Enn og aftur situr Breska þingið á svikráðum við Bresku þjóðina og svíkst um og neitar að framfylgja skýrum fyrirmælum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að Bretland yfirgefi ESB.

Boris Johnson forsætisráðherra Breta er enginn veifiskati og þó svo hann hafi tapað þessari atkvæðagreiðslu í Breska þinginu í gærkvöldi þá á hann eftir að koma tvíefldur til baka. Þó þessi orusta tapist þá mun hann samt vinna stríðið.07815623

Á þessari mynd sem tekin var í kvöld er hann greinilega mjög svektur og vonsvikinn á svip. Enda enginn furða þar sem 27 flokksfélagar hans greiddu atkvæði gegn BREXIT og ásamt Corbyn og Verkamannaflokknum og Lib.Dem og þannig báru þeir stjórn hans ofurliði við að framfylgja skýrum vilja þjóðarinnar um að Bretland yfirgefi Evrópusambandið.

Boris mun koma tvíefldur til leiks og vonandi mun hann taka saman við hinn sigursæla Brexit flokk Nigels Farage og þannig munu þeir farsællega vinna þingkosningarnar og leiða Bretland farsællega út úr þessu miðstýrða óþolandi apparati ESB.250px-Nigel_Farage_by_Gage_Skidmore_3


mbl.is Stjórnin undir í Brexit-atkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EES samningurinn er orðinn einhliða einstreymisloki tilskipanaflóðs frá Brussel. Finna þarf nýja lausn ellegar segja þessum samningi upp. EEXIT !

EES samningurinn var í upphafi fyrst og fremst hugsaður sem gagnkvæmur fríverslunarsamningur jafnrétthárra samningsaðila. Hann átti aldrei að verða að þessu ólýðræðislega monsteri sem hann er nú orðinn og hann átti aldrei að þýða það að við afsöluðuðum okkur löggjafar- og framkvæmdavaldi og dómsvaldi eins og nú er orðið. Það er gróflega vegið að fullveldi og sjálfsstæði þjóðarinnar.832795-1_1351154

EES samningurinn átti að vera bráðabirgða samningur fyrir þau ríki Evrópu sem ekki vildu ganga í ESB eða voru ekki tilbúinn til þess þá. Noregur og Ísland vildu ekki inn í ESB og reyndar ekki Sviss heldur. Reynt var í tvígang að koma Noregi inn í ESB en það var tvisvar sinnum fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu. EES samningur var felldur í Sviss og Svisslendingar báru gæfu til að standa bæði utan ESB og EES líka. Þeir hafa síðan gert tvíhliða fríverslunarsamninga við ESB og engum dettur í hug að tala um fyrirmyndarríkið Sviss sem eitthvert einangrað, afdalaríki eins og hræðsluáróður ESB sinna hér á landi gengur út á.

EES samningurinn hefur breyst í allt um lykjandi kæfandi faðmlag þar sem endalausum tilskipunum er einhliða dembt yfir. Regluverk miðstýringar skrifræðisins krefst svo sífellt að nýjum rándýrum valdastofnunum og eftirlitsapparötum sé komið á fót sem eiga svo að heyra beint undir Brusselskar stofnanir án nokkurrar raunverulegrar aðkomu lýðræðisins eða þjóðkjörinna fulltrúa lýðræðisins.

Þetta sjáum við greinilega nú í nýsamþykktum 3ja Orkupakka ESB þar sem valdastofnuninni ACER er fært æðsta vald í orkumálum þjóðarinnar. 69387216_10218836119949339_1721738898750570496_o

Þessu ólýðræðislega miðstýringar fargani verður að fara að linna áður en þetta kaffærir okkur alveg.

Ég segi NEI við ESB !

Ég segi NEI við EES !


mbl.is Góðu samkomulagi stefnt í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. september 2019

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 65439

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband