Fimmtudagur, 5. september 2019
Áslaug Arna verðlaunuð fyrir Orkupakkann. Áframhaldandi Viðreisnar- og kratavæðing Sjálfsstæðisflokksins staðfest !
Nýi dómsmála ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fær ríkulega umbunun frá Bjarna Benediktssyni fyrir að hafa stutt Orkupakkann frá Brussel með ráðum og dáð. Reyndar var stuðningur hennar öfgafullur og einkenndist af skítkasti og árásum á Orkuna okkar og alla þá sem leyfðu sér að setja fram andstöðu eða efasemdir um þennan gjörning. En það borgaði sig.
Greinilegt er að Sjálfsstæðisflokkurinn siglir nú hraðbyri til sameiningar við Viðreisn, áframhaldandi krata og ESB væðing á fullri ferð hjá forystunni.
Hvenær ætli Bjarni Benediktsson leggi aftur til að sótt verði um ESB aðild að nýju?
Ég vil þó að lokum óska Áslaugu Örnu til hamingju með embættið.
Áslaug Arna næsti dómsmálaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 5. september 2019
Boris Johnson ofurliði borinn. Hann vill kosningar strax og sterkara umboð til að leiða þjóðina út úr Evrópusambandinu.
Það gengur mikið á Breskum stjórnmálum. Boris Johnson varð undir í atkvæðagreiðslu í þinginu í gær þar sem ESB sinnar komu því í gegn að BREXIT verði frestað eina ferðina enn.
Boris hefur sagt að undir engum kringum stæðum muni hann fara fram á að útgöngunni þann 31. október n.k. verði frestað. "Do or die"
Hann vill því að almennar þingkosningar fari fram um miðjan október. Tillaga hans um þingkosningar var felld í gær. Það er sannarlega á brattann að sækja hjá forsætisráðherranum þar sem ESB sinnar á þinginu þvælast endalaust fyrir og gera allt sem þeir geta til að stöðva það að vilji þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að Bretland yfirgefi Evrópusambandið nái fram að ganga.
En skoðanakannanir sýna að fólk vill binda endi á þetta og er þess vegna tilbúið að Bretland fari út án samnings.
Skoðanakannanir sýna líka að Boris Johnson nýtur hylli og gæti hæglega unnið næstu þingkosningar og þess vegna vil Stjórnarandstaðan ekki kosningar þeir eru hræddir við þjóðina.
En Boris er maður fólksins og öflugur leiðtogi og þó hann sé nú um stund ofurliði borinn þá mun hann mæta tvíefldur til leiks og vonandi tekst honum á endanum að efna loforðin við þjóðina og leiða Bretland farsællega burt úr Evrópusambandinu!
Ég segi NEI við ESB !
Boðar til nýrra kosninga um þingrof | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. september 2019
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 65415
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar