EES samningurinn mun svipta okkur fullveldinu ! ESB valdið og taglhnýtingar þeirra hér innanlands misnota EES samninginn til að koma landi og þjóð í bútum undir Brussel valdið.

67895034_10220160808116601_6233282987258019840_oEES samningurinn var í upphafi hugsaður sem einskonar millileikur þeirra þjóðríkja sem síðar kæmu að fullu og öllu inn í Evrópusambandið, sem þá var aðeins viðskipta- og fríverslunar samband frjálsra þjóða en ekki miðstýrt Evrópskt stórríki sem heimtar alræðisvöld og vill leggja niður lýðræðisleg völd þjóðríkjanna eins og nú stefnir í.

Eftir að Norðmenn felldu ESB aðild tvisvar sinnum og svo þegar ljóst var að ESB umsókn Íslands frá 2009 var aðeins gönuhlaup Samfylkingarinnar og meirihluti þjóðarinnar vildi alls ekki inn í Evrópusambandið þá var eins og valdaelítan í Brussel forhertist og með hjálp meðvirkra stjórnmálamanna þessara landa og óþjóðlegs embættismannavalds sem þráir ekkert heitara en fá aukin völd frá skrifræðis miðstjórninni í Brussel og laus undan forræði og eftirliti lýðræðisins í sínum eigin þjóðlöndum þá er EES samningurinn nú keyrður áfram af fullkomnu miskunnarleysi og og allra bragða beitt. Embættisvaldið færist nú í aukana og fjölmiðlum og dómsvaldi beitt til að ná alræðisvöldum ! Orkupakki 3 og fautagangurinn við að innleiða hann í íslensk lög þvert gegn vilja þjóðarinnar er skýrt dæmi um ofstopann og hrokann sem miðstýringarvaldið með hjálp embættisaðalsins og fjölmiðlaelítunnar er tilbúið að beita. Ég segi Nei við ESB og ég segi Nei við Orkupakka 3.832795-1_1351154


mbl.is EES með yfirþjóðleg einkenni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 65399

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband