Theresa May, sterkur leiðtogi Bretlands. Leiðir þjóð sína út úr svartholi ESB !

Hún sýnir ótrúlegan styrk og Brussel liðið óttast hana og einarða stefnu ríkisstjórnar hennar um að leiða þjóðina út ur ESB og fara að vilja þjóðar sinnar.

Þessi staðfesta þolir Elítan í Brussel mjög illa, því hingað til hafa þeir aldrei viðurkennt  urslit kosninga sem kjósa á móti vilja þeirra. Þess vegna heimtuðu þeir strax nyjar kosningar i Bretlandi og svo hafa þeir nú allt á hornum sér vegna þess að svo verður ekki og reyndar er nú traustari meirihluti fyrir útgöngu Bretlands en nokkurn tíman áður. Allar heimsenda og hrakfara spár þeirra um að allt færi til fjandans myndu Bretar kjósa að yfirgefa ESB reyndist innihaldslaus hræðslu áróður. 

Man einhver eftir ICESAVE hákarlinum og Kúbu norðursins ?


mbl.is Vinsælli en Thatcher og Blair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Sig. fyrrverandi formaður Framsóknar viðurkennir að ESB aðildarbrölt er búið spil !

Jón Sigurðsson f.v. ráðherra og flokksformaður er mikill raunsæismaður og það er mjög gott og virðingarvert að hann opnar nú augun og viðurkennir og sér að ESB aðildar umsókn Íslands var algerlega óraunsætt feigðarflan sem sé nú varanlega komið af dagskrá íslenskra stjórnmála !

Jón bætist þar með í stóran hóp fyrrverandi ESB sinna sem sjá stóra ágalla ESB og viðurkenna og skilja vel afhverju þjóðin þeirra ítrekað og sterkt hafnar ESB aðild með öllu.

Það er einstaklega ánægjulegt fyrir okkur ESB aðildarandstæðinga að sjá þessar jákvæðu breytingar, þegar helstu fyrrverandi kanónur ESB trúboðsins á Íslandi beigja af og viðurkenna með rökum og af raunsæi ESB mistökin. Áður höfðum við séð Jón Baldvin Hannibalsson taka u beigju burt frá ESB ruglinu !

Hvenær ætli trausti rúinn flokksforysta Samfylkingarinnar viðurkenni mistökin ?


mbl.is ESB ekki á dagskrá næstu árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Gunnlaugur I.
Gunnlaugur I.

Ég er vel kvæntur maður á góðum aldri, sex barna faðir auk yndislega stjúpbarna.  Á orðið nokkurn fjölda afkomenda sem mér þykir mjög vænt um. Ég hef mjög fjölbreytta lífsreynslu og þekki lífið frá ýmsum hliðum, ég er opinn og umburðarlindur og virði mismunandi skoðanir.  Ég er mikill áhugamaður um flest sem tengist þjóðmálum og stjórnmálum. Ég er frjálslyndur þjóðfrelsissinni. Ég aðhyllist opið lýðræði og met tjáninga- og skoðanafrelsi einstaklingsins meira en kerfisræði. Ég sit í stjórn Heimssýnar samtaka sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Ég er virkur í stjórnmálastarfi og er formaður Frelsisflokksins. www.frelsisflokkurinn.is 

 

Apríl 2017
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 65399

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband