ESB ráðstjórnin notar EES samninginn sem kúgunartæki gagnvart Íslandi. Segjum EES samningnum upp tafarlaust.

Evrópusambandið sýnir enn og aftur hversu ófyrirleitið og ósvífið þetta andlitslausa embættis- og stofnanavald er.67654757_10218588815206875_548109041822334976_n

Nú hika þeir ekki við að þverbrjóta hið svokallaða þjóðfrelsi og banna útflutning á öryggis- og smitvarnarbúningum til Íslands.

Hin valdfreka ráðstjórnar elíta í Brussel svífst einskis gagnvart Íslandi eins og sást í hótunum þeirra gagnvart Orkupökkunum sem troðið hefur verið uppá þjóðina þvert á þjóðarvijanum. Við munum líka eftir ICESAVE þar sem ESB valdaelítan fór með hroka og offorsi fram gegn okkur og engu munaði þá að þessu yrði trðið uppá okkur með hjálp liðónýtra ráðamanna þjóðarinnar sem sífellt fá hland fyrir brjóstið þegar Brussel valdið byrstir sig. Þetta er sennilega liður í því að reyna að hræða þjóðina inní þetta ólýðræðislega ofbeldis apparat. Við eigum víst að flýja í skjólið af ESB.esb_1342428

En ESB er ekkert skjól, því valdaelítan þar hikar heldur ekki við að kúga og þvinga aðildarþjóðirnar til hlýðni og undirgefni við þessa krumlu embættis- skrifræðisins. Lýðræðislegar niðurstöður hafa ítrekað verið virtar að vettugi ef það hentar valda ráðstjórnar klíkunni.

Ríkisstjórnum landanna beittar refsingum og hótað öllu öllu ef þau fara ekki í einu og öllu eftir ráðstjórninni í Brussel.

Evrópusambandið er gerspillt valdastofnun ólýðræðis og ófrelsis og valdstjórnin þar gerir ítrekaðar árásir á þjóðríkin og lýðræðið.

Ísland þarf að segja sig frá EES samningnum hið bráðasta og taka valdheimildirnar aftur heim. "Take back control" eins og Bretar segja sem eru nú að yfirgefa sambandið.


mbl.is Sölubann ESB brot á EES-samningnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Tek undir hvert einasta orð.  Nú hljóta ráðamenn þjóðarinnar að fara að sjá að EES-samningurinn er handónýtur, hann var allt í lagi fram að Lissabon sáttmálanum en eftir það er hann ekkert annað en HAUGAMATUR......

Jóhann Elíasson, 20.3.2020 kl. 17:31

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Þjóðarhagur er ekki mál sem Islenskir ráðamenn eru að vinna fyrir.

 Einkahagsmunir fárra virðast ráða- hverjir sem þeir eru.

Erla Magna Alexandersdóttir, 22.3.2020 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 65433

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband