Föstudagur, 13. september 2019
Reykjavíkurborg hatast við einkabílinn ! Ástand umferðarmála í borginni í algeru lamasessi. Markvisst unnið að því að tefja umferð og eyðileggja. Alþýðunni skal með stjórnvaldsaðgerðum og ofbeldi troðið inní strætó.
Reykjavíkurborg er illa haldinn af botnlausu einkabílahatri og blindri forræðishyggju.
Nú skal gert útaf við einkabílinn og frelsi og sjálfsstæði fólksins til að ráða sínu lífi, sínum tíma og ferðum sjálft. Öllum skal nú troðið inn í strætisvagna eins og búfénaði og nautgripum. Einkabíllinn sem hingað til hefur verið almenningseign og merki um einstaklings frelsi eigi hér eftir aðeins að vera stöðutákn og hlotnast embættis- og yfirstéttinni allt hitt pakkið þ.e. alþýðan skal bara, hjóla eða notast við gripaflutningavagna miðstjórnarinnar.
Allt er gert til að gera bíleigendum sem erfiðast fyrir að ferðast um borgina.
Brjálæðið hugmyndirnar um 100 milljarða borgarlínu, sem greidd skuli með botnlausumálögum og sköttum er alger útópía. Þessar 10 ára áætlanir um borgarlínuna minna á misheppnaðann Sovétskan áætlunarbúskap síðustu aldar þar sem stórvirk plön kommúnistanna og æðstu ráðanna reyndust vera hörmungin ein.
Þessi gríðarlegu mannvirki borgarlínunnar sem þetta forræðishyggu fólk borgarinnar ætlar að reisa munu verða orðinn úrelt og ónýt sem hlægileg og úrelt mannvirki, svona minnisvarði um forræðishyggju andskotans. Borgarlínan og stórkarlaleg mannvirkinn sem fyrirhuguð eru í kringum þennan óskapnað munu lengi verða sem svöðu sár í borgarlandinu og allri ásýnd borgarinnar. Þannig mun miðstýrða Borgarlínan og mislukkuð mannvirkinn lengi standa sem gapandi sár og æpandi á komandi kynslóðir eins og misheppnuð þróunarhjálp í Afríku síðustu aldar. Slík dauð og ónýt mannvirki kölluðu almennir afrískir borgarar "hvíta fíla" og hlógu.
Dagur borgarstjóri og Hjálmar hjólreiða kommúnisti eru misheppnuðustu og "hvítustu fílar" Reykjavíkurborgar.
Rukkað verði í stæði til kl. 20 á kvöldin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:39 | Facebook
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 65694
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Snildar pistill alveg hjá þér! Já og toppar sig geðveikin núna frá Framsókn. Tollar á stofrautir í borgini. 200 til 600kr á dag. Hæst á þeim tía þegar fólk er að fara í eða úr vinnu. Gjaldið þá þetta 27 til 30þús á mánuði!
Óli v (IP-tala skráð) 13.9.2019 kl. 09:07
Og hvergi minnst á Sundabraut og ekki taka gjald í Hvalfjarðargöngum!
Sigurður I B Guðmundsson, 13.9.2019 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.