Laugardagur, 23. júlí 2011
Kannski of snemmt að gagnrýna ! EN HEILAR 90 MÍNÚTUR TIL AÐ STÖÐVA ÞENNAN MORÐÓÐABRJÁLÆÐING !
Um leið og maður er algerlega harmi sleginn yfir þessu hryllilega geðveikislega voðaverki í Noregi sem virðist hafa verið skipulagt í þaula af einum mjög illa höldnum og geðveikum einstaklingi þá vakna samt margar ásæknar spurningar.
Fyrst vil ég þó byrja á að votta Norsku þjóðinni allri sönnum frændum okkar og vinum mína dýpstu samúð, sérstaklega þeim fjölskyldum og vinum fórnarlambana sem nú eiga um sárt að binda !
En þegar bráir af þá hljóta ýmsar sprurningar að vakna ?
Eins og hvernig gat það gerst að þessi geðveiki og byssuóði brjálæðingur og fjöldamorðingi hafði allan þann tíma sem hann fékk eða alls ca 90 mínútur til þess að labba í róleg heitum um þennan smá hólma og myrða skipulega í rólegheitunum og salla niður með köldu blóði hátt í 100 ungmenni án þess að lögreglan eða herinn væri sendur á vetvang.
Sannað er að flest ungmennanna ca 500 sem þarna voru stödd voru öll meira og minna með GSM síma á sér og fjölda mörg þeirra létu vini og ættingja og líka lögregluna og neyðarlínuna Norsku vita hvað væri þarna að gerast strax á fyrstu 5 mínútunum sem ódæðið byrjaði !
Hvers vegna var ekki vopnuð sérsveit lögreglunnar eða Norska hersins send með þyrlu samstundis á vetvang til eyjarinnar til þess að stöðva þennan voðalega harmleik ?
Kannski hefði mátt stöðva þetta strax á fyrsta korterinu og bjarga þar með jafnvel tugum mannslífa ?
Eyjan litla fagra, Útey sem breyttist á svipstundu í "helvíti á jörð" í eina og hálfa klukkustund er í mesta lagi í aðeins 7 mínútna beinu þyrluflugi frá Osló !
Ég held að fara þurfi í gegnum þetta og eflaust þurfa einhverjir embættismenn og yfirmenn hers og lögreglu að sæta ábyrgð vegna þessara hryllilegu mistaka.
Engu er líkara en að lögreglan hafi farið á puttanum bæði á landi og sjó til þess að reyna að stöðva morðin og því hafi þetta að þeirra sögn tekið svona langan tíma. Slíkar afsakanir eins og hafa heyrst því miður, eru ekki boðlegar og fyrir neðan allar hellur !
En þetta er auðvitað ekki aðal málið núna, en verður að skoðast alvarlega þegar frá líður.
" Tankerne gaar til alle paarörende og omkomne " Tragisk !
Skaut óáreittur í 90 mínútur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Gunnlaugur,
Ég sat og horfði á fréttaútsendingu TV2 í Noregi í gær og vandamálið eins og ég skyldi það var: 1. Það var þoka við eyjuna um eftirmiðdaginn sem olli því að ekki var hægt að fljúga þyrlum þangað fyrr en um það leyti sem lögreglan komst á staðinn. 2. Lögreglan í Osló var nánast öll í forgangsútkalli vegna sprengingarinnar við ríkisstjórnarbygginguna. 3. Umferð við Osló var öll úr skorðum. Einnig var ekki vitað hvort um einn mann væri að ræða eða fleiri svo undirbúningur tók miklu lengri tíma en ella. Örugglega verður framkvæmd ítarleg rannsókn á þessu því 38 mínútna viðbragðstími þangað til þeir komu á er langt frá því að vera ásættanlegur. Ég tek það fram að ég er ekki sérlega góður í að skilja norsku, en bjó í Danmörku í 3 ár svo ég næ svona megninu af þessu.
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 23.7.2011 kl. 20:45
90 mínútur er mikið en þú gerir þér grein fyrir því að það sem gerðist í Osló var eins og hryðjuverk væru í gangi og fullt af sveitum voru kominn af stað að leita að fleiri sprengjum því það var talið að 2-3 væru í miðbænum í viðbót.
Mikið var rætt um Al-quaida(stafs)
Allt lögreglulið af okkar svæði var farið inn til Osló ásamt lögreglunni í kring þannig að það var enginn hérna og allt lögreglulið sem var í sumarfríi var kallað úr fríi inn til Osló, þetta kom fram í beinni útsendingu hérna á NRK.
Við búum ekki langt frá þessu og þetta er hræðilegt og ekkert annað en mundu líka að það er alltaf gott að vera vitur eftir á.
Þessi maður skipulagði þetta vel, hann vissi að sprengjan sem var 500kg í Osló mundi valda þvílíkri ringulreið og lét svo til skara skríða þegar enginn býst við því og þar sem enginn býst við því.
Skulum slaka á gagnrýninni eins og er og bíða eftir því að þetta verði skoðað en þú hlýtur að skilja ringulreiðina sem átti sér stað eftir sprenginguna og fólk var bara ekki viðbúið svona löguðu. Alltaf gott að hafa munninn fyrir neðan nefið þegar einhverju svona er lokið.
Með sorgarkveðju frá Noregi,
Júlíus Valdimar Finnbogason, 23.7.2011 kl. 21:39
Tilvitnun um þetta mál frá bloggaranum Júlíusi Valdimari Finnbogasyni:
"Þú veist að norska lögreglan af svæðinu í kringum Utoya og nágrenni var inn í Oslo og lögreglumenn í sumarfríi voru kallaðir þangað og fólk hélt að um hryðjuverk Al-Quaida væri að ræða. Ég bý ekki langt frá þessu og hér var öll lögregla farinn inn til Osló."
Arngrímur Eiríksson (IP-tala skráð) 24.7.2011 kl. 08:07
Ég þakka athugasemdirnar sem mér sýnast flestar koma frá íslendingum búsettum í Noregi, það er fróðlegt að fá þeirra sjónarhorn.
Ég get tekið undir margt í þeim, auðvitað átti enginn von á þessum ósköpum. Þetta með þokuna yfir eyjunni finnst mér samt haldbærasta afsökunin.
En auðvitað verður farið mjög rækilega ofan í saumana á þessu öllu af Norskri nákvæmni.
Gunnlaugur I., 24.7.2011 kl. 09:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.