Tjáningarfrelsið lítilsvirt með dómi Héraðsdóms, þar sem HR er sýknað af öllum bótakröfum Kristins Sigurjónssonar hinns burtrekna lektors. Hinn pólitíski rétttrúnaður sem tröllríður skólakerfinu er nú með kverkatak á dómskerfinu, eða hvað ?

Snorri Óskarsson kennari var fyrirvaralaust rekinn frá grunnskóla á Akureyri sem hann hafði þjónað með sóma í áratugi vegna þess að hann hafði tjáð sig utan vinnutíma um umdeild þjóðfélags mál og vitnað í Biblíuna og fylgt sinni sannfæringu í anda trúar sinnar og sannfæringar. Snorri brást til varnar og uppsögnin var dæmd ólögleg fyrir dómstólum, dauð og ómerk, þó Snorra hafi verið dæmdar sannarlega mjög lágar bætur og enginn pólitíkus á Akureyri né bæjarstjórinn voru látnir axla ábyrgð á ólögmætinu. Nánast allir fjölmiðlar hinns pólitíska rétttrúnaðar atyrtu og rægðu Snorra Óskarsson frá upphafi.Kristinn_HR-1

Snorri hefur enn ekki fengið aðra vinnu, honum hefur verð ýtt út af sviði mannlegs samfélags.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú hafnað öllum bótakröfum Kristins Sigurjónssonar fyrrverandi lektors HR eftir að háskolinn vísaði honum fyrirvaralaust og án nokkurrar viðvörunar úr starfi fyrir hans persónulegu ummæli sem hann viðhafði utan vinnutíma og í sínum persónulega vina- og kunningja hópi á FB. Ummæla sem vel mátti gagnrýna eða deila á en voru ekki hættulegar neinum og alls ekki til þess fallinn að rústa og eyðileggja mannorð Kristins Sigurjónssonar. Dómurinn staðfestir þessa aðför HR að æru og mannorði hans.

Rökstuðningur og dómsniðurstaða Héraðsdóms er gríðarlegt áfall fyrir tjáninga- og skoðanafrelsið í landinu. Persónufrelsi einstaklingana er í hættu fyrir öfgum og pólitískri rétthugsun! Réttarríkið og einstaklingsfrelsið riðar til falls.

Jón Steinar Gunnlaugsson verjandi Kristins segir að dómnum verði ekki unað undir neinum kringum stæðum og honum verði umsvifalaust áfrýjað til Landsréttar !

Ég skora hér með á alla þá sem vilja verja skoðana- og tjáningarfrelsið að rétta Kristni Sigurjónssyni hjálparhönd í þeirri baráttu fyrir réttlætinu sem framundan er, en nokkrir vinir hans hafa hafið fjársöfnun. 

Banki 162, hb 26, bankareikn.nr. 12277, kt.261165-3929 (Páll Steingrímsson)


mbl.is Kristinn mun áfrýja til Landsréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. ágúst 2019

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband