Svik stjórnmála elítunnar í Bretlandi við að framfylgja BREXIT eru skelfileg. Aldrei stóð til að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar ef Bretar kysu "Leave"

Það hefur verið sorglegt að horfa uppá það hvernig lýðræðisleg niðurstaða Bresku þjóðarinnar um að yfirgefa Evrópusambandið og taka yfir stjórn eigin mála hefur verið fótum troðinn og lítilsvirt af Brussel valdinu og hinni meðvirku pólitísku valda elítu Bretlands.

Það var löngu vitað að á Breska þinginu sitja 2/3 þingmanna sem vilja vera áfram í ESB en aðeins 1/3 sem vill raunverulega framfylgja lýðræðislegri niðurstöðu þjóðarinnar um að Bretar segðu skilið við sambandið. Það var því borin von að þessu liði tækist að virða lýðræðislegan rétt þjóðarinnar. Þessi svik gætu haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir lýðræðið og traust almennings til stjórnmálastéttarinnar! 

Hvað ætli RÚV og íslenskir fjölmiðlar hefðu sagt ef 52% íslensku þjóðarinnar hefðu kosið í stærstu  þjóðaratkvæðagreiðslu þjóðarinnar að við ættum að ganga í ESB, en þremur árum seinna væri alþingi búið að gera út um það með svikum og undirmálum ?

Ég er hræddur um að RÚV, Stundin og Kjarninn væru að fara á límingunum, jafnvel að málið yrði kært til Mannréttindadómstóls í Brussel !


mbl.is Telja að þingið sé að reyna að stöðva Brexit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 65356

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband