RÚV með þáttastjórnandann Gísla Martein leyfir sér að hæðast að Dorrit Moussaieff f.v forsetafrú í skemmtiþætti !

RÚV "okkar allra" eins og þessi rándýra ríkisstofnun vill helst láta kalla sig heldur sig vandlega á harð- línu hinns pólitíska rétttrúnaðar í öllum dagskrárliðum.Dorrit_Moussaieff_(cropped)

Ekki nóg með að allir fréttatímar og fréttaskýringar þættir séu kol hlutdrægir og undirlagðir af hinni pólitísku rétthugsun, þá er menningin og umfjöllunin öll undirlögð af menningar Marxisma og vinstri öfgum, meira að segja svokallaðir skemmtiþættir eru einnig vandlega nýttir til að berjast gegn því að ekki sé farið gegn ríkjandi gildum hinns pólitíska rétttrúnaðar. Vinstri öfga elítan hjá RÚV passar vel uppá það að helst allir sem fá jákvæða umfjöllun og eru kallaðir til umræðunnar í settið játist fyrst hinum pólitíska rétttrúnaði. Þeir sem voga sér að hafa "rangar" skoðanir og flíka þeim eru ekki kallaðir til. Eins og Dorrit eru þeir teknir á beinið og stimplaðir og fordæmdir.486092

Dæmi um "rangar" skoðanir að mati RÚV er t.d.

1. Að vera gagnrýninn, eða á móti ESB.

2. Að styðja Breta í BREXIT og útgöngu úr ESB.

3. Að hafa skilning á stefnu Donalds Trumps.

4. Að vilja verja Ísraels ríki og gyðinga.

5. Að vera a móti hinu pólitíska ISLAM og þeirra hryðjuverkum.

6. Að vera ekki illa við Pútín Rússlandsforseta.

7. Að játast ekki hinum pólitíska rétttrúnaði í loftslagsmálum.

8. Að vera þjóðlegir og verja Ísland.

9. Að hafa efasemdir um fjölmenningu og opinn landamæri.

10. Að hafa aðrar skoðanir en RÚV.

Þetta er mjög Sovétskt, í anda hinns kommúníska rétttrúnaðar og hinns alsjáandi ráðstjórnar ríkis.

Allt þetta og miklu meira til eru algerlega bannaðar skoðanir og leyfast því ekki á RÚV. Rúvarar eru sérlega viðkvæmir og strangir á því að engum af hinu svokallaða "fræga og ríka fólki" eigi að leyfast að hafa aðrar skoðanir en þær sem þeim eru þóknanlegar. 

Þess vegna var svokallaður skemmtiþáttur GMB notaður til að ráðast að frú Dorrit okkar virtu og elskuðu fyrrverandi forseta frú af því að hún leyfði sér að hata ekki Donald Trump og hafa kannski einhverjar aðrar skoðanir á sjálfum forseta Bandaríkjanna en hið ríkisrekna RÚV hafði gefið út að ættu að vera "hinar viðteknu skoðanir"


Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Jan. 2020
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband