Ætlar ríkisstjórnin að samþykkja að ESB geti tekið sér vald til að loka landamærum Íslands?

Ekkert ríki er sjálfstætt og fullvalda nema að það ráði alveg óskorað yfir landamærum sínum sjálft.832795-1_1351154

Framkvæmdastjórn ESB ætlar nú að taka sér fyrirvaralausar og fordæmalausar valdheimildir til þess að loka landamærum Schengen svæðisins og þar með landamærum Íslands um ótiltekinn tíma. Er furða að það komi vöflur á ríkisstjórnina sem þó er orðin þekkt fyrir það að taka við öllum tilskipunum frá ESB apparatinu, s.s. orkupökkum, viðskiptaþvingunum og öðru tilskipanaflóði með bros á vör.

Nógu varð utanríkisráðherrann okkur reiður út í Donald Trump fyrir að loka landamærum sinnar eigin þjóðar tímabundið, en nú ætlar ESB að loka okkar eigin landamærum og þá koma aðeins hálf vandræðalegar vöflur og mótbárur og þau ætla að bíða og sjá og vona.

Kóróna veiran grasserar nú í Evrópu hvað sem líður miðstýrðum tilskipunum Evrópusambandsins. Kóróna veiran sýnir að hver þjóð þarf að stjórna sínum málum sjálf þar með talið landamærum sínum. Þunglamalegar og fálmkenndar ákvarðanir ESB apparatsins byggja ekki á neinum vísindum né heilsufarslegum rökum heldur eru liður í að sýna vald sitt og pólitískan mátt.

Ísland á ekki að láta kúga sig undir svona frekleg valdboð og algerlega að hafna forræði ESB yfir íslenskum landamærum.

Aðstæður okkar sem sjálfsstæðrar eyju í Norður Atlantshafi eru allt aðrar en meginlandsþjóða Evrópu í þessu og svo mörgu öðru. Vel má vera að það þurfi tímabundið að loka landamærum Íslands eða annarra þjóða.

Ísland á að ráða sínum málefnum og landamærum sjálft og hefur alla burði til þess sem sjálfstæð og vel upplýst þjóð og á að segja sig frá þessu Schengen/EES rugli án tafar.


mbl.is Ekki vísindalega rökstudd tilmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB boðar nú einhliða ferðabann Schengen svæðisins. Ísland ræður ekki eigin landamærum.

Guðlaugur Þór trompaðist í síðustu viku þegar Bandaríkjastjórn ákvað að þeir ætluðu að loka landamærum sínum tímabundið.656-220-1

Hann jós úr skálum reiði sinnar yfir þessu samráðsleysi og frekju Bandaríkjamanna. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fordæmdu Bandaríkjamenn einnig harðlega.

En svo örfáum dögum seinna fóru margar skynsamar ríkisstjórnir Evrópuríkja eins og Danmerkur, Noregs, Póllands og Spánar að ráði Bandaríkjanna og skella í lás við landamæri sín og skeita engu um stefnu ESB valdsins.

Nú er eins og ESB valdið í Brussel átti sig skyndilega á því að þeir höfðu veifað röngu tré og að þeir réðu engu um framvinduna og valdastofnanir ESB valdsins óttast ekkert meir en að missa völd sín og magt til þjóðríkjanna og fólksins í þjóðríkjunum.

Þess vegna í örvæntingu boðar Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB nú ferðabann Schengen ríkjanna á þessum svokölluðu ytri landamærum Schengen svæðisins. Þetta kom algerlega flatt uppá Gulla utanrikis og íslensku ríkisstjórnina og þau Guðlaugur Þór og Áslaug Arna sátu í gærkvöldi á sérstökum neyðarfundi með Michael Mann landstjóra ESB á Íslandi. Málið á svo að taka fyrir á sérstökum ríkisstjórnarfundi í dag.

Ekki er að búast við því að Guðlaugur Þór eða ríkisstjórnin geri neitt annað en kyngja því að þau ráði ekki lengur landamærum Íslands. Gulli varð vitlaus yfir því að Trump vildi ráða landamærum síns eigin ríkis, sem hafði ekkert með okkar landamæri að gera, en þegar æðsti embættismaður ESB tilkynnir að þeir ætli að loka landamærum Íslands og ráða þeim.

Hvað gerir utanríkisráðherra Íslands þá ?esb_1342428


mbl.is Fundað um mögulega landamæralokun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. mars 2020

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 65904

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband