Mannréttindaráð SÞ með Ísland innanborðs hlýtur að grípa til aðgerða gegn þessum skelfilegu mannréttindabrotum í Sádí Arabíu !

Nei við því þarf reyndar ekki að búast. Þær hugrökku Sadi Arabísku konur sem barist hafa fyrir mannréttindum í landi sínu og sitja nú bak við lás og slá og bíða dauðadóms mega alls ekki vænta neins liðsinnis frá Mannréttindaráði hinna Sameinuðu þjóða og heldur ekki íslenskra stjórnvalda eða kvenréttindasamtaka á vesturlöndum yfirleitt.

Það næsta sem við heyrum frá Mannréttindaráði SÞ með Ísland inbanborðs verður enn ein harðorð yfirlýsing gegn stjórnvöldum í Ísrael. 


mbl.is Kosta mótmælin hana lífið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalverndunarsinnar eru hræsnarar. Sjálfbærar, ábyrgar hvalveiðar eru stundaðar við Ísland.

Langreiðin er hvalategund í góðum vexti og viðgangi við Íslands strendur og í Norður Atlantshafi, þetta staðfesta rannsóknir og stofnstærðarmælingar Hafrannsóknastofnunar og Alþjóða hvalveiðiráðið einnig. Veiðar okkar íslendinga eru því mjög ábyrgðar og algerlega sjálfbærar og fullkomlega löglegar samkvæmt lögum Íslands og alþjóðaréttar. Allt tal svokallaðra hvalverndunarsinna um annað eru áróður og lygar. Nú reka þeir upp ramakvein yfir því að mögulega hafi ein langreiðin sem veidd var verið með fóstri. Auðvitað getur það verið þetta er heilbrigður stofn í góðum náttúrulegum vexti og viðgangi.

Ramakvein hvalverndunarsinna um hvalafóstrin eru hol að innan, ætlast þeir til að hvert einasta dýr verði sent í ómskoðun áður en það er veitt ? Eins sér maður að það er að stórum hluta sama fólk sem hér hneikslast sem mest sem í nafni frjálslynds vill helst gefa fóstureyðingar á mannabörnum í móðurkviði algerlega frjálsar ! 

images


mbl.is Segja Hval hf. hafa veitt kálffulla langreyði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nigel Farage aftur ì Bresk stjòrnmàl til að þrýsta à um BREXIT !

Þvì ber að fagna innilega að hinn litrìki og mælski fyrrverandi leiogi UKIP Nigel Farage skuli nù snùa aftur af alefli ì Bresk stjòrnmàl og styðja BREXIT hreyfinguna í að lýðræðið og niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 23 júní 2016 séu birtar "Leave Means Leave"


mbl.is Nigel Farage: „Ég er kominn aftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Ágúst 2018
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 65446

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband