Fimmtudagur, 12. september 2019
"Hamfarahlýnun gerir okkur öll að sósíalistum" sagði Kolbeinn Óttarsson Proppé - Áslaug Arna boðar galopna innflytjendastefnu og meiri sósíalisma !
Stjórnmálin á Íslandi eru nánast öll úti á túni spólandi í sama rétttrúnaðarfarinu, þar sem hver kjáninn á fætur öðrum yfirbýður hvorn annan í pólitískum rétttrúnaði, órum glópalismans og öfgum gerfivísinda loftslagsglópana! Þetta kom ágætlega fram í ræðum stjórnmálamannanna í þinginu í gærkvöldi þar sem upphrópanirnar og heitstrengingarnar og keppninn um hver væri öfgafullri en hinn í að sverja hollustu sína við þessar bábiljur og manngerðu gerfivísindi.
Kolbeinn Óttarsson Proppé var sigri hrósandi og sagði að ný yrðið og töfraorðið "hamfarahlýnun" hefði gert þau öll að sósíalistum. Pólitískt hópefli hamfaravísindanna og sameiginlegt hatrið á Trump vinnur kraftaverk.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sem fékk ráðherratign sína útá harðan stuðning við innleiðingu orkupakka ESB hélt jómfrúarræðu sína sem ráðherra og það var varla merkjanlegt hvort þarna talaði Vinstri grænn öfga femínisti eða innmúruð Samfylkingarkona.
Hún dásamaði stjórnasamstafið og boðaði galopna innflyjendastefnu og áframhaldandi stóraukinn kostnað til þess málaflokks.
Sá eini sem ekki tók þátt í yfirboðunum og talaði með aðeins hófstilltari hætti var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, sem boðaði "skynsemis stjórnmál" - En hann var reyndar eins og hrópandinn í eyðimörkinni !
Sagði Framsókn til í hvað sem er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 65694
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Athugasemdir
Útaf lifinu vantar okkur að losna við þetta vesæla rikisstjornarlið svo ekki fari allt i rust !
rhansen, 12.9.2019 kl. 12:27
Manstu eftir fyrir nokkrum áratugum ,þá snérist heilsufarsumræðan um KOLISTROL sem átti að valda því að æðarnar í okkur muni stíflast og eina ráðið var að borða helst ekki egg og að kjötið sem ætti að vera magurt, helst horað. Smjörið ætti helst ekki að sjást á brauðinu.
Síðan hefur komið í ljós að þetta altsaman er kjaftæði.
Það er helt yfir okkur kenningum af páfuglum á hverjum einasta degi og fæstar þeirra eiga sér stoð í raunveruleikanum.
Snorri Hansson, 13.9.2019 kl. 10:24
Tek undir hvert orð formanns FRELSISFLOKKSINS!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 13.9.2019 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.