Fimmtudagur, 29. desember 2016
Ekkert "kæra Eygló" núna. Færeyingar ekki taldir nógu fínir hjá "góða fólkinu !
Það er ekkert upphlaup í fjölmiðlum "góða fólksins" núna. Ekkert "kæra Eygló" eða svoleiðis. Færeyingar sennilega allt of Kristnir og hvítir í þokkabót, fyrir utan að vera allt of líkir okkur sjálfum, þjóðinni sem "góða fólkið" hatast við alla daga !
Þær eiga þakkir skildar þær Rakel Sigurgeirsdóttir og Addý Steinars með því að hvetja okkur til að standa nú við bakið á Færeyingum
Skora á Íslendinga að hjálpa Færeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 19. desember 2016
Þessari borgarstjórn verður að koma frá. Stefnir í öngþveiti í samgöngumálum borgarinnar vegna aðgerðarleysis og haturs meirihluta borgarstjórnar gegn einkabílnum !
Hjálmar á hjólinu oft kallaður "holuhjálmar" er formaður Samgöngunefndar Reykjavíkur og rörsýn hans á samgöngumál borgarinnar er að reynast okkur borgarbúum dýrkeypt. Hatur Holu Hjálmars á einkabílnum er öllum orðið löngu ljóst. Þetta blinda hatur stjórnar öllum hans ákvörðunum en ekki hvað síst aðgerðarleysi hans.
Mislæg gatnamót duga ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 19. desember 2016
Allahu Akbar - Líklega endurtekning á hryðjuverkum Islamista frá því í Nice í sumar ?
Óhugnanlegar eru þessar voða fréttir frá miðborg Berlínar um drápsóða menn sem notuðu trukk til þess að ráðast gegn saklausu fólki á jólamarkaði í höfuðborg Þýskalands. Það er skemst að minnast hryðjuverksins í Nice s.l. sumar sem kostaði hátt í 100 manns lífið.
Samúð mín er með þeim sem eiga um sárt að binda og Þýsku þjóðarinni.
Það verður að binda endi á þessi skelfilegu hryðjuverk öfga- Islamista !
Keyrði á mannfjölda á jólamarkaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 13. desember 2016
Fjögur ríki ESB meðal svæsnustu peninga þvættis- og skattaskjóla veraldar !
Þar á meðal er Luxemburg, heimaríki Junckers núverandi forseta framkvæmdastjórnar ESB. En Juncker var forsætisráðherra Luxemborgar um tveggja áratuga skeið og allan þann tíma vann hann ötulega með banka brasks kerfi Evrópu að því að gera Luxemborg að helsta höfuðvígi peninga þvættis og illa fengins fjármagns á meginlandi Evrópu.
Banksterarnir verðlaunuðu síðan Herr Juncker sérstaklega fyrir vel unnin störf og dygga þjónustu með því að gera hann að æðstu toppfígúru ESB í Brussel. En þar er hann þekktur fyrir að vafra um hina gylltu sali Brussel valdsins dauðadrukkinn sem ein spilltasta og dýrasta koníaks fyllibytta Mið Evrópu !
Fjögur skattaskjól innan ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 02:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 12. desember 2016
Samfylkingin samþykkir hvað sem er. Engar hugssjónir eftir, allt fyrir ESB og völdin !
Það er ekki að spyrja að því, dreggjarnar af deyjandi Samfylkingunni samþykkja hvað sem er fyrir völdin og möguleikann á að geta smyglað þjóðinni inn í ESB apparatið.
Annars spái ég þessari volæðis stjórn Samfóista og anarkista ekki langs lífs, sem betur fer fyrir land og þjóð !
Píratar og Samfylkingin samþykkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 6. desember 2016
Miklu meira en milljarður mun fara í þessa botnlausu hælisleitenda vitleysu. Dulinn og falinn kostnaður hleypur á milljörðum.
Stórhækkun á kostnaði vegna hælisleitenda kemur ekki á óvart. Allt útlit er fyrir að þeir fari yfir 1000 á þessu ári og er þá um ríflega þreföldun að ræða frá fyrra ári. Stjórnvöld fara nú fram á mikla hækkun á fjárlögum og samkvæmt þeim verður talan einn milljarður á næsta ári. Engar sundurliðanir eða nánari skýringar eru á þessum auknu fjárútlátum, en reikna má með að útgjöld vegna þessa málaflokks séu stórlega vanáætluð og raun kostnaður sé miklu hærri. Samkvæmt nýju innflytjenda lögunum má gera ráð fyrir að fjöldi hælisleitenda til Íslands margfaldist á næstu árum. Samkvæmt nýju lögunum eru svokölluð réttindi hælisleitenda stóraukin, en lítið fer fyrir skyldum hælisleitenda gagnvart samfélaginu og þjóðinni. Þannig eru hælisleitendum nú tryggð gjaldfrjals læknis- og heilsugæsluþjónusta, frí tannlækna og sálfræðiþjónusta, frí túlka- og félagsþjónusta og svo frítt húsnæði, rafmagn og hiti. Að endingu er þeim svo tryggður mánaðarlegur framfærslueyrir sem er um 220 þúsund a mánuði. Ekkert kemur fram í fjárlögunum hvort útgjöld vegna alls þessa eru talin með í milljarðinum, en það er vafalaust ekki. En þessar tölur þarf allar upp a borðið strax !
Rúmur milljarður vegna hælisleitenda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 3. desember 2016
Starfsfólk RÚV telur sig ósnertanlegt, á sama tíma og þeir þverbrjóta aftur og aftur allar reglur RÚV um hlutleysi.
Það vantar ekki hrokann og yfirlætið á pólitísku rétttrúnaðar elítuna sem telur sig eiga RÚV. Ef þeir verða fyrir gagnrýni þá hóta þeir öllu illu. Ætli lögreglunni og ríkissaksoknara verði sigað að á Vigdísi fyrir að dirfast að gagnrýna ramm politíska og hlutdræga frétta umfjöllun RÚV. Þessi pólitíski rétttrúnaður fer að minna illilega á Austur Þyskaland á tímum harðlínu kommana þar, sem stjórnuðu fjölmiðlun og allri hugsun í landinu með hótunum og kúgun lögreglusveita STASI hinnar opinberu skoðana kúgunar lögreglu yfirvalda. Lokum RÚV !
Slíkur atvinnurógur er óviðunandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Stjórn Stefans Löfvens fallinn. Nú þurfa Svíþjóðardemókratar...
- Donald Trump mun snúa aftur. Hann og hans stuðningsmenn munu ...
- Ósigur Íslands - Sigur Íslamska bræðralagsins og No Borders s...
- BREXIT sigur. Boris Johnson kemur nýju frumvarpi auðveldlega ...
- Einkabílahatrið á fullu - "Hjólandi og gangandi settir í alge...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 65485
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Sminkaður í allt að fjóra klukkutíma
- Neitar ásökunum heimildarmyndarinnar
- Biblían er í mínum huga ein versta bók sem til er
- Rifjaði upp gamla takta í gríninnslagi
- Ég get ekki beðið eftir að túlka þessa mögnuðu konu
- Palestínski fáninn bannaður í Eurovision-höllinni
- Gekk rauða dregilinn í gervi Beavis
- Þungarokkssveitin Manowar til Íslands
- Hljómborðsleikari ELO látinn
- Schneider höfðar meiðyrðamál