Spánverjar mótmæla - Massívu atvinnuleysi og síversnandi efnahagsástandi og bágum kjörum almennings. Spánarstjórn sendir óeirðalögregluna gegn mótmælendum og ætlar að banna friðsöm mótmælin !

Nú er almenningur hér á Spáni að rísa upp gegn viðvarandi atvinnuleysinu sem er nú 21,3% á landsvísu og um 40% meðal ungs fólks. Fátækt er nú aftur orðin áberandi á Spáni, betl á götum úti, vændi og glæpir hafa aukist stórlega.  

Það er mikið vonleysi hér sérstaklega hjá ungu fólki sem hefur mátt þola viðvarandi 40% atvinnuleysi og mörg þeirra eru nú háð mömmu og pabba sem í sumum tilvikum eru nú líka búinn að missa vinnuna. Atvinnuleysi er í raun hærra því að hér getur fólk aðeins verið 12 mánuði á atvinnuleysisskrá og hér geta sjálfstæðir iðnaðarmenn eða aðrir verktakar ekki fengið atvinnuleysisbætur. einnig eru hér í gangi alls konar tæknilegar reglur til þess að útlendingar sem hér búa fjölmargir eiga nær ómögulegt að komast á atvinnuleysisbætur.

Meirhluti Spánverja vilja nú losna við Evruna og taka upp sinn eigin gamla gjaldmiðil pesetann. Enda telja þeir að stór hluti af því hvað efnahagskreppan leikur þá illa og atvinnuleysið sé hátt sé það að landið er frosið inni með gjaldmiðil sem það getur lítil sem enginn áhrif haft á.

Unga fókið sérstaklega hefur líka orðið stórar efasemdir um ESB aðildina og að landinu skuli hafa verið gert að leggja milljarða Evra í björgunarsjóð Evru ríkjanna til bjargar efnahag Grikklands, Írlands og Portúgals. En óttast nú lika að þeim verði þröngvað til þess að taka við slíkum svokölluðum "björgunarpakka" Sem er auðvitað ekkert neinn björgunarpakki heldur aðeins nauðugur þrældómur og ánauð í áratugi í boði ESB og AGS til þess að bjarga stórkapítali og stórbönkum í helstu stórveldum ESB ríkjanna svo og ECB banka Evrópusambandsins sem hefur verið mjög illa stjórnað.

En nú hefur ríkisstjórn Samfylkingarinnar hér á Spáni bannað mótmælin sem breiðast nú ört út til annarra hluta landsins. Um 500 manna öryggissveit grá fyrir járnum stendur nú frammi fyrir friðsömum mótmælendum á Puenta del sol torginu á Spáni.

Þó flest hafi gengið hér á afturfótunum í Spænskum efnahag undanfarin ár þá ætla ég samt að vona að Spánn ætli ekki aftur að breytast í fasista ríki. Það vona ég ekki ég bý nefnilega hérna og hef gert undanfarin 3 ár.

En ætla rétt að vona að mótmælendum verði leyft að mótmæla hér í friði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 65478

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband