Sunnudagur, 22. mars 2020
Sendiherra ESB flúinn frá Íslandi. ESB ætti líka að loka áróðursmálaskrifstofunni sem þeir kalla sendiráð..
Michael Mann sendiherra ESB á Íslandi flýr landið í ofboði. Vonandi kemur hann ekkert aftur og þeir ættu líka að loka þessari áróðursmála skrifstofu hér í Reykjavík sem þeir kalla sendiráð.
Sendiráðið hefur ítrekað verið með frekleg afskipti af innanríkismálum Íslands og verið með áróður og algerlega óviðeigandi afskipti af innanríkismálum okkar.
Sáldrað hér peningum og styrkjum eins og mútugjafa er háttur.
Framganga sendiherrans og yfirlæti og hótanir gagnvart íslenskum stjórnvöldum hefur ítrekað ögrað þjóðinni og þá sérstaklega okkur hinum þögla meirihluta þjóðarinnar sem vill ekkert með afskipti eða tilskipanir þessa yfirþjóðlega ríkjasambands hafa að gera.
Okkur sem börðumst gegn innleiðingu 3ja Orkupakka ESB er enn í fersku minni þegar hann margsinnis þrýsti á að við samþykktum Orkupakka 3 og allar orkutilskipanir ESB án nokkurs fyrirvara og varaði við afleiðingum þess ef það yrði ekki gert.
Einnig var hann nú á dögunum með fordæmalaus afskipti af því hvernig við höguðum okkar landamæra vörslu og þar með enn og aftur brotið gegn alþjóðlegum reglum um hegðun og framgöngu erlendra sendimanna, þar sem afskipti sendiráðsstarfsmann af innanríkismálum gístiríkjanna eru bönnuð.
Sendiherra ESB fór í flýti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 65694
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.