Þjóðarflokkurinn VOX vinnur stórsigur í þingkosningunum á Spáni. Meira en tvöfaldar þingfylgi sitt og er nú þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Spánar.

Því ber fagna að hið nýja framsækna spænska stjórnmálaafl VOX fékk mikinn meðbyr og vann stórsigur í Spænsku þingkosningunum og rúmlega tvöfaldar þingfylgi sitt, fær nú 52 þingmenn á Spænska þingið og 15,1% atkvæða á landsvísu.

Santiago_Abascal-2018

Santiago Abascal leiðtogi VOX.

 

Furðulegt hvernig Morgunblaðið uppnefnir hér þennan nýja lýðræðislega og íhaldssama þjóðlega hægri flokk sem "öfga-hægriflokkinn VOX" En VOX er í raun klofningsflokkur út úr hægri þjóðar flokknum PP  (Party Popular) sem verið hefur annar af burðarflokkum Spænskra stjórnmála frá því lýðræði var aftur komið á þar í landi. PP sem stærsti borgaralegi hægri flokkurinn á Spáni hefur að mörgu leyti haft svipaða stöðu og Sjálfsstæðisflokkurinn hér á landi, en fær hér mikla og samkeppni frá VOX. 

En VOX er með þessum úrslitum orðinn þriðji stærsti stjórnmálaflokkur Spánar og fær mjög víða gríðarlegt fylgi í hinum ýmsu kjördæmum Spánar, eins og í Murcia héraði á Suður Spáni þar sem hann varð stærsti stjórnmálaflokkurinn og víða á S-Spáni er hann nú orðinn annar stærsti stjórnmálaflokkurinn. 

Einnig er fréttin í Mbl öll hin ruglingslegasta og ranglega farið með staðreyndir. Eins og þar sem sagt er að, "sósialistar fengu mikinn meirihluta þingsæta sem áður" - Þetta er algerlega rangt hjá Mbl. þar sem Sósíalistar fengu 120 þingsæti og töpuðu þremur, en alls eru 350 þingsæti á Spænska þinginu. Sósíalistar voru því alls ekki hvorki nú né áður með "mikinn meirihluta þingsæta" þar sem þeir hefðu þurft að fá 176 þingsæti til að tryggja sér meirihluta þingsæta og líklega nálægt 200 þingsætum til þess að geta talist með "mikinn meirihluta þingsæta"

En einstaka blaðamenn Morgunblaðsins eins og hjá RÚV virðast ansi oft láta vinstrið um skilgreiningar stjórnmálanna og hvað séu öfgar og hvað sé normið.

Hjá vinstrinu eru reyndar allir sem ekki játast í öllum megin atriðum undir þeirra viðmið í hinum ýmsu málum, stimplaðir sem öfga, eða últra hægrið og úthrópaðir sem hættulegir fasistar.

VOX hefur sprungið út í Spænskum stjórnmálum en flokkurinn var stofnaður árið 2013 en fékk fyrstu árin lítið sem ekkert fylgi og fékk ekki fyrstu þingmenn flokksins kjörna fyrr en í þingkosningunum fyrr á þessu ári.

Nær alls staðar í Evrópu eru systurflokkar VOX í bullandi sókn og sums staðar orðnir stærstu stjórnmálaöflinn, s.s. í Póllandi og Ungverjalandi,

Hvenær ná þessi framsæknu þjóðlegu öfl Íslands ströndum?

Frelsisflokkurinn (www.frelsisflokkurinn.is) hefur reyndar verið starfandi í 2 ár og heldur ótrauður áfram.

Okkar tími mun koma.Forsíðumynd á facebook


mbl.is Stórsigur öfga-hægriflokks á Spáni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðlegt og fjölmenningarlegt gal opið íslenskt heilbrigðiskerfi ! Kostað af skattgreiðendum. Fórnarlambs væðing hælisleitenda ! Enn einu sinni leikrit og fjölmenningarlegt uppþot á alþingi !

Alþingismenn fara af límingunum í hvert einasta skipti sem Útlendingastofnun reynir af veikum mætti að gæta hagsmuna þjóðarinnar og taka á sig rögg og reyna eitthvað smá að spyrna við fótum og fylgja eftir einhverju af því sem eftir stendur af lögum og regluverki þjóðarinnarí innflytjendamálum.

Þingheimur hefur reyndar sífellt gjaldfellt lögin og flest úrræði stofnunarinnar til að takast á við þessi erfiðu mál af festu og ábyrgð.

Ábyrgðarleysi þingheims í opingátta- og ábyrgðarleysis stefnunni í innflytjenda málum virðast enginn takmörk sett því í hvert skipti sem einhver ríkisstyrkt samtök hælis- fórnarlambanna æmta eða skræmta þá er þess krafist að lögin og reglunum sé breytt og þau útþynnt enn frekar í nafni mannúðar- og fjölmenningar og meira og minna enn frekari galopnun á lögum um hælisleitendur- og flóttafólk.

Sú sem geltir hæst er lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir sem gert hafði hælisleitendaiðnaðinn að gróðavænlegri atvinnustarfssemi í eigin þágu áður en henni skolaði inná þing.998845

Hún ætti því í hagsmuna skráningu alþingis í raun að vera kol- vanhæf í hverju einasta máli sem varðar flóttafólk- og hælisleitendur.

Merkilegt er að þar sem sem Alþingismenn virðast sífellt geta leyft sér að svíkja sitt eigið fólk, aldraða og öryrkja og fátæka íslendinga sem þurfa á aðstoð og skjóli þeirra að halda.

En þegar kemur að flóttafólki eða hælisleitenda- eða flökkulýð, þá fá þeir allir hland fyrir hjartað og alheims- fjölmenningar og fórnarlambs- væðingin nær öllum tökum.

Hvenær fá sjónarmið venjulegs fólks að koma fram, já og okkar skoðanir einhverja vigt ? www.frelsisflokkurinn.isForsíðumynd á facebook-3-1

 

 


mbl.is Fordæmdu brottvísun albönsku konunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Nóv. 2019
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband