Laugardagur, 14. mars 2020
Guðlaugur Þór á að biðja Bandaríkjamenn afsökunar og síðan segja tafarlaust af sér.
Guðlaugur Þór varð reiður og snældu vitlaus þegar ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti um lokun landamæra og tímabundið ferðabann í baráttunni við kóróna vírusinn.
Reiðilestur og gífuryrði hans um forseta og ríkisstjórn Bandaríkjanna vantaði ekki. Talaði um skort á samráði, eins og forseti Bandaríkjanna ætti að hafa sérstakt samráð við hann áður en hann forsetinn tæki bráðnauðsynlegar ákvarðanir í innanríkismálum sinnar þjóðar. Ekki vantaði heldur vandlætingarnar frá forsætisráðherra og fleiri ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem var svo trommað upp á RÚV með fordæmingu og vandlætingarpistlum Eiríks Bergmanns og annarra rétttrúnaðar spekinga.
Nú þegar ráðamenn Danmerkur og Noregs og fjölda annarra Evrópuríkja skella líka í lás og tilkynna um lokun landamæra og ferðabann sem gengur jafnvel enn lengra en ráðstafanir Bandaríkjanna þá muldrar utanríkisráðherrann bara í barminn og engir vandlætingar pistlar birtast á RÚV.
Nóg er komið af móðgunum og hroka íslenskra ráðamanna í garð stærstu og fremstu lýðræðisþjóðar heims og okkar helstu og bestu vinaþjóðar Bandaríkjanna.
Guðlaugur Þór er enn og aftur með allt niður um sig, landamæri Íslands standa galopinn, enginn ráðfærir sig við hann eða hlustar í geltið í honum.
Utanríkisráðherra Íslands hefur orðið sér og þjóðinni til skammar og er orðinn að alþjóðlegu viðundri.
Guðlaugur Þór á að biðja Bandaríkin afsökunar á freklegum afskiptum af innanríkismálum þeirra og síðan á hann tafarlaust að segja af sér embætti sem hann ræður ekkert við.
![]() |
Fundi Guðlaugs og Pompeos aflýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 14. mars 2020
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 65904
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar