjóðarhag- hún snyst um þeirra framtíð sem er ekki löng.

 Það vita allir sem hafa búið í þessum löndum Italíu og Spáni að þar hrundi allt þegar Evran var tekin upp og vöruverð hækkaði- atvinnuleysi helt öllu í vanda.

  Italskur almenningur var öskuillur og svo Spánverjar- en samt gátu þeir ekki seð þetta mikla hrun fyrir sem síðar varð.

 Það er ekker sjálfstæði eftir hjá þjóðum sem ganga í Evrópusambandið- þau lönd eru bara  . LEPPRÍKI SEM SITJA OG STANDA EFTIR REGLUM FRÁ HÁUM HERRUM

Erla Magna Alexandersdóttir, 10.8.2011 kl. 20:09

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

@Erla Magna.

Ég bý hér á Suður Spáni og hef gert í ca 3 ár, þar sem nú er 30% atvinnuleysi hér í Valencia héraði !

Spánverjum hættir samt mikið til að bera saman tvo fjanda það er Franco Eiræðisherra og svo aftur ESB helsið og þá er ESB helsið þó kannski eitthvað skárra, þó svo að þeir séu nú farnir að vakna upp við vondan draum og vilja svo sannarlega taka upp sinn Pesta á nýjan leik !

Gunnlaugur I., 10.8.2011 kl. 20:16

6 Smámynd: Snorri Hansson

Atlinn, segir að stóru má heimsins  sé svo mörg að það skipti ekki máli hvoru megin veggja Ísland sé. Þ.e.a. s. hans föðurland talandi hans móðurmál sé bara skítur á priki. Ef þetta er skoðun margra þá  upplýsir það margt í skrifum ESB sinna.

Snorri Hansson, 11.8.2011 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 65477

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband