Guðmundur Steingrímsson; Góður og gegn pabbastrákur yfirgefur formóður sína !

Guðmundur Steingrímsson er Samfylkingarmaður, þó ekki alveg dæmigerður því að hann er heiðarlegri og ekki jafn tækifærissinnaður og óforskammaður eins og þeir flestir eru, þó enginn þeirra komist með hælana þar sem Árni Páll ESB aftaníossi "numero uno" stendur.

Eftir að hafa setið sem varaþingmaður SF þar síðasta kjörtímabil kúventi hann síðan óvænt og gekk í Framsókn forfeðra sinna, nokkru fyrir síðustu kosningar, til þess að geta sagst vera kominn heim.

Þannig gat mikilsmetinn faðir hans Steingrímur Hermannson heitinn háaldraður f.v. Forsætisráðherra skilið við þessa jarðvist með sannkölluðum framsóknarsóma !

Ættarlaukurinn, týndi sonurinn, var loksins kominn heim.

Þetta var virkilega fallega gert hjá Guðmundi, en hvað gerir ekki Guðmundur að föður sínum gengnum, hann helst ekki lengi við í í heimdraga Framsóknar einmitt þegar að flokkurinn er æ meir að leita uppruna síns og finna sína týndu fjöl aftur og líkjast æ meir þeim frjálslynda og þjóðrækna Framsóknarflokki sem faðir hans og afi mótuðu og stýrðu farsællega um margra áratuga skeið.

Faðir hans var alla tíð eindreginn andstæðingur ESB aðildar, sannur náttúrverndarsinni, þjóðrækinn og frjálslyndur þjóðfrelsissinni.

Guðmundur Steingrímsson er líka mikill ágætis maður eins og hann á kyn til, en hann er því miður afvegaleiddur pabbastrákur og verður því aldrei sá sterki leiðtogi sem forfeður hans voru.

Ég held að úrsögn hans og örfárra annrarra minni spámanna úr flokknum hafi lítil sem enginn áhrif á Framsókn og fylgi þeirra.

Flokkurinn verður ótvíræðari og jafnvel mun vænlegri fyrir marga kjósendur.

Ég spái að Framsókn styrki verulega stöðu sína, þrátt fyrir úrsögn Guðmundar og einhverra annarra minni spámanna úr þeirra röðum.

Búast má við að margir þeir sem eru óánægðir með heittrúarstefnu Samfylkingarinnar muni nú snúa sér til Framsóknar.

En eins og komið hefur fram í skoðanakönnunum að undanförnu eru þeir eru allt að 40% af fylgi Samfylkingarinnar sem ekki styðja þessa ESB aftaníossa stefnu flokksforystunnar.  

Þó ég deili alls ekki ESB- sinnaðri skoðun með Guðmundi Steingrímssyni þá óska ég honum samt alls hinns besta í framtíðinni.

Það er og verður alltaf pláss fyrir, heiðarlegt, gott og velviljað fólk eins og Guðmund í okkar landi.

Hvaða stjórnmálaskoðanir sem að það annars aðhyllist og Guðmundur er sannarlega heiðarlegur andstæðingur sem ég virði !


mbl.is „Á ekki lengur heima í Framsókn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband