Þriðjudagur, 24. mars 2020
Persónuvernd er algerlega óþörf ESB stofnun, fokdýrt apparat sem flækist fyrir heilbrigðri skynsemi.
Nýjasta ESB stofnunin sem sett var á stofn hérlendis með tilskipun frá Brussel er enn ein fokdýr ríkisstofnunin sem hér er komið á fót vegna EES samningsins.
Apparatið sjálft og möppudýrin þar heyra beint undir Brussel valdið og reyna í sífellu að láta finna fyrir sér og þvælast fyrir því að fyrirtæki eins og Íslensk Erfðagreining geti sinnt vísindastarfi sínu til heilla fyrir þjóðina og mannkyn allt.
Möppudýrin elska að sýna vald sitt sem þau telja sig hafa beint frá Brussel valdinu sjálfu og því geti enginn efast eða sett neitt út á þeirra ráðslag eða úrskurði.
Það var því enginn furða að fokið hafi í Kára Stefánsson forstjóra ÍE þegar þessi óþarfa ESB stofnun reynir enn og aftur að setja stein í götu hans og vísindanna. Kári vandar þessari stofnun og möppudýrunum þar ekki kveðjurnar.
Við þurfum að segja okkur frá EES samningnum sem allra fyrst svo við getum skorið hér hressilega niður fokdýran og óþarfan stofnana- og eftirlitsiðnaðinn og sniðið okkur stakk eftir raunverulegum þörfum samfélagsins, en ekki gerfi þörfum möppudýranna og sýndarmennsku eftirlitsiðnaðarins.
Sýnir skort á skilningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 65694
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Persónuvernd var stofnuð árið 2000.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.3.2020 kl. 00:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.