"Össur Skarpi" ESB Galgopinn veit upp á sig blekkingarnar og lygarnar !

Össur hinn Skarpi sagði sumarið 2009 þegar hann plataði Ögmund "vin" sinn og svo líka mjög nauman meirihluta Alþigis til þess að styðja tilrauna viðræður við ESB að þetta myndi aðeins taka ca 16 til 18 mánuði og þá fengi þjóðin sérstaka hraðferð og síðan sinn lýðræðislega rétt um að fá að kjósa um þetta ágreiningsmál af eða á.
 
Allt auðvitað tóm lygi og blekkingarleikur, því að nú mörgum mánuðum, eða eiginlega árum síðar, er þjóðin enn og aftur í gíslingu og þvæld í óafturkræfan lyga- og blekkingarvef Samfylkingarinnar í þessu hroðalega ESB máli og endalausu ESB aðlögunar og lyga ferli í þokkabót! Reyndar er allt ferlið algerlega í höndum ESB.
 
ESB Lymsku refurinn "Össur hinn Skarpi", reynir enn og aftur að flækja þjóð sína í þennan ESB lyga- og blekkingarvef, þó hann viti vel að meirhluti þjóðarinnar sé algerlaga andvígur þessu rugli og "Sovétsku" lyga lýðskrumi hans.
 
Nú hefur hann komið því þannig fyrir "alveg óvart" að ESB stofa og séstakt Sendiráð ESB á Íslandi er búið að opna hér sérstakar sendiskrifstofur með milljóna EVRU kostnaði til þess að útbreiða dásemdir og listisemdir ESB trúboðsins á Íslandi.  
 
Sjálfur þykist hann svo sem fyrr, alls ekkert vita frekar enn fyrri daginn, þegar það hentar honum "sitjandi á sprelanum" einhvers staðar alveg sárasaklaus !
 
Hans ótrúlegu tækifærismennsku og lýðskrumi virðast enginn takmörk sett !

mbl.is Ekki lokið fyrir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Þessi gjöf Íslendinga- þ.e. orkan og fiskimiðin frá Össuri er eitthvað meira en eitt sjúkrahús- þetta er gjöf til Evrópu sem er í fátæktatgildru evropusambandsins frá þjóð sem barðist fyrir sjálfstæði en ætlar nú að láta einhverja kjaftaska gera hluti sem ekki verða endurkræfir- í umboði þjóðarinnar ! Er ekki mál til komið að fólk fari að mótmæla ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 27.3.2012 kl. 20:16

2 Smámynd: Elle_

Eg er sammála öllu í pistlinum hans Gunnlaugs.  Ótrúlegur blekkjari og lyga-´skarpur´ þessi maður og að við skulum hafa hann í ríkisstjórn.  Og það með nokkrum síst skárri í þokkabót.  Líklega og vonandi hans og þeirra síðasta stjórnmála-skref í landinu.  Þau, stjórnarflokkarnir (skrifaði óvart fyrst ´stjórnarfokkarnir´og það hefði kannski ekki verið neitt verra), skilja ekki hvað þau eru að skemma andlega heilsu landsmanna með endalausum lýðræðishatri og yfirgangi í öllu.

Elle_, 28.3.2012 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband