Færsluflokkur: Evrópumál
Föstudagur, 9. september 2011
ESB sinnar verða nú að fara að taka hendurnar frá augum og eyrum. ESB herinn er á leiðinni !
![]() |
Vilja evrópska herstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 9. september 2011
ECB - Seðlabanki ESB stefnir sjálfum sér í opinn dauðann !
Bankastjóri ECB bankans, Seðlabanka Evrópusambandsins, Jean Claude Trichet virðist vera orðinn elliær eins og á grönum má sjá.
Hann stefnir nú ákveðið og örugglega að því að koma bankanum í greiðsluþrot á nokkrum árum, með ófyrirsjáanlegum og skelfilegum afleiðingum fyrir hluthafa hans sem eru ESB/EVRU ríkin og nú ósjálfráða skattgreiðendur þeirra.
Að kaupa villt og trillt skuldabréf gjaldþrota ríkja sem enginn vill kaupa, eins og Grikklands, Írlands, Portúgals og Spánar og Ítalíu er hreint brjálæði.
Að bæta síðan við allt drullumallið með því að ætla nánast ótakmarkað að kaupa skuldabréf gjaldþrota braskbanka á ESB/EVRU svæðinu, er enn ein klikkunin í viðbót.
Vonandi ber Ísland gæfu til þess að verði ekki komið þarna inn í þetta rugl, þegar ECB/ESB leirstíflan brestur og allt heila skítaklabbið hrinur yfir Jean Claude Tricket og bankastjórn ESB bankans.
Með skelfilegum afleiðingum.
Reyndar minnst fyrir þá sjálfa því að þeir hafa tryggt sér gríðar háa starfslokasamninga og ríkulegan lífeyri á gullfæti til æviloka hvernig sem fer.
Verst verður þetta fyrir fólkið sem býr við þetta hand ónýta stjórnsýsluapparat og það að þurfa að lúta þessum Elítu völdu rugludöllum, án þess að hafa nokkuð um það að segja yfir höfuð !
Sýnum vilja okkar í verki og skrifum undir á www.skynsemi.is og leggjum umsóknina að ESB stjórnsýsluapparatinu til hliðar, alla vegana um sinn.
ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB !
![]() |
Tryggir bönkum greiðslugetu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 3. september 2011
Eina sem var rangt, var það að það skyldu ekki fleiri hafa verið dregnir fyrir Dóminn !
![]() |
Alþingi tók ekki viturlega ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 27. ágúst 2011
Nigel Farage - Hlustið vandlega, sérstaklega íslenskir ESB aftaníossar !
Þetta er skyldu áhorf fyrir alla sem hugsa um ESB !
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. ágúst 2011
FLOKKSRÁÐSFUNDUR VG - DÆMIGERÐ HALELÚJA SAMKOMA FLOKKSRÆÐISINS !
Er það svo ekki alveg dæmigert hjá þessum FLOKKSRÁÐSFUNDI VG.
Að þar er hvorki á dagskrá að ræða um stöðu ESB málsins eða umsóknar- og aðildarferlið, né hvað þá heldur að ræða um hrikaleg vændræði og gjörbreytta stöðu EVRU svæðisins.
Ekkert fer fyrir mótmælum af þeirra hálfu vegna 270 milljóna króna fjárausturs til landsins sem áróðursmálaapparat ESB ætlar að dæla hér inn til þess að reka áróður fyrir ESB aðildinni.
Þetta var bara eins og ég óttaðist ein alls herjar halelúja samkunda flokksræðisins og klappað a.m.k. 10 sinnum fyrir Steingrími J. og einum 8 sinnum fyrir Kötu Jak.
Hvar er hin opna umræða og hvað með stefnuna og lýðræðið í þessum flokki ?
Er nema von að spurt sé ?
![]() |
Betra að hækka skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 26. ágúst 2011
FLOKKSRÁÐ ! Þetta er einhver svona vond arfleifð frá Stalínstímanum ! Svona flokkshesta ráðsapparöt eru ekki til annars en til að upphefja flokksforystuna og eru ekkert lýðræði !
Þó svo að ég hafi stutt VG í síðustu kosningum vegna staðfastra stefnumiða flokksins um að hafna með öllu ESB aðild.
Þá hef ég og margir fleiri sem það gerðum orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum, með hvernig flokkurinn og það annars margt ágæta fólk sem þar er, lét Samylkinguna draga sig á asnaeyrunum og plata sig í þetta árans samstarf þar sem ESB umsóknin hefur verið upphaf og endir alls ills.
Ég tel líka að ef VG eigi að telja sig lýðræðislegan grasrótarflokk alþýðunnar að þá eigi þeir að leggja niður svona uppvakningar flokksráðstefnur eins og þessa endemis "Flokksráðsfundi".
Þetta er svona einhverskonar slæmur arfur vinstri manna frá Stalíns tímanum.
Þar sem ekkert gerðist nema að allir klöppuðu forystunni lof í lófa alveg sama hvað.
Það þarf alvöru lýðræðislega grasrót í íslensku stjórnmálaflokkana ekki síst hjá VG ef þeir vilja kalla sig alvöru flokk íslenskrar alþýðu, sem taka alvöru lýðræðislegar ákvarðanir sem marka stefnuna og segja forystunni hvar hún á að vera og hvernig hún á að vinna fyrir fólkið í landinu.
Þó ég telji mig nú reyndar alltaf vera frekar til vinstri þá tel ég samt að Sjálfsstæðisflokkurinn, með sitt alræmda flokksræði komist samt kannski einna næst þessu með sína fjölmennu grasrótar Landsfundi þar sem hinn almenni flokksmaður hefur sitt atkvæði og getur sett stefnuna þvert gegn flokksbroddunum, eins og hefur oftsinnis gerst.
VG gætu því ýmislegt lært af andstæðingum sínum í Sjálfsstæðisflokknum !
Þessi Flokksráðsfundur VG er svo upphafinn og fyrirsjánleg samkoma flokkseigendanna og helstu framámanna flokksins og mun alls engu skila öðru en klappað verður 10 sinnum fyrir Steingrími J og 8 sinnum Kötu Jak og skipaðar 7 eða 8 samráðsnefndir sem aldrei eiga eftir að skila neinum tillögum, nema þá í "skötulíki" eins og Anna Ólafsdóttir Björnsson segir svo hnyttilega.
Því miður þá er þetta bara svona !
Er nema vona að fólk sé orðið þreytt á stjórnmálum !
![]() |
VG lítur til framtíðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011
Enn einn efnahagslegi dauðadómurinn yfir EVRU- svæðinu og þeirra handónýtu og uppdigtuðu Elítumynt !
Ætli helstu ESB og EVRU trúboðarnir á Íslandi hafi lesið þetta, þau Össur, eða Jóhanna, Árni Páll, eða Björgvin G.
Þetta ESB- og EVRU trúboð á Íslandi er bara ekki í lagi !
Skítahaugurinn í Brussel stækkar stanslaust og minningargreinarnar um EVRUNA hrannast upp.
Það eru ekki ESB eða EVRU andstæðingar á Íslandi sem skrifa dánarvottorðin, heldur virrtir alþjóðlegir prófessorar og alheims fjármálafyrirtæki- og stofnanir sem skrifa eftirmælin og minningargreinarnar um þennan vonlausa dauðadæmda gjaldmiðil !
En Jóhanna kann víst ekki útlensku og Björgvin G. hefur aldrei vitað neitt um banka- eða fjármálasviðskipti og Össur segir sjálfur að hann hafi ekki hundsvit á fjármálum eins og hann sagði við ISG á nærbuxunum í sjálfu hruninu í október 2008 !
Árni Páll er heilaþveginn og forritaður ESB Páfagaukur og ekki marktækur í einu eða neinu eins og ótal dæmin sanna !
Þessu volaða liði er svo sannarlega vorkunn og þjóðin þarf sem allra fyrst að reka þetta þjóðhættulega ESB- aftaníossa hyski Samfylkingarinnar af höndum sér !
Því fyrr því betra !
![]() |
Veðja á hrun evrunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011
EVRAN - IN MEMORIAN ! Minningargreinarnar um EVRUNA hrannast upp ! Hvað skyldi Össur og ESB Trúboðið á Íslandi segja !
Þetta er sko ekkert grín.
Þetta er alvaran og raunveruleg staða mála.
Þetta er ekki eins og ég eða einhverjir bloggarar hér á Mbl.is séu að segja þetta.
Þetta eru heimsþekktir og virrtir hagfræðiprófessorar og ritstjórar stórblaða Evrópu sem eru ítrekað að tala svona, að EVRAN sé búinn að vera.
Í gær sagði hinn heimsþekkti fyrrum Seðlbankastjóri Bandaríkjanna Mr. Greenspan að Evran væri að hruni kominn.
En rembist samt Össur, Árni Páll og Jóhanna eins og rjúpan við staurinn að troða þjóðinni þarna inn, eins og enginn sé morgundagurinn og algerlega gegn hennar eigin vilja.
Þykjast hvorki sjá né heyra hvað er að gerast og vilja heldur ekkert um það vita eða tala.
Þetta þjóðhættulega og stórskaðlega þríeyki þeirra minnir mig alltaf meira og meira á apana þrjá á frægri ljósmynd:
Þar sem einn hélt fyrir augun af því að hann vildi ekki sjá.
Annar hélt fyrir eyrun af því að hann vildi heyra.
En sá þriðji hélt fyrir munninn af því að hann vildi alls ekki tala um það sem hann bæði sá og heyrði !
Er ekki komið nóg af ruglinu hjá þessum forhertu og óforbetanlegu ESB- aftaníossum !
![]() |
Verða að viðurkenna að evran hafi mistekist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011
Þórólfur Matthíasson stórskaðar virðingu Háskólans með ítrekuðum lygum sínum, rangfærslum og óhróðri um íslenska bændur. Hann er óforskammaður sendiboði Samfylkingarinnar og leigupenni ESB- trúboðsins á Íslandi !
Muniði hræðslu áróður hans um hvað myndi gerast hér ef að þjóðin samþykkti EKKI ICESAVE I eða ICESAVE II og að síðustu ICESAVE III, drápsklyfjarnar sem hann vildi að íslenskur almenningur gengist í ábyrgð fyrir.
Ísland átti að verða Kúba Norðursins eða einangruð Norður Kórea ef þetta gengi ekki eftir samkvæmt hans hræðsluáróðri.
Hann sagði að skuldatryggingarálag landsins yrði samstundis sett í ruslflokk og við yrðum einangruð og útskúfuð um allan heim.
Allt reyndist þetta tómur hræðslu- og blekkingaráróður og ekkert af þessu rættist, heldur þvert á móti þá jókst virðing þjóðarinnar og skuldatryggingarálag þjóðarinnar snarlækkaði og er nú lægra en meðaltal ESB dýrðarlandanna sem hann ásamt ESB trúboðinu tilbiður !
Þórólfur er þvílíkur ómerkingur og hann hefur nú ítrekað lagt íslenska bændastétt og landbúnað í einelti sem er ekki sæmandi háttsettum opinberum embættismanni við æðstu menntastofnun landsins.
Það ætti að ávíta hann harðlega og ef hann lætur ekki segjast þá ætti að víkija honum úr embætti fyrir lygar, blekkingar og einelti !
![]() |
Mótmæla Þórólfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011
Sendum þennan Akademíska lygalaup og Samfylkingar jólasvein í einangrun til Norður Kóreu !
![]() |
Þórólfur: Dæmir sig sjálft |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar