RÚV fer fyrir upplýsingaóreiðunni og birtir enn eina falsfréttina og lygaáróðurinn gegn forseta Bandaríkjanna.

RÚV og aðrir Trump hatarar reyna nú að nota sér Covid19 heimsfaraldurinn til að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína og á þeim bæjum er einskis svifist til að láta pólitíska andstæðinga Politics-Donald-Trump-Headshot-Ohio-GOPsína ávallt líta sem verst út. Eflaust hafa forseti og stjórn Bandaríkjanna gert einhver mistök í baráttu sinni gegn fordæmalausri kóróna veirunni alveg eins og ítrekað hefur komið í ljós með ýmsar aðrar ríkisstjórnir, alþjóðastofnanir og ríkjasambönd. Má þar nefna ríkisstjórnir Kína, Ítalíu og Austurríkis en einnig Alþjóða heilbrigðisstofnunina WHO sem algerlega brást og svo sjálft Evrópusambandið sem svaf illilega á verðinum og reyndist algerlega ófært um að hafa forystu eða leiðsögn í þessum faraldri.

En hjá RÚV og öðrum áróðursmiðlum vinstri glópalista er lítið látið með slíkt því þar á bæ eru þeir einu sem gera alltaf mistök eru pólitískir andstæðingar þeirra eins og Donald Trump og reyndar líka Boris Johnson forsætisráðherra Breta sem þó hefur sjálfur þurft að berjast hetjulega við veiruna.

Allt sem forseti Bandaríkjanna gerir eða segir í þessum málum er rangtúlkað á versta veg eða snúið út úr.

Hann hvatti til dæmis aldrei almenning til að fara í geislun eða að drekka einhvern sóttvarnarvökva eða frostlög.

Hann hvatti aðeins vísindamenn og lækna til að stunda rannsóknir á möguleikunum á því hvort hugsanlega mætti notast við þessar aðferðir og þessi efni í baráttunni gegn kóróna veirunni.

Skemst er minnast þess þegar hann nefndi malaríu lyfið Chloroquine sem mögulega lyfjameðferð í baráttunni við veiruna. Þá eins og nú urðu andstæðingar hans arfa vitlausir og töluðu lyfið niður og sögðu það skottulækningar og endemis snákaolíu.

Nú er þetta sama lyf notað með góðum árangri í meðferðum á virtum spítölum um heim allan meðal annars hér hjá Landspítalanum. Einnig var Trump fyrstur til að banna farþegaflug frá Kína og svo síðar almenna fólksflutninga til Bandaríkjanna.

Alveg sömu brjálæðislegu viðbrögð Trump hatara urðu þá um heim allan við þessum aðgerðum hans. Íslenski utanríkisráðherrann fór líka af límingunum og gelti og spangólaði fyrir Brussel og RÚV.

En svo gerðu Evrópuríkin og flest ríki heims algerlega það sama og þá snarþagnaði spangólaði í utanríkisráðherrann og þögn sló á alla hatarana í smá stund.

Donald Trump er ekki fullkominn langt í frá, en hann er að mörgu leyti óvenjulegur þjóðar leiðtogi sem gerir eflaust mörg mistök eins og aðrir en það sem gerir hann helst óvenjulegan að hann er ekki venjulegur steinrunninn kerfiskrati, þess í stað er hann hugmyndaríkur og opinn fyrir nýjum og óhefðbundnum aðferðum í leit að lausnum.

Sorglegt er að sjá Íslenskar ríkisstofnanir eins og Landlæknisembættið og Geislavarnir ríkisins ganga í þá gildru RÚVara og annarra réttrúnaðar fjölmiðla að láta misnota sig í þessum falsfrétta áróðri og upplýsingaóreiðu sem RÚV og þessir hatursfullu fjölmiðlar nota til þess að ná pólitískum markmiðum sínum.

Hvar er nú Þjóðaröryggisráð Íslands sem átti víst að berjast gegn svokallaðri "upplýsinga óreiðu" og falsfréttum ?

Eða á það kannski bara að ráðast gegn þeim sem voga sér að gagnrýna Evrópusambandið eins og einn ráðsmaðurinn hafði miklar áhyggjur af fyrir skemstu?

 


mbl.is „Hugmyndir sem byggja á vitleysu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. apríl 2020

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband