Jóhanna veður áfram með sama ESB- hrokann. Þjóðin hennar mun kolfella innlimun í ESB Apparatið !

Jóhanna Sigurðardóttir skynjar ekki samtíma sinn eða þjóð sína, hennar tími kom en fór strax aftur.

Enn hamast hún í þessari ESB umsókn og aðlögun en áttar sig ekkert á því að þjóðin hennar vill ekkert með þetta valdagíruga og gerspillta miðstýringarapparat hafa að gera.

Meirihluti þegna ESB apparatsins er orðinn yfir sig þreyttur og búinn að fá meira en nóg af valdboðunum og tilskipanaruglinu frá þessari oföldu og spilltu ESB elítu í Brussel.

Hún ásamt helstu leiðtogum Samfylkingarinnar eru búnir að vera þegar þeir loks átta sig á því að þeir hafa með þessum hroka sínum og yfirgangi brotið á þjóð sinni og fá makleg málagjöld þegar þjóðin hafnar ESB helsinu með miklum mun.


mbl.is Mögulega 18 mánuðir í samning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spænska lögreglan grá fyrir járnum ræðst að friðsömum mótmælendum með skefjalausu ofbeldi ! Þetta eru ekki lögreglusveitir einræis fasista stjórnar Francos !

Hér á Spáni er nú allt að sjóða upp úr.
Viðvarandi atvinnuleysi sem komið er uppí 21,3% á landsvísu og er um 45% hjá ungu fólki auk gríðarlegrar lífskjaraskerðingar hefur kallað á mikil og fordæmalaus mótmæli á landsvísu.

Ráðaleysi stjórnvalda hér, þ.e. hinnar Spænsku Samfylkingar er algert.

Fyrir utan það að banna mótmæli í panik og ráðaleysi, svona svipað og Fasistastjórn Francos gerði þegar hún var hér við völd. Þetta bann þeirra hefur þó ekki dugað til og þá alveg eins og á tímum Francos þá beittu þeir nú óeirðar lögreglunni fyrir sig af skefjalausri hörku og ofbeldi gegn friðsömum mótmælendum í Barcelona.

Það er ótrúlegt að sjá sjónvarpsmyndir af hrottafengnum atgangi lögreglunnar enda liggja yfir 120 manns sárir og sumir mjög alvarlega eftir að hafa verið barðir miskunnarlaust í hausinn með kylfum lögreglunnar. Þetta er ótrúlegt að sjá þetta hér árið 2011.

Sem betur fer er íslenska lögreglan ekki svona.

Spánverjar eru hér að mótmæla ömurlegu ástandinu, þ.e. þessu gríðarlega atvinnuleysi, ráðleysinu,fátæktinni og eymdinni í ESB og EVRU ríkinu Spáni árið 2011.

En fólk er jafnframt hrætt um að Spánn sé að sogast inn í svipað hroðalegt efnahags og upplausnar ástand og hin ESB/EVRU löndin, Grikkland, Írland og Portúgal hafa þegar gert og verði þá líka neydd til að taka svokallaða "björgunarpakka" að láni á okurvöxtum í boði ESB og AGS.

Ekki til að bjarga almenningi hér eða Ríkissjóði Spánar.

Nei aldeilis ekki heldur til þess að leggja drápsklyfjar á Spænskan almenning og skerða enn frekar lífskjör hér en orðið er, til þess eins að geta bjargað EVRUNNI og Stórkapítali ESB stórríkjanna, stórbönkum og brasksjóðum þeirra þar á meðal ECB bankanaum, sem er Central banki ESB Elítunnar.

Íslenskir ESB sinnar hrópuðu uppá Íslandi rétt eftir hrun:

"ÞETTA HEFÐI ALDREI GETAÐ GERST, HEFÐUM VIÐ VERIÐ Í ESB OG MEÐ EVRU"

En þetta er nú samt einmitt búið að gerast í ESB og EVRU löndunum Grikklandi, Írlandi og Portúgal og er nú að skella á hér á Spáni og það meira að segja með enn meiri hörmungum en nokkurn tímann á okkar litla en friðsæla landi Íslandi og það þrátt fyrir ESB og þrátt fyrir EVRU.


mbl.is Mótmælendur miskunnarlaust barðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spánverjar mótmæla - Massívu atvinnuleysi og síversnandi efnahagsástandi og bágum kjörum almennings. Spánarstjórn sendir óeirðalögregluna gegn mótmælendum og ætlar að banna friðsöm mótmælin !

Nú er almenningur hér á Spáni að rísa upp gegn viðvarandi atvinnuleysinu sem er nú 21,3% á landsvísu og um 40% meðal ungs fólks. Fátækt er nú aftur orðin áberandi á Spáni, betl á götum úti, vændi og glæpir hafa aukist stórlega.  

Það er mikið vonleysi hér sérstaklega hjá ungu fólki sem hefur mátt þola viðvarandi 40% atvinnuleysi og mörg þeirra eru nú háð mömmu og pabba sem í sumum tilvikum eru nú líka búinn að missa vinnuna. Atvinnuleysi er í raun hærra því að hér getur fólk aðeins verið 12 mánuði á atvinnuleysisskrá og hér geta sjálfstæðir iðnaðarmenn eða aðrir verktakar ekki fengið atvinnuleysisbætur. einnig eru hér í gangi alls konar tæknilegar reglur til þess að útlendingar sem hér búa fjölmargir eiga nær ómögulegt að komast á atvinnuleysisbætur.

Meirhluti Spánverja vilja nú losna við Evruna og taka upp sinn eigin gamla gjaldmiðil pesetann. Enda telja þeir að stór hluti af því hvað efnahagskreppan leikur þá illa og atvinnuleysið sé hátt sé það að landið er frosið inni með gjaldmiðil sem það getur lítil sem enginn áhrif haft á.

Unga fókið sérstaklega hefur líka orðið stórar efasemdir um ESB aðildina og að landinu skuli hafa verið gert að leggja milljarða Evra í björgunarsjóð Evru ríkjanna til bjargar efnahag Grikklands, Írlands og Portúgals. En óttast nú lika að þeim verði þröngvað til þess að taka við slíkum svokölluðum "björgunarpakka" Sem er auðvitað ekkert neinn björgunarpakki heldur aðeins nauðugur þrældómur og ánauð í áratugi í boði ESB og AGS til þess að bjarga stórkapítali og stórbönkum í helstu stórveldum ESB ríkjanna svo og ECB banka Evrópusambandsins sem hefur verið mjög illa stjórnað.

En nú hefur ríkisstjórn Samfylkingarinnar hér á Spáni bannað mótmælin sem breiðast nú ört út til annarra hluta landsins. Um 500 manna öryggissveit grá fyrir járnum stendur nú frammi fyrir friðsömum mótmælendum á Puenta del sol torginu á Spáni.

Þó flest hafi gengið hér á afturfótunum í Spænskum efnahag undanfarin ár þá ætla ég samt að vona að Spánn ætli ekki aftur að breytast í fasista ríki. Það vona ég ekki ég bý nefnilega hérna og hef gert undanfarin 3 ár.

En ætla rétt að vona að mótmælendum verði leyft að mótmæla hér í friði.


ESB- Elítan trúir því að samruni ESB helst í eitt ríki sé virkilega svarið ?

Elíta ESB apparatsins í Brussel með þennan yfircommísar Michel Barnier í broddi fylkingar telur að mæta eigi vaxandi andúð fólks í aðildarríkjunum á ESB apparatinu sem lýsi sér í meiri þjóðernishyggju eins og í Finnlandi sé best að kveða niður með enn meiri miðstýringu og samruna.

Þessi sjálfupphafna og ofalda spillingar valdaelíta ESB appartsins býr sko sannarlega í sínum gyllta Fílabeinsturni í Brussel og hefur engan skilning á aðstæðum eða þörfum venjulegs fólks í aðildarlöndum sambandsins.

Það er rétt að andstaða hefur verið mikil við vaxandi miðstýringu og völd þessarar ESB klíku enda hefur það aðeins leitt til óstjórnar og spillingar.

Fólkið vildi ekki Mastricht eða Lissabon sáttmálana. Þessu var troðið ofan í fólk án þess að það fengi nokkuð um þessi mál að segja.

Þetta eru sannarlega blindir menn fólk er að mótmæla vegna þess að það vill ekki meira afsal á lýðræðisréttindum sínum til þessa ESB valdaapparats.

Þess vegna munu svona áætlanir um aukinn samruna aðeins kalla á meiri andúð og fyrirlitningu alþýðu manna á þessu skrýmsli sem heitir ESB !


mbl.is Meiri samruni eina svarið við vaxandi þjóðernishyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitað að manni í Esjunni ? Hvað með Bankaglæponana !

Leitað að hverjum ?
Týndum og heiðarlegum mönnum sem villast í fjallgöngu ?

En hvenær verða þeir handteknir og settir í handa- og fótajárn bankaglæponarnir og hvenær verða þeir eftirlýstir sem stórglæpamenn og réttlætið nær þessum djövuls glæpahundum !

Þarf frekari vitnana við ! H V E N Æ R !

Ég bara spyr !


mbl.is Leitað að manni á Esjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB maður ársins - Hégómi og húmbúkk. Minnir helst á USSR !

Þetta er tóm sýndarmennska hjá Evrópusamtökunum.

ESB maður ársins er einhver mesti hégómi og húmbúkk sem sést hefur lengi.

Man einhver eftir því þegar Brésneff aðalritari og forseti Sovétríkjanna sálugu var að hengja svona orður og dót á fólk við hátíðleg tækifæri og sem var svo kallað  "Sovéttmaður ársins" og/eða "Hetja Sovétríkjanna".

Mig minnir  að hann hafi sjálfur verið sæmdur þessum hégóma einum fjórum eða fimm sinnum. 

Helst var að þessar hégómlegu nafnbætur fengju aðeins trúir og heilaþvegnir einstaklingar oftast úr innsta hring Elítunnar sjálfra, það er hinnar Sovésku forréttinda og valdalítu.

Svipað er á ferðinni hér, þessa miklu nafnbót Evrópusamtakanna fær aðeins sanntrúað fólk úr innsta hring ESB- trúboðsins á Íslandi. 

Enda stefnir ESB báknið í svipaða átt miðstýringar og lýðræðisleysis og Sovétríkin sálugu USSR gerðu.

Meira að segja er ESB Valdaelítan í Brussel nú búinn að stofna sína eigin sjálfsstæðu Leyni- og Öryggisþjónustu. Man einhver eftir KGB ? 

ESB trúboðið á Íslandi er enn og aftur orðið að aðhlátursefni með þessum hégóma sínum !

 


mbl.is Valin Evrópumaður ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband